Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Bæjarskilti fyrir neðan Kambana
Mynd / Aðsend
Fréttir 11. mars 2026

Bæjarskilti fyrir neðan Kambana

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hveragerðisbær vinnur að því að setja upp stórt bæjarskilti fyrir neðan Kambana en á þessu ári fagnar bærinn áttatíu ára afmæli.

„Mér líst frábærlega á þetta verkefni, hér verður okkur allt að góðu þessa dagana. Það hefur lengi staðið til að setja upp skilti við bæjarmörk Hveragerðis, bæði í Kömbunum og austan við bæinn í grennd við afleggjarann að Gljúfraholti. Nú klárum við það með krafti. Hveragerðisbær fagnar á árinu 80 ára afmæli og það er viðeigandi tímapunktur til að setja upp vegleg skilti við bæjarmörkin,“ segir Pétur Georg Markan, bæjarstjóri Hvergerðisbæjar, aðspurður hvernig honum lítist á nýju bæjarskiltin, sem stendur til að setja upp á næstunni.

„Við lögðum upp með að fanga einstakan staðaranda Hveragerðisbæjar í skiltunum og fengum því heimafólk í að hanna skiltið. Efniviðurinn í skiltinu verður af gæðum, náttúrulegur og blómlegur í anda blómabæjarins Hveragerðis. Skiltin verða 3 metrar á breidd og 4 metrar á hæð. Við byrjum á að setja upp skilti í Kömbunum. Svo er ráðgert að setja sams konar skilti við austurenda bæjarins og við endum síðan á að setja upp skilti á suðurmörkum bæjarins á Þorlákshafnarvegi en það verður aðeins seinna,“ bætir Pétur við.

En mun svona skilti skila sér í aukinni aðsókn íbúa í bæjarfélagið, eða hvað? „Aðsókn í bæinn er mjög vaxandi, hvort sem það eru íbúar eða gestir. Hér er ferðaþjónustan í mikilli uppsveiflu, eins og framkvæmdir uppi í Reykjadal bera með sér. Í grunninn má segja að þetta sé upplýsingaskilti, sem lætur vegfarendur vita að þeir séu komnir á fallegan stað í einstakt umhverfi Hveragerðisbæjar,“ segir Pétur bæjarstjóri.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...