Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Betur má ef duga skal
Mynd / Bbl
Skoðun 26. febrúar 2021

Betur má ef duga skal

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Til að reka þjóðfélag með skilvirkum hætti er lykilatriði að samgöngur séu greiðar og allir innviðir vegakerfis, flugvalla og hafna séu eins góðir og mögulegt er. Það á líka við heilbrigðis­kerfið, löggæslu og skóla. Ef þessir hlutir eru í lagi á að vera hægt að tryggja skilvirkni og hámarks arðsemi af allri starfsemi þjóðfélagsins. Því miður hefur hver úttektin af annarri sýnt að þessir hlutir eru bara alls ekki í lagi.

Í úttekt ráðgjafarfyrirtækisins Mc­Kinsey er íslenski Landspítalinn borinn saman við háskóla­sjúkrahúsið í Umeå í Svíþjóð og Karolinska háskólasjúkrahúsið þar sem þeim svipar til hans en á ólíkan hátt. Landspítalinn, sem nú er rekinn sem háskóla­sjúkrahús, sogar stöðugt til sín aukið fjármagn og á sama tíma berast látlausar fréttir af vandamálum við reksturinn og að hann nái að sinna sínu hlutverki.

Kemur m.a. fram í skýrslu McKinsey að afköstin hjá Landspítalanum eru minni en áður þó stöðugildin séu fleiri og kostnaður meiri. Í ráðleggingum McKinsey segir m.a. að Landspítalinn þurfi að skilgreina skýrar mælieiningar og setja sér markmið með tilliti til framleiðni. Bregðast þurfi við fráflæðivandanum með því að bæta ferla innan sjúkrahússins.

Varðandi samgöngukerfið þá er vandinn gríðarlegur þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að ekki skortir tekjuinnstreymið t.d. af notkun þjóðvegakerfisins. Um árabil hafa skattar á innflutning og notkun bíla skilað ríkissjóði um og yfir 80 milljörðum króna. Aðeins hluti af heildartekjum ríkisins af bílum og umferð fer í nýbyggingu og viðhald vegakerfisins. Sem dæmi var áætlað að verja 29 milljörðum í endurbætur og viðhald á vegakerfinu á árinu 2019 og 30 milljörðum á árinu 2020. Á árinu 2021 er talað um að veita 27 milljörðum í þennan málaflokk. Þetta eru 86 milljarðar á þrem árum. Það þýðir að af skatttekjum vegna umferðarinnar á þremur árum er verið að nota tekjur sem svara nokkurn veginn innkomu eins árs og eftir standa 154 milljarðar króna af umferðartekjunum sem renna þá til annarra verkefna ríkisins.

Í nýlegri skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga er staðfest að mikið vantar upp á að ríkið sé að sinna viðhaldi og uppbyggingu innviða samgöngukerfisins.

Vegakerfið á Íslandi er um 26.000 kílómetrar að lengd. Þar af eru þjóðvegir um 12.900 km og sveitavegir um 12.800 km. Samgöngukerfið samanstendur síðan af vegakerfi, flugvöllum og höfnum. Endur­stofnverð þessa kerfis er metið á 1.525 milljarða króna.

Til að viðhalda samgöngukerfinu þarf að verja miklum fjármunum á hverju ári. Ef það er ekki gert, eins og raunin hefur verið í fjölmörg ár, þá drabbast kerfið niður og grunnstoðir eyðileggjast. Þegar svo farið er í viðhald allt of seint verður kostnaðurinn oft margfalt meiri en hann þyrfti að vera. Án viðhalds minnkar skilvirkni í framleiðslu þjóðarbúsins þar sem öruggir flutningar um vegina eru oft lykilatriði.

Í skýrslu SI segir að ónóg fjárfesting í innviðum hér á landi hefur valdið því að ástand þeirra er víða óviðunandi og uppsöfnuð fjárfestingarþörf er talsverð. Að meðaltali fá innviðir sem skýrsla þessi nær til ástandseinkunnina 3 en einkunnagjöfin er á bilinu 1 til 5 þar sem 1 er lægsta einkunn og 5 sú hæsta. Þetta myndi teljast falleinkunn í öllum venjulegum skilningi. Það er alveg ljóst að ef það hefur einhvern tíma verið lag til að taka betur á í þessum efnum, þá er það núna meðan íslenska ríkið nýtur sérlega lágra vaxtakjara. Það er með öllu óafsakanlegt að nota ekki þetta tækifæri. 

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...