Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Søren Møller Nørregaard sölumaður.
Søren Møller Nørregaard sölumaður.
Mynd / Aðsend
Fréttir 21. apríl 2026

Eyrnamerki greinir atferli kúa

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Sölumaðurinn Søren Møller Nørregaard hefur á undanförnum misserum gert sér upp undir tólf ferðir til Íslands til þess að kynna búnað sem greinir hreyfingar og hitastig kúa.

Búnaður þessi heitir Cow Manager og er festur í eyru kúa. Með því að nema hitastig og hreyfingar gripanna getur skynjarinn gefið upplýsingar um beiðsli og frávik tengd heilsufari. Skynjarinn er upprunninn frá Hollandi en seldur á Íslandi í gegnum Danmörku.

Cow Manager búnaðurinn er ólíkur flestum beiðslisgreinum sem er hægt að festa við hálsband kúa að því leyti að þessi fylgist stöðugt með hitastigi kúnna. Þar með getur skynjarinn gert viðvart með einhverjum fyrirvara ef kýr er líkleg til að verða veik. Jafnframt fylgist neminn með því hversu langur tími dags fer í að jórtra.

Søren bendir á að skynjararnir séu fjölnota og er ætlast til þess að bændur fjarlægi hann sjálfir áður en kýrnar eru sendar í sláturhús, en til þess þarf engin verkfæri. Búnaðurinn er í litlu gúmmíhúsi og hangir á festingu sem er eins og lítið eyrnamerki. Bændurnir eiga nemana sjálfir, en greiði fyrir þjónustuna og aðgang að tölvuforriti í gegnum áskrift. Enn fremur er hægt að sjá upplýsingar um hverja og eina kú myndrænt í gegnum app.

Núna er unnið að því að þýða hugbúnaðinn yfir á íslensku og vonast Søren jafnframt til þess að hægt verði að semja innan tíðar við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins um að upplýsingarnar verði tengdar við gagnagrunn hjá þeim. Sem stendur hafa fimm kúabú á Íslandi tekið þennan búnað í notkun og 37 í Danmörku.

Samhliða sölu á Cow Manager heldur Søren utan um sölu á Agro Tag eyrnamerkjum með örflögu sem notuð eru fyrir sauðfé. Á einni útgáfu þeirra er áfast sýnaglas sem gerir bændum kleift að taka DNA sýni um leið og gripurinn er merktur. Sýnaglasið losnar af og er sent á rannsóknarstofu þar sem meðal annars er hægt að greina hvort sauðkindin beri verndandi arfgerðir gegn riðu.

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...