Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Ný stjórn garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands; Guðni Þór Guðjónsson,
Eygló Björk Ólafsdóttir, Óli Björn Finnsson, Axel Sæland formaður, Halla Sif
Svansdóttir Hölludóttir og Helgi Ármannsson varamaður.
Ný stjórn garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands; Guðni Þór Guðjónsson, Eygló Björk Ólafsdóttir, Óli Björn Finnsson, Axel Sæland formaður, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir og Helgi Ármannsson varamaður.
Mynd / smh
Fréttir 7. mars 2025

Erfið staða námsins

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Þungt hljóð var í fulltrúum garðyrkjubænda á deildarfundi búgreinarinnar vegna stöðu garðyrkjunámsins á Reykjum sem nú er undir Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU).

Í máli Axels Sæland, formanns deildarinnar, kom fram að eftir að starfsmenntanámið á Reykjum var fært frá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2022 hafi skólastarfið farið hratt hnignandi og væri svo komið að það væri verulega vanfjármagnað sem kæmi niður bæði á kennsluaðstöðu og viðhaldi á tækjum og húsnæði. Ein birtingarmyndin væri sú að einungis fjórir nemendur af um 100 væru þar í staðnámi.

„Staða garðyrkjunámsins er afar veik, Reykir búnir að vera olnbogabarn menntakerfisins í langan tíma og ekki séð fyrir endann á því á meðan umgjörðin er ekki betri. En í grunninn vantar varanlega framtíðarsýn fyrir staðinn og námið sem þar fer fram. FSU hefur verið að leita leiða til að aðlaga námið þeirra starfi en finnur hvorki leiðir til hagræðingar né eflingar námsins,“ segir Axel um stöðuna.

Núverandi samningar ekki vaxtarhvetjandi

Axel fór á fundinum yfir sérstakar áherslur garðyrkjubænda í aðdraganda næstu búvörusamninga, eftir að núverandi samningstíma lýkur í lok árs 2026. „Við setjum fjögur atriði á dagskrá sem okkar helstu mál; tryggingarvernd, tollvernd, fjárfestingarstuðning og nýliðun. Öll þessi atriði passa með hinum búgreinunum. Svo þarf búvörusamningur að fara að snúast um hvernig við náum fram aukinni framleiðslu þar sem mikil eftirspurn er eftir öllum afurðum garðyrkjunnar. En núverandi samningar eru ekki vaxtarhvetjandi,“ segir hann.

Um nýliðun segir að hana þurfi að efla og styrkja grundvöll til kynslóðaskipta innan garðyrkjunnar. Núverandi nýliðunarstuðningur sé ógagnsær og ómarkviss og hafi ekki hvetjandi áhrif til nýliðunar. Tryggja þurfi gagnsæi við stuðningsúthlutanir og greiðan aðgang að fjármögnun á lægri vöxtum en þekkist í dag. Nýliðar í garðyrkju taki oftast við búum í rekstri og þurfi þá oft að bera háan viðhalds- eða framkvæmdakostnað á fyrstu árum rekstrarins. Tækniþróun sé ör innan landbúnaðarins og svigrúm þarf að vera fyrir nýliða til að hámarka framleiðni rekstursins með innleiðingu viðeigandi tækninýjunga.

Stöðugur afkomubati í blómum og salati

Ívar Ragnarsson, ráðgjafi hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) á rekstrar- og umhverfissviði, kom á fundinn og gerði grein fyrir rekstrarniðurstöðum garðyrkjunnar fyrir árið 2023. Helstu niðurstöður úr rekstrarverkefninu eru þær að afkoma ársins á heildina litið fyrir alla garðyrkjuna var 22,5 prósentum betri en árið á undan og sú besta á fimm ára tímabilinu þar á undan. Í yfirliti Ívars kom fram að garðyrkjan sé að meðaltali minna skuldsett en aðrar búgreinar. Afkoman var heldur lakari í ylræktinni en rótargrænmetinu á því ári sem skýrist meðal annars af meiri uppskeru í útiræktuninni. Stöðugur afkomubati hefur verið á undanförnum árum í framleiðslu á blómum og salati.

„Rekstrargreining RML er alltaf áhugaverð og þar sýndi sig svart á hvítu núna hvað útiræktin er sveiflukennd grein. Árið 2023 var gott ár í útirækt og allt var með bændum og því verður afar fróðlegt að sjá hvernig 2024 kemur út þar sem það var afar erfitt ár veðurfarslega,“ segir Axel.

Axel áfram formaður

Axel verður áfram formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, en hann er blómabóndi á Espiflöt í Reykholti.

Þau Óli Björn Finnsson í Heiðmörk Laugarási, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir hjá Sólskins grænmeti, Flúðum og Eygló Björk Ólafsdóttir, Vallanesi á Fljótsdalshéraði munu áfram starfa með honum í stjórn. Jón Helgi Helgason, kartöflubóndi á Þórustöðum í Eyjafirði, fer úr stjórn og Guðni Þór Guðjónsson, kartöflubóndi hjá Garðagulli í Þykkvabænum, kemur nýr inn.

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...