Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn
Mynd / Úr safni
Fréttir 15. apríl 2026

Djúpborunarverkefni fékk hæsta styrkinn

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Áfram heldur Loftslags- og orkusjóður að styðja við nýsköpun og tækiþróun í nýtingu jarðvarmans og nýlega var 600 milljónum úthlutað til 11 verkefna á þessu sviði, bæði til almennrar húshitunar og djúpborunarverkefna.

Um framhaldsstuðningsverkefni er að ræða frá síðasta vori þegar átakið Jarðhitinn jafnar leikinn var kynnt, sem felst í stuðningi við leit og nýtingu jarðhita til húshitunar í þeim tilgangi að jafna stöðu þeirra 10% heimila landsins sem ekki geta nýtt sér jarðhita til húshitunar. Heildarstuðningsupphæðin þá var einn milljarður og var þeirri upphæð úthlutað síðasta haust til 18 verkefna.

Jarðhitakerfið stækkað niður á við

Nú er úthlutað einnig til verkefna sem falla undir þróun á tækni til viðhalds á hefðbundnum búnaði, smáskjálftarannsóknir, bætta nýtingu varma og nýtingu varmadælna við jarðhitakerfi. Mörg verkefnanna snúast um djúpborun.

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráð- herra undirritaði samstarfsyfirlýsingu við þrjú íslensk orkufyrirtæki, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku, á málstofu á ráðstefnunni Hringborði norðurslóðanna í október um að flýta þróun næstu kynslóðar jarðvarmakerfa og djúpborunarverkefna, sem hluta af langtímastefnu Íslands.

Þá sagði ráðherra að samstarfsyfirlýsingin væri vegna verkefnisins Iceland Deep Drilling Project-3 (IDDP-3), sem gengi út á að bora dýpra ofan í jarðhitakerfi á háhitasvæðum en áður hefur verið gert. Þar með væri virkjuð varmaorka í dýpri lögum og jarðhitakerfið stækkað niður á við.

IDDP-3 er þriðja hluti IDDP-verkefnisins og miðast við boranir á Hengilssvæðinu. IDDP-1 var fyrsta verkefnið við Kröflu og IDDP-2 var á Reykjanesi en verkefnið allt hefur verið í þróun síðustu 25 ár.

Sagði ráðherra á málstofunni að Orkuveita Reykjavíkur og samstarfsaðilar verkefnisins myndu hefja boranir strax á þessu ári í Henglinum.

Djúpborun á Nesjavöllum

Stærsti styrkurinn, tæplega 310 milljónir króna, rennur einmitt til verkefnisins IDDP3, djúpborunar á Nesjavöllum sem er samstarfsverkefni Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjunar, HS Orku og stjórnvalda. Markmiðið þess er að bora dýpra ofan í jörðina og hagnýta jarðhita við hærra hitastig en áður hefur reynst mögulegt. Í tilkynningu úr ráðuneytinu segir að takist að virkja raforku með þessum hætti yrði unnt að margfalda framleiðslugetu hverrar borholu á komandi árum. Ísland standi framarlega í rannsóknum og þróun á þessu sviði.

Næsthæsta styrkinn hlýtur Orkubú Vestfjarða; 160 milljóna króna stuðning til jarðhitanýtingu á Ísafirði og svo 25 milljónir til borana á Gálmaströnd yst í Steingrímsfirði. Seinna verkefnið snýst um að skapa forsendur til aukinnar atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar í Strandabyggð.

Skylt efni: Styrkir | jarðhiti

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...