Fagráð vill banna eggheimtu í íslenskri hrossarækt
Á faglegum nótum 16. október 2026

Fagráð vill banna eggheimtu í íslenskri hrossarækt

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson
Þorvaldur Kristjánsson.

Fagráð í hrossarækt hefur tekið afstöðu gegn eggheimtu úr hryssum og svokallaðri smásjárfrjóvgun í íslenskri hrossarækt. Ákvörðunin byggir fyrst og fremst á sjónarmiðum um velferð hrossa en einnig á áhyggjum af áhrifum þessara aðferða á erfðafjölbreytileika íslenska hestsins.

Á fundi fagráðs í vor var farið vel yfir nýjustu tækni í frjósemi hrossa og fékk ráðið faglegt álit dýralækna sem hafa frjósemi að sérsviði. Þar var meðal annars fjallað um eggheimtu, svokallaða OPU (en. ovum pick-up) og eina gerð tæknifrjóvgunar sem er kölluð smásjárfrjóvgun á íslensku (skammstafað ICSI á ensku og stendur fyrir intracytoplasmic sperm injection). Aðferðirnar hafa ekki verið teknar upp í hrossarækt hér á landi en eru þekktar erlendis. Í þessum pistli verður farið yfir hvað þessar aðferðir fela í sér og af hverju fagráð leggst gegn þeim.

Eggheimta og smásjárfrjóvgun

Eggheimta felst í því að óþroskuðum eggfrumum er safnað beint úr eggjastokkum hryssu. Það er gert með ómskoðunarstýrðri nál sem stungið er í gegnum skeiðarvegginn að eggjastokkunum. Aðgerðin fer fram undir slævingu eða svæfingu og felur í sér að eggbú eru stungin ítrekað og skoluð til þess að ná eggfrumum. Einn af kostum aðferðarinnar er að hægt er að endurtaka hana með stuttu millibili og safna þannig mörgum eggfrumum frá sömu hryssu á tiltölulega skömmum tíma. Í kjölfarið er hægt að beita einni gerð tæknifrjóvgunar sem er kölluð smásjárfrjóvgun, þar sem einni sáðfrumu er sprautað beint inn í eggfrumu á rannsóknastofu. Ef frjóvgun tekst er fósturvísir ræktaður í nokkra daga og síðan annaðhvort frystur eða fluttur í meðgöngumóður. Tæknin getur þannig aukið verulega möguleika á að nýta erfðaefni ákveðinna einstaklinga. Hún getur meðal annars gert kleift að fá mun fleiri afkvæmi undan verðmætum hryssum en með hefðbundnum aðferðum og nýta erfðaefni stóðhesta sem hafa litla frjósemi.

Velferð hryssunnar vegur þyngst

Þrátt fyrir þessa tæknilegu möguleika taldi fagráð ástæðu til að staldra við og horfa sérstaklega til þeirra áhrifa sem aðferðirnar geta haft á velferð hryssna. Eggheimta er ífarandi inngrip og getur haft í för með sér verki, bólgu og hita og í sjaldgæfum tilvikum alvarlegri fylgikvilla. Þá vakna sérstakar spurningar um velferð þegar aðgerðin er endurtekin oft á sömu hryssu til þess að hámarka fjölda eggfrumna sem hægt er að vinna úr henni. Fagráð telur því að tæknilegir möguleikar einir og sér eigi ekki að ráða för þegar kemur að ákvörðunum um ræktun íslenska hestsins. Meta þurfi einnig hvort notkun aðferðanna sé í samræmi við þau velferðarsjónarmið sem eiga að liggja til grundvallar hrossarækt. Má sem dæmi nefna að þessar aðferðir eru bannaðar alfarið í hrossarækt í Svíþjóð en það er gert einmitt á grundvelli dýravelferðar. Niðurstaða fagráðs var því að ekki eigi að heimila eggheimtu og smásjárfrjóvgun í íslenskri hrossarækt.

Erfðafjölbreytileiki einnig til skoðunar

Ákvörðunin snýst þó ekki eingöngu um velferð einstakra hryssna. Fagráð fór einnig yfir möguleg áhrif aðferðanna á íslenska hrossastofninn í heild. Eggheimta og smásjárfrjóvgun geta gert ræktendum kleift að framleiða mjög mörg afkvæmi undan fáum, sérstaklega eftirsóttum einstaklingum. Slíkt getur til lengri tíma aukið skyldleikarækt og dregið úr virkri stofnstærð. Þar með geta þessar aðferðir haft neikvæð áhrif á erfðafjölbreytileika stofnsins. Fyrir íslenska hestinn, sem er einangraður stofn og hefur sérstaka stöðu hvað varðar erfðafjölbreytileika, telur fagráð mikilvægt að fara varlega í notkun tækni sem getur hraðað mjög útbreiðslu erfðaefnis úr fáum hrossum.

Ákvörðun sem þarf að festa í sessi

Ákvörðun fagráðs er fyrsta skrefið í ferli sem þarf að ljúka með formlegum breytingum á reglum íslenskrar hrossaræktar. Fagráð mun í framhaldinu vinna tillögu sem lögð verður fyrir aðalfund FEIF á næsta ári. Markmiðið er að fá ákvörðunina staðfesta innan alþjóðlegra samtaka um ræktun íslenska hestsins. Jafnframt verður farið yfir gildandi reglugerð um uppruna og ræktun íslenska hestsins. Í þeirri vinnu verður mótað hvernig ákvörðun fagráðs verði best útfærð í regluverki og hvaða breytingar þurfi að gera til þess að bann við eggheimtu og smásjárfrjóvgun verði formlega staðfest.

Með ákvörðun sinni hefur fagráð þannig tekið skýra stefnu í málinu: Ný tækni í frjósemi verði ekki tekin upp í íslenskri hrossarækt nema tryggt sé að notkun hennar samræmist velferð hrossa og langtímahagsmunum íslenska hrossastofnsins. Bann við eggheimtu og smásjárfrjóvgun er því ekki aðeins ákvörðun um tiltekna frjósemistækni heldur einnig afstaða til þess hvers konar ræktunaraðferða íslenska hestinum er ætlað að búa við til framtíðar.

Höfundur er ráðunautur í hrossarækt hjá RML.

Skylt efni: Hrossarækt

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...