Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Endurlit
Hannyrðahornið 19. mars 2025

Endurlit

Þessi peysa er endurunnin, var hönnuð fyrir nokkrum áratugum en ástæða þótti til endurhönnunar.

Gamla uppskriftin var með lengri tungum og var gefin upp fyrir Álafosslopa eða þrefaldan plötulopa. Þessi er aftur á móti fyrir tvöfaldan lopa, sem er mun algengari þykkt á peysum nútímans. Á gömlu peysunni eru margir litir i hverri mynsturtungu, en hér er einn litur í hverri, sem gefur peysunni allt annan svip. Það er gaman að spreyta sig á að setja saman liti í þessa. Það eru gefnir upp 7 litir í mynstrið, en það má líka alveg fækka þeim í fjóra eða fimm, eftir smekk hvers og eins.

Stærðir: S M L XL XXL
Yfirvídd: 88 96 105 112 120

Efni:400-400-450-450-500g Þingborgarlopi í sauðalit í aðallitinn og 4-7 litir. Slettuskjótt í mynsturliti. Prjónað er úr lopanum tvöföldum, Slettuskjótt er tvöfaldur Þingborgarlopi í 50 g dokkum. Í tvo fyrstu litina þarf 50 g af hvorum lit en minna af hinum litunum. Slettuskjótt fæst einnig í 100 g pakkningum með nokkrum litum saman.

Ef notaður er lopi frá Ístex verður að gæta að prjónfestu, ekki er sami grófleiki á honum og á Þingborgarlopanum.

Sokkaprjónar 4 og 5 mm.
Hringprjónar 4 og 5 mm 40, 60 og 80 cm langir.

Prjónfesta: 14 l og 22 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm.

Önnur prjónastærð getur hentað, allt eftir því hvort prjónað er fast eða laust, finnið það út með því að prjóna prufu. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Lesið uppskriftina yfir áður er hafist er handa.

Bolur: Fitjið upp með aðallit 124- 136-148-160-168 l á 4 mm 80 cm hringprjón og prj. stroff í hring 6-8 sm 2 sl og 2 br. Eins er hægt að hafa aðra stroffgerð að eigin vali og eins er hægt að hafa rendur í stroffi til skrauts. (Lengd á bol er smekksatriði, mælið viðkomandi og metið hvað bolur á að vera síður.)

Á dömupeysu er fallegt að gera ,,mitti“ á peysuna með því að taka úr á bol. Setjið merki í báðar hliðar, takið úr 2 l hvoru megin, *prj. 2 l saman, prj. 1 l, prj. 2 l saman*. Fyrst er tekið úr er bolur mælist 8-12 cm og síðan 2x aftur með 5 cm á milli. Alls eru teknar úr 12 l. Prj. 5 cm, þá er aukið út aftur samsvarandi og með sama millibili og tekið var úr og endað með sama lykkjufjölda.

Ermar: Fitjið upp með aðallit 32-32- 36-36-40 l á 4 mm sokkapjóna og prjónið stroff í hring 6-8 cm. Skiptið yfir á 5 mm sokkaprjóna þegar stroffi er lokið og aukið strax um 2 l undir miðri ermi, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 l fyrir síðustu lykkju í umf). Endurtakið aukningu 7-7-8- 9-9 x upp ermi, með u.þ.b. 8 umf. á milli, þar til 48-48-54-56-60 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta 5 mm hringprjóninn á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 44-52 cm. (Mælið handlegg og metið hve ermin á að vera löng)

Axlastykki:Sameinið nú bol og ermar á 5 mm 80 cm langa hringprjóninn. Setjið 5-5-5-5-6- síðustu l og 5-5-5-6-6- fyrstu l á báðum ermum á prjónanælu. Setjið 10-10-10-11-12 af bol á prjónanælu þar sem umferð byrjar vinstra megin á bol. Prjónið fyrri ermina við bolinn 38-38-44-45- 48 l, prjónið næstu 52-58-64-69-72 l af bol og setjið næstu 10-10-10-11-12 l á hjálparprjón. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hana. Prjónið síðan 52-58-64-69-72 l af bol, þá eru 180-192-216-228-240 l á prjóninum. Prj. mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til u.þ.b. 64-70 l eru eftir á prjóninum, þá er skipt á 4 mm 40 cm hringprjón og prj. 6-8 sm stroff og 4 umf. slétt prjón, fellið af. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum. 

Þvottur: Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.

Styttingar: prj. = prjónið, l = lykkja, umf. = umferð, cm = sentímetrar, Endurlit sl. = slétt, br. = brugðið, g = grömm.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f