Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ferskt íslenskt grænmeti og salat
Mynd / BGK
Matarkrókurinn 25. september 2020

Ferskt íslenskt grænmeti og salat

Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson

Nú stendur uppskerutími sem hæst og grænmeti flæðir í búðir.  Þeir sem eru með matjurtagarð keppast við að elda og borða uppskeru haustsins sem er bragðgóð skemmtun.


Rauðrófusalat með geitaosti

Hráefni

  • 1 stk. íslensk rauðrófa skorin þunnt
  • 1 msk. balsamic edik
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 msk. ferskt kóríander
  • salt og pipar
  • Geitaostur eða annar góður ostur eftir smekk

Fyrir fjóra

Litríkt rauðrófa er ferskt og góð með öllum grillmat, má einnig nota hvaða annað grænmeti sem mann langar ef eitthvað í uppskriftinni er ekki til.

Aðferð

Má ekki vera einfaldara, allt græn-metið er skorið þunnt eða skorið í litla bita og smakkað til með olíunni, balsamic og kryddunum.

Toppað með geitaost eða bragðgóðum íslenskum osti eins og Tindi.

Avókadó og tómatar

Þetta er eins og suður-amerískt tómat-moxarella og er hægt setja fersk krydd eins og kóriander í stað basil sem er notað á Ítalíu.

Hráefni

  • 300 g þroskaðir tómatar
  • 1 ferskt avókadó eða lárpera
  • 1/2 tsk. hvítlauksmauk
  • 1 msk. kóríander ferskt
  • 1/2 safi úr 1/2 lime
  • 3 msk. ólífuolía
  • salt og pipar

Fyrir fjóra

Þetta ferska og einfalda salat eða forréttur er alveg hægt að leika sér með og ef maður á ekki eitthvað eitt hráefni þá er bara að nota hugmyndaflugið.

Það er frábært með hvaða mat sem er eða sem morgunverður með steiktu eggi.

Aðferð

Allt hráefnið skorið í svipaða stærð og blandað vel saman.

Hrátt og ferskt salat með framandi litríku grænmeti

Hráefni

  • 1 stk. blómkálshaus skorinn í sneiðar langsum (hægt að fá sum staðar í nýjum litum)
  • 1 stk. rauð paprika skorin gróft niður
  • 1 stk. eggaldin skorið gróft niður
  • 2 stk. rauðlaukur skorinn gríft niður
  • 1 dl ólífuolía
  • ½ dl balsamic
  • 50 g ólífumauk
  • ½ búnt basil ferskt
  • salt
  • 1 stk. grilluð sítróna

Þetta grænmeti stendur alltaf fyrir sínu, bæði hér og við Miðjarðarhafið.

Aðferð

Byrjið á að grilla eða steikja á pönnu allt grænmeti þar til létt eldað. Á að vera hálfhrátt. Kryddið með ögn af  ólífuolíu, balsamic, basil og einni teskeið af salti í um fimm mínútur. Sigtið frá vökvann.

Eggjakaka með nýju grænmeti

Hráefni

100 g sætar eða venjulegar kartöflur (skrældar, skornar í bita)

2 msk. blaðlaukur (saxaður)

2 msk. rauð paprika (skorin í fína strimla)

1 stk. hvítlauksrif (fínt saxað)

½ tsk. cumminduft (ath. – ekki sama og kúmen)

1 msk. kóríander, gróft saxaður

salt og pipar

6 egg

Fyrir 4–6

Sætar kartöflur eru ekki aðeins hollar heldur líka skemmtileg tilbreyting við þessar venjulegu. Þær má líka krydda skemmtilega eins og hér er gert.

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar (ca 15 mín., fer þó eftir stærð) og skrælið. Þá er panna hituð vel og kartöflurnar steiktar í smá ólífuolíu þar til þær taka smá lit. Þá er restin af grænmetinu og cummin-duftinu bætt út í og kryddað með salti og pipar. Bætið við gróft söxuðum ferskum kóríander alveg í lokin.

Setjið í pönnu og hellið eggi yfir, bakið í ofni þar til eggið er stíft.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...

Heimsmethafinn Arney
23. júní 2023

Heimsmethafinn Arney

Réttalistinn 2026
2. september 2026

Réttalistinn 2026

Flottasti strumpastrætóinn
12. október 2026

Flottasti strumpastrætóinn

Stjörnuspá vikunnar
8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f