Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Fánareið við setningu Skeifudagsins
Fánareið við setningu Skeifudagsins
Mynd / James Einar Becker / LBHÍ
Fréttir 29. apríl 2026

Fjölmenni á Skeifudeginum á sumardaginn fyrsta

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Skeifudagurinn fór fram á sumardaginn fyrsta að Mið-Fossum í blíðskaparveðri. Viðburðurinn er einn af hápunktum skólaársins hjá Landbúnaðarháskóla Íslands. Fjölmenni var á viðburðinum á Mið-Fossum og síðar um daginn var opið hús í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. 

Dagská Skeifudagsins fór fram með hefðbundum hætti með fánareið og opnunarávarpi Eyjólfs Guðmundssonar deildarforseta. Frú Halla Tómasdóttir setti daginn formlega að þessu sinni, en þetta er í 69 sinn sem Skeifudagurinn er haldinn hátíðlegur. Í ræðu forseta sagði meðal annars: „Íslenskur landbúnaður er ekki aðeins hluti af fortíð okkar og sögu heldur lykill að framtíð okkar Íslendinga sem þjóðar.“

Eftir setningarræðu forseta var fjölbreytt dagskrá þar sem nemendur sýndu afrakstur vetrarins og kepptu í fjölda greina. 

Keppt var í fjórgangi (V2) í fullorðinsflokki og var hart barist um efstu sætin. Eftir forkeppnina leiddu þær Guðrún Tinna Rúnarsdóttir og Katrín Diljá Vignisdóttir, en þær héldu sínum sætum í úrslitum eftir glæsilega frammistöðu.

Mynd / James Einar Becker - LBHÍ

Verðlaun og heiðursmerki

Eftir sýningar á Mið-Fossum, sem innihéldu meðal annars tamningatryppi nemenda í Reiðmennsku III og skrautreið, var haldið á Hvanneyri þar sem var opið hús og kaffisala. 

Á Hvanneyri voru helstu verðlaun dagsins afhent:

  • Morgunblaðsskeifan 2026: Sólrún Silfá Guðmundsdóttir hlaut þessa æðstu viðurkenningu ársins.
  • Framfaraverðlaun Reynis: Guðrún Jóna Stefánsdóttir hlaut þessi hvatningarverðlaun fyrir góðan árangur og framfarir í vetur.
  • Eiðfaxabikarinn: Silja Hrönn Sverrisdóttir.

Guðbjartur Þór Stefánsson og Linda Rún Pétursdóttir, reiðkennarar við skólann, veittu nemendum viðurkenningarskjöl. Sigrún Ólafsdóttir, staðgengill fyrir formann Félags tamningamanna, og Eyjólfur Guðmundsson, deildarforseti sáu um afhendingu stærstu verðlaunanna við hátíðlega athöfn.

Að sögn aðstandenda tók á annað hundrað manns þátt í deginum og var stemmningin til fyrirmyndar.

Mynd/ James Einar Becker - LBHÍ

Forkeppni

Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur

  1. Guðrún Tinna Rúnarsdóttir, Toppur frá Litlu-Reykjum, 5,97
  2. Katrín Diljá Vignisdóttir, Fold frá Hemlu II, 5,47
  3. Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
  4. Guðrún Alda Ólafsdóttir, Gullborg frá Haukatungu Syðri 1,5,37
  5. Mikael Jens Halldórsson, Nös frá Ásatúni, 5,23
  6. Silja Hrönn Sverrisdóttir, Sprettur frá Brimstöðum, 5,20
  7. Guðrún Jóna Stefánsdóttir, Rán frá Draflastöðum, 4,63
  8. Linda Björg K. Kristjánsdóttir, Dreki frá Grýtubakka II, 4,53
  9. Valgerður Á Sigurðardóttir, Kvöldpula frá Lundi, 4,37
  10. Friðgeir Óli Eggertsson, Álfadís frá Minni-Völlum, 4,20

A-úrslit

Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur

  1. Guðrún Tinna Rúnarsdóttir, Toppur frá Litlu-Reykjum, 6,17
  2. Katrín Diljá Vignisdóttir, Fold frá Hemlu II, 5,97
  3. Guðrún Alda Ólafsdóttir, Gullborg frá Haukatungu Syðri 1, 5,47
  4. Sólrún Silfá Guðmundsdóttir, Kjarkur frá Ánastöðum, 5,43
  5. Mikael Jens Halldórsson, Nös frá Ásatúni, 4,67

B-úrslit

Fjórgangur V2 · Fullorðinsflokkur 7

7. Friðgeir Óli Eggertsson, Álfadís frá Minni-Völlum,"5,37"

8. Guðrún Jóna Stefánsdóttir, Rán frá Draflastöðum,"5,20"

9. Silja Hrönn Sverrisdóttir, Sprettur frá Brimstöðum,"5,07"

10. Valgerður Á Sigurðardóttir, Kvöldpula frá Lundi,"4,53"

11. Linda Björg K. Kristjánsdóttir, Dreki frá Grýtubakka II,"4,17"

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...