Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, ásamt þeim sem tóku við viðurkenningum. Halldór Guðmundsson frá Fairytale at Sea, Freyja Rut Emilsdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd 1238: Battle of Iceland, Ingibjörg Elín Jónasdótir tók við viðurkenningunni fyrir hönd SBA og Linda María Ásgeirsdóttir, sem hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar.
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, ásamt þeim sem tóku við viðurkenningum. Halldór Guðmundsson frá Fairytale at Sea, Freyja Rut Emilsdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd 1238: Battle of Iceland, Ingibjörg Elín Jónasdótir tók við viðurkenningunni fyrir hönd SBA og Linda María Ásgeirsdóttir, sem hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar.
Mynd / Markaðsstofa Norðurlands
Líf og starf 26. nóvember 2021

Fjórar viðurkenningar veittar fyrir góð störf

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin nýverið en ekki reyndist unnt að halda hátíð árið 2020 vegna heimsfaraldurs.Að þessu sinni var farið um vestanverðan Eyjafjörð, fyrirtæki voru heimsótt á Dalvík og Ólafsfirði áður en haldið var í Fljótin og þaðan á Siglufjörð.

Á Kaffi Rauðku var slegið upp veislu um kvöldið en þar voru, venju samkvæmt, veittar viðurkenningar fyrir störf sem tengjast ferðaþjónustu.

Fyrirtæki ársins 2021 er SBA Norðurleið. Þessa viðurkenningu fá fyrirtæki sem hafa skapað sér sterka stöðu á markaði og hafa unnið að uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun í ferðaþjónustu á Norðurlandi. SBA Norðurleið sérhæfir sig í útleigu hópferðabifreiða og er eitt það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Akureyri og starfsstöð í Hafnarfirði og er með flota af 80 vel útbúnum bifreiðum til sumar- og vetraraksturs. Góð þjónusta hefur ávallt verið í fyrirrúmi hjá fyrirtækinu og hefur það verið mjög öflugt í að nýta þau tækifæri sem gefast til að byggja upp aukna starfsemi á Norðurlandi. SBA er enda þekkt fyrir að geta tekist á við hvaða aðstæður sem er.

Sproti ársins er 1238: Battle of Iceland. Þessi viðurkenning er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. 1238: Battle of Iceland var stofnað árið 2019 og býður upp á frábæra aðstöðu fyrir bæði minni og stærri hópa. Sögusetrið 1238 er gagnvirk sýning sem færir viðskiptavini nær sögulegum stóratburðum en hefðbundnar fræðslusýningar.

Þátttakendur komu við á Byggðasafninu Hvoli á Dalvík og fræddust um starfsemi þess.

Með hjálp nýjustu tækni í miðlun og sýndarveruleika er þeim boðið að taka þátt í átakamestu atburðum Íslandssögunnar og beinlínis stíga inn í sögu Sturlungaaldar. Fyrirtækið hefur sýnt mikinn metnað í stafrænni markaðssetningu og verið mjög sýnilegt á öllum helstu boðleiðum. Í fyrra þurfti fyrirtækið að aðlaga þá markaðssetningu í meiri mæli að Íslendingum og tókst það vel. Sýningin hefur fyrir vikið vakið mikla athygli innanlands en einnig á erlendum mörkuðum. Þetta starf ýtir undir uppbyggingu á öflugri ferðaþjónustu í Skagafirði allt árið og vekur athygli bæði á nærsvæði fyrirtækisins en einnig Norðurlandi öllu.

Geiturnar á Brúnastöðum í Fljótum vöktu athygli þátttakenda.

Viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu hlaut Linda María Ásgeirsdóttir. Sú viðurkenning er veitt einstaklingi sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Linda María hefur unnið af heilindum fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi í fjölda ára. Hún hefur verið í forsvari fyrir Ferðamálafélag Hríseyjar og rekur núna veitingastaðinn Verbúð 66 í Hrísey. Einnig hefur hún setið í svæðis­ráði Hríseyjar fyrir Akureyrarbæ og starfað með okkur á Markaðsstofunni í hópi ferðamálafulltrúa. Linda María hefur unnið þétt með fyrirtækjum og einstaklingum sem byggja upp ferðir til Hríseyjar og haldið utan um skipulag ferða og heimsókna með ýmsum aðilum í gegnum árin. Hún á því stóran þátt í að halda úti ferðaþjónustunni í eynni en mjög mikilvægt er fyrir okkur á Norðurlandi að gestir okkar geti farið þangað í heimsókn og notið góðrar þjónustu og veitinga.

Í ár var ákveðið að bæta fjórðu viðurkenningunni við. Hvatningarverðlaun ársins 2021 voru veitt Fairytale at Sea. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og býður upp á þjónustu sem byggir vel undir ímynd Norðurlands og er orðið þekkt meðal innlendra og erlendra ferðamanna fyrir einstaka upplifun. Markaðsstofa Norðurlands fær reglulega fyrirspurnir um möguleika á alls konar ævintýraferðum þar sem náttúran er í fyrirrúmi og fyrirtækið nær að sinna þeim verkefnum einstaklega vel með sæþotuferðum frá Ólafsfirði sem siglt er meðal annars að fossinum Míganda og til móts við miðnætursólina.

Litið var inn á Síldarminjasafnið á Siglufirði.

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...

Erfitt að sætta ólík sjónarmið
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur...

Rekstrarerfiðleikar halda áfram
Fréttir 3. júní 2026

Rekstrarerfiðleikar halda áfram

Ístex getur ekki greitt bændum fyrir ullarinnlegg þeirra núna í júní, en býður þ...

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum
Fréttir 3. júní 2026

Baldur og Herjólfur sigla til og frá Vestmannaeyjum

Ferjurnar Baldur og Herjólfur munu sigla til og frá Vestmannaeyjum frá 8. júní n...

Útlit fyrir aukna kornrækt
Fréttir 2. júní 2026

Útlit fyrir aukna kornrækt

Á síðasta ári studdu stjórnvöld í fyrsta skipti kornframleiðslu með beinum hætti...

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst
Fréttir 2. júní 2026

Upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst

Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst er kominn í loftið á Ísland.is. Þar má...

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi
Fréttir 1. júní 2026

Reglur Evrópusambandsins gilda ekki á Íslandi

Fyrirtækjum sem flytja inn og selja sítrusávexti ber ekki skylda til að merkja þ...

Áburðarsalar rólegir
Fréttir 1. júní 2026

Áburðarsalar rólegir

Samkvæmt svörum við fyrirspurnum sem sendar voru fyrirtækjum sem selja tilbúinn ...