Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Stafrænt víðernakort WRI af Íslandi er afar nákvæmt og tekur mið af þeirri samfellu sem fylgir dvínandi fjarlægð samhliða blæbrigðum landslagsins. Þannig sést breytileiki víðernagæða og er niðurstaðan sýnd sem Wilderness Quality Index (WQI) sem skipt er upp í kjarna (blátt), hjúpsvæði (grænt) og umskiptasvæði (gult). Svæði sem ekki teljast til óbyggða er með gráum lit.
Stafrænt víðernakort WRI af Íslandi er afar nákvæmt og tekur mið af þeirri samfellu sem fylgir dvínandi fjarlægð samhliða blæbrigðum landslagsins. Þannig sést breytileiki víðernagæða og er niðurstaðan sýnd sem Wilderness Quality Index (WQI) sem skipt er upp í kjarna (blátt), hjúpsvæði (grænt) og umskiptasvæði (gult). Svæði sem ekki teljast til óbyggða er með gráum lit.
Skoðun 5. júní 2026

Ekki sama hvernig óbyggð víðerni eru kortlögð

Höfundur: Ólafur Hauksson
Ólafur Hauksson.

Afar nákvæmt kort af óbyggðum víðernum Íslands hefur verið til síðan 2024. Wildland Research Institute (WRI) við háskólann í Leeds annaðist þessa kortlagningu að frumkvæði íslenskra náttúruverndarsamtaka til að mæta brýnni þörf fyrir kortlagningu óbyggðra víðerna með alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði. Víðernakort WRI er aðgengilegt á netinu og gagnagrunnar þess eru öllum opnir. Nú þegar hafa 75 aðilar tekið gagnagrunninn í notkun, en þar á meðal eru opinberar stofnanir, fyrirtæki á orkumarkaði, verkfræðistofur og háskólar.

Það kemur því á óvart að umhverfisráðuneytið hafi kynnt allt aðra og mun lakari aðferðarfræði í drögum að reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna í Samráðsgátt stjórnvalda. Fjallað var um þessi reglugerðardrög í 9. tbl. Bændablaðsins.

Reglugerð mælir með gölluðum vinnubrögðum

Engin íslensk náttúruverndarsamtök taka í umsögnum sínum undir lausnina sem kynnt er í reglugerðardrögunum. Þau benda á að sú aðferð byggi á hugmyndum um einfaldar línur með skörpum skilum víðernaskerðingar, sem byggjast á tilteknum kílómetrafjölda frá mannvirkjum.

Helsti ágalli reglugerðardraganna er sá að aðferðin styður ekki við markmið um vernd víðerna. Friðlýsing svæða sem óbyggðra víðerna muni byggjast á kortlagningu þeirra. Til skýringar má nefna dalinn Hjálpleysu á Austurlandi. Landeigendur lögðust gegn virkjunarrannsóknum Orkusölunnar í dalnum og vildu frekar friðlýsa. Dalurinn myndi uppfylla skilmála til friðlýsingar samkvæmt náttúruverndarlögum og víðernakorti WRI. En með aðferðarfæðinni sem lögð er til í reglugerðinni teljast þar engin víðerni. Þetta er í hrópandi mótsögn við upplifun þeirra sem til þekkja og landeigendur segja dalinn „mjög ósnortinn“ í Morgunblaðinu 20. maí síðastliðinn.

Aðferðafræði sem gefur rétta mynd

Það sem gerir aðferðafræði WRI betri er að hún gefur rétta mynd af þeirri samfellu sem fylgir dvínandi fjarlægð frá mannvirkjum samhliða blæbrigðum landslagsins. Þá skiptir líka máli að aðferð WRI er vísindalega viðurkennd og hefur verið notuð við kortlagningu víða um heim, þar á meðal í Bandaríkjunum og Kína.

Engin spurning er um nauðsyn kortlagningar víðernanna. Víðernakort WRI er þegar til og komið í almenna notkun. Því kemur á óvart að umhverfisráðuneytið skuli leggja til þá gölluðu og gamaldags aðferðafræði sem raun ber vitni. Og ekki síður vegna þess að sérfræðingur ráðuneytisins skilaði mikilli skýrslu um kortlagningu víðernanna og hvatti þar til þess að tekið verði mið af þeim landslags-, sýnileika- og fjarlægðarþáttum sem WRI kortin nota við framtíðarkortlagningu íslenskra víðerna. Sérfræðingurinn, Michael Bishop, sagði að aðferðafræði WRI væri miklu nákvæmari en einfaldir kílómetraradíusar. 

Náttúrufræðistofnun spyrnir við fótum

Ljósið í myrkrinu er þó að Náttúrufræðistofnun Íslands, sem á að sjá um kortlagningu víðernanna, nefnir sérstaklega í umsögn sinni að sannreyna þurfi aðferðafræði reglugerðarinnar, til að tryggja að hún uppfylli anda laganna. Með öðrum orðum, fagfólk Náttúrufræðistofnunar ætlar ekki að kyngja því að óreyndu að óbyggð víðerni landsins verði skilgreind á landakorti með sirkli og reglustiku.

Aðgengi að víðernakortinu

Hægt er að skoða víðernakort WRI í mikilli upplausn á vefsja.is en þar er kortið að finna undir „Landslag og víðerni“ og á map.is undir „Ýmis kortagögn“. Hægt er að hlaða GeoTIFF og Shapefile gagnagrunnum kortsins niður af vefsíðu þess, vidernakort.is.

Höfundur er Ólafur Hauksson, talsmaður fyrir víðernakort Wildland Research Institute (WRI) við háskólann í Leeds.

Skylt efni: Viðerni

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f