Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Dýravelferð um áramót
Fréttir 29. desember 2021

Dýravelferð um áramót

Höfundur: Vilmundur Hansen /MAST

Áramótin nálgast óðfluga með öllum sínum hefðum og gleðskap og þá er nauðsynlegt að minna sérstaklega á dýrin, sem eru stór hluti af okkar samfélagi. Ótal dæmi eru um ofsahræðslu og slys á dýrum í kringum áramótin og því vill Matvælastofnun biðja fólk um að taka tillit til þeirra og einskorða notkun á flugeldum og öðru sem veldur skyndilegum hávaða, blossum og reyk, við gamlárskvöld og þrettándakvöld.

Dýraeigendur eru líka hvattir til að kynna sér hvað þeir geta gert til að draga úr vanlíðan dýranna og slysahættu.

Dýr hræðast flugelda

Það er gamall siður að skjóta upp flugeldum um áramótin og er það gott og blessað. Margur styrkir gott málefni eða hjálparstarf og gleður sjálfan sig og aðra í leiðinni með ljósadýrðinni. Hins vegar gleður ljósadýrðin og hávaðinn sem flugeldum fylgir því miður sjaldnast ferfætlingana, og eiga margir þeirra það til að verða skelfingu lostnir. Dýraeigendur, sérstaklega þeir sem eiga hunda, ketti og hesta nálægt þéttbýli, kannast vel við þann óróa og angist sem dýr þeirra ganga í gegnum á þessum tíma vegna látanna sem fylgir þessum flugeldaskotum. Dæmi eru um að hundar sleppi og hlaupi fyrir bíla eða á fjöll.

Dýr í úthaga eins og nautgripir og hestar eru sérlega í hættu. Mýmörg dæmi eru um að hestar hafi fælst við flugelda, brotist út úr girðingum og hlaupið til fjalla eða í veg fyrir bílaumferð, og valdið slysum á sjálfum sér og öðrum. Hestar eru mikil hópdýr svo ef einn hleypur af stað fylgir gjarna allur hópurinn. Einnig eru margir komnir með hesta á hús á þessum tíma og farnir að stunda útreiðar. Alls ekki ætti að nota skotelda í nálægð við hesthúsahverfi á meðan bjart er. Óþarfi er að lýsa því hvað getur gerst ef flugeldum er skotið upp rétt hjá eða yfir fólki við útreiðar.

Sýnið tillitsemi

Það er því einlæg ósk Matvælastofnunar að almenningur sýni þá tillitssemi við dýrin og eigendur þeirra að stunda eingöngu flugeldaskot, hvellhettusprengingar og notkun á ýlum á gamlárskvöld og/eða á þrettándanum. Foreldrar og forráðamanna barna og unglinga eru sérstaklega beðnir um að sýna gott fordæmi og útskýra áhrif sprenginga og blossa á dýr.

Ef skoteldar eru notaðir utan þessara tveggja kvölda er afar mikilvægt að virða tímamörk sem gefin eru. Samkvæmt reglugerð um skotelda er notkun óheimil nema frá og með 28. desember til og með 6. janúar og á því tímabili alltaf bönnuð frá kl 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir, aðeins að undanskilinni nýársnótt.

Dýraeigendur geta gert ýmislegt til að draga úr vanlíðan dýranna og slysahættu. Eftirfarandi eru helstu ráð:

Hestum og öðrum búfénaði sem komnir eru á gjöf í húsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi.

Gott er að gefa hestum eða nautgripum vel sem eru á útigangi og halda þeim á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá.

Eigendur ættu helst að fylgjast með gripunum ef því verður við komið, eða a.m.k. vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.

Gæludýr

Í þéttbýli, eða þar sem er verið að nota skotelda, er best að halda köttum alveg inni dagana í kringum áramót og hafa hunda alltaf í taumi þegar þeim er hleypt út, þó það sé bara út í garð.

Hunda er best að viðra vel árla dags í birtu svo þeir verði þreyttir um kvöldið og ef þeir eru mjög hræddir þá gjarna fara með þá í göngu fjarri þéttbýli. Svo að kvöldi er mjög snjallt að viðra stutt meðan skaupið er, þá er yfirleitt afar rólegt.

Dýr sem sýna mikla hræðslu ber ekki að skilja eftir ein. Misjafnt er hvort hrædd gæludýr vilja félagsskap eigandans eða hvort þau vilji skríða í felur. Ef þeim líður betur í felum er rétt að leyfa þeim það. Allra mikilvægast er að dýrin sleppi ekki út.

Gott er að tala rólega en glaðlega við dýrin, til að sannfæra þau um að heimurinn sé ekki að farast. Jafnvel er hægt að gefa þeim smá dýranammi meðan eða strax á eftir hvelli, svo þau tengi þessi læti einhverju jákvæðu. Strokur og snerting eiganda róar einnig flest dýr og veitir þeim styrk.

Á meðan það versta gengur yfir ber að halda dýrunum inni, gjarna í rými sem þau þekkja, loka og byrgja glugga og hafa tónlist í gangi. Yfirleitt er best að hafa ljósin kveikt, til að draga úr ljósaglömpum. Fyrir hunda er jafnvæl hægt að prófa að nota eyrnatappa, sumir sætta sig við það, aðrir ekki.

Ef ofangreint er ekki talið nægjanlegt, þá er gæludýraeigendum ráðlagt að tala við sinn dýralækni vel tímanlega fyrir áramót og fá ráðleggingar. Hægt er að fá lyfseðil fyrir kvíðadempandi lyf og þá er mikilvægt að byrja ekki meðhöndlun of seint þegar dýrið er komið í hræðslukast, þá er virknin mun takmarkaðri. En varað er við að gefa dýrum nokkur lyf nema í samráði við dýralækni.

Þó hundar virðist rólegir skyldi ekki taka þá með út, hvorki á brennur né til að skjóta flugeldum. Blys og rakettur geta skotist í allar áttir og fólk getur stundum verið óútreiknanlegt, þannig að slíkt umhverfi er alls ekki hundavænt. Munið að hundar heyra mun betur en við. Hundur sem verður fyrir mjög slæmri upplifun getur borið skaða af því ævilangt. Einnig þó hundur virðist rólegur getur hann í raun verið ofsahræddur, en verið í hálfgerðu lömunarástandi af hræðslu.

Ungum dýrum sem eru að upplifa sín fyrstu áramót þarf að sýna sérstaka aðgát. Dagarnir fyrir áramót geta gefið vísbendingu um hvað verða vill.

Ef reynslan sýnir að dýr verður ofsahrætt við lætin kringum áramótin er ráðlagt að byrja þjálfun fyrir næsta ár einhverjum mánuðum fyrr. Hljóð af sprengjum og látum er t.d. hægt að finna á YouTube sem er hægt að venja þau við hægt og rólega, og samtímis nota jákvæða styrkingu. Of seint er að byrja slíka þjálfun nokkrum dögum fyrr og getur það gert illt verra.

Einnig fæst hjá mörgum dýralæknum róandi lykt ýmist í hálsbandi, eða til að setja í innstungu og er gott að setja slíkt upp ekki seinna en 2 vikum fyrir áramót.

Allra mikilvægast er alltaf að dýrin séu í öruggu umhverfi og njóti stuðnings eigenda sinna.

 

Skylt efni: Áramót dýrahald

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...