Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 mánaða.
Esa Härmälä hélt erindi á málþingi Bændasamtaka Íslands.
Esa Härmälä hélt erindi á málþingi Bændasamtaka Íslands.
Viðtal 28. ágúst 2026

Finnland gekk í ESB þrátt fyrir landbúnaðinn

Höfundur: Þröstur Helgason

Finnland gekk í Evrópusambandið árið 1995 þrátt fyrir miklar efasemdir í landbúnaðinum. Þetta segir Esa Härmälä í Útvarpi Bændablaðsins en hann leiddi samningaviðræður Finna um landbúnaðarmál við ESB á fyrri hluta tíunda áratugarins. Hann telur að aðildin hafi haft í för með sér miklar breytingar fyrir bændur, en að finnskur landbúnaður hafi engu að síður haldið velli og tekist að viðhalda innlendri matvælaframleiðslu og markaðshlutdeild.

Esa Härmälä.

Härmälä segir að efnahagskreppa, hrun Sovétríkjanna og breytt staða annarra EFTA-ríkja hafi skapað aðstæður sem leiddu til þess að Finnar ákváðu að sækja um aðild. Hann leggur áherslu á að aðildarsamningarnir hafi verið langir og erfiðir, að samið hafi verið um sérstakar stuðningsheimildir fyrir norðurhluta landsins og að samningaviðræður hafi í raun haldið áfram löngu eftir að formlegri aðild var náð.

Forsætisráðherrann stýrði honum inn í viðræðurnar

Esa Härmälä er menntaður land- búnaðarhagfræðingur og ólst upp í finnskum landbúnaði. Hann rak bú með bróður sínum í SuðurFinnlandi, starfaði síðar við finnsku sendinefndina í Brussel og tók síðan við alþjóðamálum og viðskiptastefnu hjá finnsku bændasamtökunum MTK.

Þegar ríkisstjórn Esko Aho tók við völdum árið 1991 var Härmälä ráðinn efnahagsráðgjafi forsætisráðherrans.

„Vegna bakgrunns míns og þess að landbúnaðarmálin voru svo viðkvæm fyrir forsætisráðherrann, sem var formaður Miðflokksins, var mér með ákveðni beint inn á svið samningaviðræðna um landbúnað,“ segir hann.

Djúp kreppa og hrun Sovétríkjanna

Að sögn Härmälä var staðan í Finnlandi mjög erfið þegar aðildarferlið hófst.

„Mjög margt var að gerast. Í fyrsta lagi var djúp efnahagskreppa. Sovétríkin hrundu og viðskipti við Sovétríkin, sem voru um fimmtungur af utanríkisviðskiptum Finnlands, hurfu.“

Á sama tíma lenti Finnland í miklum skuldavanda vegna lána í erlendum gjaldmiðlum, atvinnuleysi jókst og bankakerfið komst í vanda.

Samhliða þessu voru Svíar og Austurríkismenn að sækja um aðild að Evrópusambandinu.

„Við þurftum að ákveða hvort við vildum vera áfram í sama viðskiptaumhverfi og önnur lönd eða ekki. Við ákváðum að reyna og sjá hvað kæmi út úr samninga- viðræðunum.“

Bændur voru ekki hrifnir

Härmälä segir að bændur hafi almennt verið andvígir aðild.

„Ekki var um neina sérstaka hrifningu að ræða. Allir skildu að þetta myndi þýða miklar breytingar.“

Finnskur matvælamarkaður hafði verið lokaður og framleiðsluverð til bænda nær tvöfalt hærra en innan ESB.

„Allir vissu að þetta yrði mikil áskorun.“

Hann segir þó að bændur hafi líka áttað sig á því að þeir myndu ekki einir ráða niðurstöðunni.

„Bændur áttuðu sig á því að það yrði ekki landbúnaðurinn sem myndi ákveða hvort Finnland gengi í Evrópusambandið eða ekki. Aðrir hlutar samfélagsins myndu taka þá ákvörðun.“

Finnland gekk inn þrátt fyrir landbúnaðinn

Aðspurður hvort aðildin hafi fyrst og fremst verið hugsuð til að tryggja framtíð landbúnaðarins svarar Härmälä með áhugaverðum hætti:

„Finnland gekk ekki í Evrópu- sambandið vegna landbúnaðarins. Finnland gekk í Evrópusambandið þrátt fyrir landbúnaðinn.“

Hann segir þó að niðurstöður samningaviðræðnanna hafi verið þess eðlis að hægt væri að sjá fyrir sér að finnskur landbúnaður gæti lifað breytingarnar af.

Samningaviðræður héldu áfram eftir aðild

Härmälä segir að eitt af því sem kom honum mest á óvart hafi verið hversu mikið hafi enn verið óuppgert þegar formlegum viðræðum var að flestra mati lokið.

„Samningaviðræðum við Evrópusambandið er ekki lokið fyrr en þeim er raunverulega lokið.“

Pólitískar niðurstöður þurfti að útfæra í lagatexta og þar hafi oft komið upp ágreiningur um túlkun.

„Við þurftum að standa mjög fast á okkar. Til að vera hreinskilinn töpuðum við líka einhverju á því stigi.“

Sérstakur stuðningur fyrir norðurhlutann

Mikilvægasta niðurstaðan að mati Härmälä var sérstakur stuðningsrammi fyrir norðurhluta Finnlands samkvæmt 142. grein aðildarsamningsins.

„Það var lykilatriði.“

Evrópusambandið hafi verið tilbúið að viðurkenna að norðlæg svæði þyrftu sérstaka meðferð, en mun tregara til að veita undanþágur fyrir allt landið.

Stuðningsfyrirkomulag í suðurhluta Finnlands þurfti hins vegar að semja um aftur og aftur eftir aðild.

Stærri bú en matvælakeðjan hélt velli

Að mati Härmälä hefur finnskur landbúnaður í meginatriðum staðið af sér breytingarnar.

„Okkur hefur tekist að viðhalda heilu matvælakeðjunum frá akri til borðs.“ Finnsk matvæli eru enn með um 80% markaðshlutdeild innanlands og engin stór framleiðslugrein hefur horfið. Á sama tíma hafa skipulagsbreytingar verið miklar.

Þegar Finnland gekk í ESB var meðalbú með um 15 mjólkurkýr og ræktunarland að jafnaði 20–25 hektarar. Nú eru meðalbú mun stærri og fjárfestingar mældar í mjaltavélmennum fremur en kúafjölda.

„Fjöldi framleiðenda hefur fækkað mjög hratt, sérstaklega í búfjárrækt. En við erum enn hér. Við lifum enn.“

Hlusta má á allt viðtalið hér.

Skylt efni: esb | Útvarp Bændablaðið

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórss...

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...