Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
CORVUS TERRAIN Dx4 CAB er ódýr vinnubíll. 
CORVUS TERRAIN Dx4 CAB er ódýr vinnubíll. 
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 30. mars 2020

CORVUS TERRAIN Dx4 CAB

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Enginn landbúnaðartækja- og dráttar­­vélainnflytjandi er eins duglegur að bjóða mér í „opin­bera“ heimsókn eins og þeir í Vallar­braut. Mér hefur aldrei leiðst að koma þar í heimsókn, þeir snúast í kringum mig og sjá til þess að kaffiglasið sé alltaf næst­um fullt, benda mér á nýjar vörur og dót sem þeir eru að flytja inn.

Það nýjasta hjá þeim er bíll sem ég leyfi mér að kalla „bóndabíl“ á verði sem ekki hefur sést áður á sambærilegum bílum.

Verð gott, en samt of hátt

Corvus vinnubíllinn kostar 3.284.000 fyrir utan skatt (sam­bærilegir bílar frá samkeppnisaðilum eru á bilinu 3,7– 4,5 milljónir).

Corvus er skráður hjá Sam­göngustofu sem dráttarvél, en tollaður sem breyttur pallbíll hjá Tollstjóra. Í öllum Evrópulöndum, nema á Íslandi, fer þessi dráttarvél í tollaflokk með „öðrum dráttarvélum“ enda er hún með „European Homologation T1B,“ En T1 stendur fyrir dráttarvélar á hjólum. Þetta ósamræmi er til skammar og er fordæmalaus vitleysa. Að borga 30% toll af svona vinnutæki gerir að verðið á þessum og sambærilegum vinnubílum er að jafnaði 20–25% of hátt.

Búnaður og vél

YANMAR dísilmótor vatnskældur, rúmmál: 993cc. 6 ventlar 3ja cylindra fjórgengisvél. Hestöfl: 24/ 18kw / 3600 rpm. Fjórhjóladrif, læsing á afturöxli, léttstýri EPS (rafmagns). Þurrvigt: 764kg, dráttargeta: 907kg. burðargeta á palli: 450kg, heildarþyngd: 1400Kg , hjólbarðar framan: 26x9- R14 hjólbarðar aftan: 26x11- R14, diskabremsur: 256mm framan, 220mm aftan, sjálfstæð fjöðrun (wishbone with anti drive), stillanleg fjöðrun, gasdemparar. Dráttarkúla að aftan, prófílbeisli að framan, 65L geymsluhólf að framan, 69L geymsluhólf undir sætum, 110L geymslu­hólf á hliðum.

Aukabúnaður í þess­um bíl sem var prófaður: Hurðir með opnanlegum gluggum, miðstöð, árekstrarvörn að framan, hlífðarplata undir bíl, inniljós.

Greinilega byggt sem vinnutæki en ekki leiktæki

Þegar maður keyrir bílinn finnur maður strax að þetta er vinnubíll út í eitt, snerpa lítil en togkrafturinn mikill (mér tókst ekki einu sinni að láta hann spóla þótt úti hafi verið snjór og hálka, svo mjúklega tók bíllinn við sér þegar honum var gefið). Uppgefinn hámarkshraði er 60 km, á klukkustund, en þá er hávaðinn inni í bílnum frekar mikill (samkvæmt minni mælingu á bilinu 80 til 82 db, og mæli ég með að nota eyrnahlífar eða tappa sé bíllinn notaður í margar vinnustundir daglega). Þar sem að bíllinn er skráður sem dráttarvél og er með dísilmótor má nota á hann litaða dísilolíu. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á vefsíðu þeirra í Vallarbraut á slóðinni www.vallarbraut.is.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...