Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
FIAT Tipo Easy ódýr og rúmgóður
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 15. nóvember 2019

FIAT Tipo Easy ódýr og rúmgóður

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson
Það sem af er ári hef ég mikið verið að prófa vistvæna bíla eins og rafmagns-hybrid og vetnisbíla. Það var kominn tími á að skoða ódýran hefðbundinn bensínbíl sem ætti að henta öllum. 
 
Fyrir valinu var Fiat Tipo frá Ísband í Mosfellsbæ, ódýr, kraftmikill og eyðslugrannur bensínbíll með 5 ára ábyrgð.
 
Hávaðamælingin var mjög hagstæð á 90 km hraða. Hávaðinn var ekki nema á bilinu 70–74 db. 
 
Lítil sparneytin bensínvél sem skilar 120 hestöflum
 
Bíllinn sem prófaður var nefnist Fiat Tipo Easy og er 5 dyra beinskiptur með sex gíra kassa framhjóladrifinn bensínbíll. Ísband pantar mikið af sínum bílum með aukabúnaði sem þeir kalla „Íslandspakka“, en í þeim pakka er m.a. stærri alternator (rafall), öflugri startari, hiti í hliðarspeglum, þokuljós í framstuðara, meira frostþol og ryðvörn fyrir Ísland, sannarlega nauðsynlegur búnaður fyrir íslenskar aðstæður.  
 
Fiat Tipo Easy er með 1,4 lítra bensínvél sem á að skila 120 hestöflum og uppgefin eyðsla í blönduðum akstri er 6,3 lítrar á hundraðið. Ég var með 6,4 lítra eyðslu samkvæmt aksturstölvu í lok prufuaksturs eftir um 100 km akstur í blönduðum akstri og er langt síðan ég prufukeyrði bíl þar sem ég er svona nálægt uppgefinni eyðslu.
 
Þótt hliðarspeglar séu litlir þá sést mjög vel aftur fyrir í þeim.
 
Prufuaksturinn mjög blandaður
 
Fyrst ók ég bílnum innanbæjar nálægt 20–30 km, og fannst mér þessi litla vél vera glettilega lipur og snögg að ná umferðarhraða úr kyrrstöðu. Að leggja í stæði þá fannst mér hliðarspeglarnir sýna vel aftur fyrir bílinn, en bakkmyndavélin frekar lítil. 
 
Næst var það stuttur malarrúntur um Heiðmörkina, en frá grófum vetrardekkjunum komu smásteinar upp undir bílinn að framanverðu og heyrðist aðeins í þeim, en nánast ekkert frá afturdekkjunum. 
 
Á möl er bíllinn ágætur og tekur fjöðrunin hefðbundnar holur ágætlega, en ef maður er of ákafur í beygjum á möl er bíllinn aðeins laus að aftan.
 
Næst var það langkeyrslan sem var upp að Hellisheiðarvirkjun og til baka. Á Sandskeiðinu var tekin hávaðamæling inni í bílnum á 90 km hraða og þrátt fyrir að vera á grófum vetrardekkjum mældist hávaðinn inni í bílnum ekki nema á bilinu 70–74 db. Á þessari leið sá ég oft á aksturstölvunni eyðslu upp á 2,5–3,5 lítra á hundraðið þannig að ég mundi halda að þessi bíll sé mjög hagkvæmur í lengri keyrslum.
 
Útbúnaður, öryggi og þægindi
 
Verðið á bílnum segir mikið til um aukabúnað og þægindi. Þrátt fyrir lágt verð er mikið af góðum dýrum búnaði í bílnum s.s. stöðugleikastýring, rafknúinn bakstuðningur í bílstjórasæti, rafdrifnar rúður framan og aftan, hiti í framsætum, USB tengi, AUX tengi og á a.m.k. tveim stöðum var 12 volta rafmagnstengi, svo eitthvað sé nefnt.
 
Bíllinn er rúmgóður að innan, fótapláss gott. Farangursrými ágætt (440 lítrar) og varadekk í fullri stærð (sem er að verða ansi fáséð í nýjum bílum). 
 
Eftir margar yfirferðir yfir bílinn var aðeins tvennt sem ég fann til að gefa bílnum mínus og það voru frekar litlir mínusar. Framsætin fannst mér ekkert sérstaklega þægileg og skjárinn fyrir bakkmyndavélina fannst mér vera lítill (sennilega bara væll í mér þar sem sjónin er byrjuð að gefa sig).
 
Tvær útgáfur af  Fiat Tipo
 
Fiat Tipo Easy er í boði bæði bensín og dísil. Bensínbíllinn sem prófaður var mengar aðeins meira en dísilbíllinn og eyðir meira, en er ódýrari og kostar ekki nema 3.090.000. Dísilbíllinn er líka 120 hestöfl og með 1,6 l dísilvél. Hann er beinskiptur og uppgefin eyðsla á honum er 3,8 lítrar á hundraðið af dísilolíu í blönduðum akstri og kostar hann 3.490.000.
 
Helstu mál og upplýsingar:
 
Þyngd 1.195 kg
Hæð 1.490 mm
Breidd 1.790 mm
Lengd 4.360 mm
 

 

7 myndir:

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...