Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Tveir stóðhestar meta stöðu sína og styrk hvor annars, nýkomnir í merahólfum. Þeir eru Landi frá Skarði, móálóttur, og Gauti frá Gautavík, bleikálóttur. Þeir fundu sig vera jafningja í þessu tilviki og tókust ekki á. Þess gerðist ekki þörf.
Tveir stóðhestar meta stöðu sína og styrk hvor annars, nýkomnir í merahólfum. Þeir eru Landi frá Skarði, móálóttur, og Gauti frá Gautavík, bleikálóttur. Þeir fundu sig vera jafningja í þessu tilviki og tókust ekki á. Þess gerðist ekki þörf.
Lesendarýni 3. janúar 2023

Erfðaauðlind litanna

Höfundur: Páll Imsland, jarðfræðingur & áhugamaður um íslenska húsdýrastofna

Í yfir 30 ár hef ég verið upptekinn af litum, litaflórunni, litbrigðum og litmynstrum í húsdýrastofnunum okkar, haft þetta á heilanum, eins og gjarnan er sagt.

Páll Imsland

Ég hef pælt í stofnunum og elt uppi hjarðir og hópa til að skoða og skrá fjölbreytni og afbrigði, komið aftur og aftur á sömu staði til að fylgja eftir þróun og breytingum, ljósmyndað fyrirbæri og safnað í skrár og banka. Ég hef átt í samvinnu við fjölda bænda og annarra gripaeigenda um tilraunir í ræktun á fágæti og viðhaldi afbrigða.

Flestar gamlar greinargerðir fyrir hrossalitunum hafa ekki skannað stofninn og kannað og skráð hvað er til í honum og hvað þar er mögulegt. Ég hef því rekist á margt sem ekki var almennt þekkt. Sem betur fer hafa eigendur slíkra fyrirbæra yfirleitt verið jákvæðir og áhugasamir um varðveislu þess.

Ég er ekki erfðafræðingur og hef þess vegna alls ekki fullkomna vitneskju um flóknar erfðir, en þegar slík álitamál koma upp hef ég aðgang að nauðsynlegri vitneskju hjá dóttur minni, Freyju, sem er með æðstu menntagráðu í erfðafræðum húsdýra.

Saman höfum við ýmislegt kokkað og lagt á ráð um viðhald, tilraunir og þekkingaröflun.
Þessi litafjölbreytni í húsdýrastofnunum er svokölluð erfðaauðlind, auðlind einkum í þeim skilningi að stofnarnir eru ríkir af fjölbreytni útlitseiginleika og margir eiginleikanna eru sjaldgæfir. Þeir hafa ekki verið ræktaðir út úr stofnunum hér, eins og gerst hefur þar sem stíf ræktunarstefna er stunduð, að ég tali nú ekki um þar sem ákveðin markmið varðandi æskileg og óæskileg afbrigði hafa verið með í lýsingum á ræktunarmarkmiðum eða þar sem sæðingar hafa skyndilega flýtt framþróun ákveðinna ræktunarmarkmiða. Með því að framfylgja ræktunarmarkmiðum er framkölluð útilokun annarra eiginleika, sem ekki falla undir markmiðin. Ræktun miðar að styrkingu eða hámörkun ákveðinna eðlisþátta en því fylgir veiking eða útilokun annarra þátta.

Öll fjölbreytni í dýrastofnum okkar er auðlind vegna þess að úr fjölbreytileikanum er hægt að spila á margvíslegan hátt og rækta upp afbrigði og bæta úr ágöllum eða jafnvel framkalla ný verðmæti. Einnig vegna þess að í síbreytilegum heimi getur þurft að aðlaga staðbundna stofna að nýjum aðstæðum og jafnvel til nýrra nota. Eitt skýrasta dæmið sem við þekkjum af slíkum toga er ræktun íslenska nútímareiðhestsins út af gamla íslenska hrossastofninum þegar dagar íslenska hestsins virtust jafnvel vera taldir með tilkomu vélaldar í landbúnaði og samgöngum. Þá var tekið að rækta einangraðan stofn, sem við blasti nánast útrýming, hann ræktaður upp í feiknavinsælan reiðhest af bestu gerð með alheimsútbreiðslu.

Og hvers hef ég svo orðið áskynja og er einhver árangur af þessu brölti mínu?

Það fer ugglaust eftir því hver leggur matið og hver svarar. En sjálfur ætla ég að tæpa á eftirfarandi atriðum.

Aukin almenn vitneskja um fjölbreytileika lita og litmynstra í íslensku stofnunum og ýmsa möguleika sem því fylgja er að sjálfsögðu meginárangurinn. Flestir telja að litaflóran í stofnunum sé vel þekkt og ekki ástæða til að grufla mikið meira í henni. Samt eru enn möguleikar á óvæntum litafyrirbærum sem reyndustu hrossabændur og hestamenn hafa ekki einu sinni séð eða tekið eftir, hafi þeir komið upp.Í upphafi fékk ég sterkan áhuga á fyrirbærinu „að fara litum“ eins og það hét forðum og því litmynstri hrossa sem í því er fólgið. Ég hef eiginlega verið sjálfskipaður sendiherra litföróttra hrossa á Íslandi alla tíð síðan. Ástæðan er sú að á þeim tíma sem þessi baktería greip mig voru litförótt hross svo fátíð í landinu að mynstrið var á barmi útrýmingar. Þegar ég fór að skoða þessi fáu sem til voru, þá sá ég að gamlar lýsingar á fyrirbærinu voru rangar og menn skildu ekki hvernig stóð á því að hrossin breyta um lit. Nú eru bráðum 30 ár frá því ég upplýsti leyndarmálið og nú er þetta auðskilið mál og litföróttum hrossum hefur fjölgað úr fáeinum tugum í mörg hundruð í landinu. Þau eru orðin vinsæl á erlendri grund. Svo ég dragi ekkert undan og hljóti verðskuldaðan montstimpil fyrir: þá eru allar líkur á því að ég hafi komið í veg fyrir að þetta litmynstur hyrfi úr stofninum.

Þá vil ég nefna bæði Botnahrossin og alhvíta hesta. Okkur var kennt að íslenskir hestar fæddir hvítir væru ekki til. En nú hef ég upplifað tvo slíka, sem fæddir eru alhvítir og halda þeim lit og nokkra nærri alhvíta. Ég gerði tilraunir með báða þá alhvítu og kom þá í ljós að þeir eru svona litir vegna þess að þeir bera bæði erfðir fyrir slettuskjóttu og venjulegu skjóttu og eru alls ekki erfðafræðilega hvítir. Í þeirra tilvikum hefur engin litarefnisframleiðsla komist í gang í fóstrinu og gripirnir eru því alþaktir hvítum flekkjum, ef orða má það svo. Þetta gerist þó alls ekki hjá öllum hrossum sem erfa báða þessa skjóttu eiginleika.

Ég hef eingöngu haft hér orð á því sem ég hef orðið áskynja í hrossastofninum. Um hina dýrastofnana okkar gildir ekki alveg það sama. Litbrigðaflóran og margbreytileikinn hjá þeim er aðeins minni en hjá hrossunum okkar. Þó er þar margt athyglisvert og skemmtilegt að grufla í, eins og myndirnar kannski sýna.

19 myndir:

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...