Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Aukinn innflutningur á mjólkurafurðum
Af vettvangi Bændasamtakana 6. mars 2026

Aukinn innflutningur á mjólkurafurðum

Höfundur: Harpa Ólafsdóttir

Í fyrsta tölublaði Bændablaðsins á þessu ári var fjallað um þá ánægjulegu niðurstöðu að met- framleiðsla hafi verið á mjólk árið 2025. Það skýtur því skökku við þegar tölur sýna talsvert aukinn innflutning á mjólkurafurðum undanfarin ár.

Árið 2025 voru framleiddir tæplega 157 milljónir lítrar af mjólk, þar af voru 152 milljónir lítra seldir innanlands, en greiðslumark hvers árs miðast við áætlaða innanlandsþörf á mjólkurvörum. Samkvæmt lögum skulu afurðastöðvar markaðsfæra alla mjólk sem framleidd er umfram innanlandsþörf (umframmjólk) erlendis. Afurðastöðvum í mjólk ber þannig skylda til að selja umframmjólk úr landi en á árinu 2025 voru þetta mjólkurvörur sem samsvara fimm milljónum lítrum mjólkur.

Undanfarin ár hefur sala á fituríkum mjólkurvörum verið meiri en sala á próteinríkum mjólkurvörum og miðast greiðslumarkið því við áætlaða innanlandsþörf á mjólkurfitu. Til að nýta að fullu allar mjólkurafurðir sem framleiddar eru, er próteinhluti mjólkurinnar því einnig fluttur út, til viðbótar umframmjólkinni, þá helst í formi skyrs.

Þannig voru flutt út 5.220 tonn af skyri árið 2025, þar af 2.160 tonn til Hollands og 2.067 tonn til Sviss.

Í heild voru fluttar út mjólkurafurðir sem námu 5.817 tonnum árið 2025. Auk skyrafurða voru flutt út 384 tonn af osti og 213 tonn af öðrum mjólkurafurðum. Langmest var flutt út til Hollands, eða 277 tonn af osti og 111 tonn af öðrum mjólkurafurðum.

Það er hins vegar áhugavert að greina þróun innflutnings á mjólkurafurðum undanfarin ár. Þannig hefur innflutningur á osti/smjöri, jógúrt og ís tvöfaldast frá árinu 2017 til 2025. Samtals voru fluttar inn mjólkurafurðir sem námu tæplega 2.400 tonnum árið 2025, þar af 1.055 tonn af osti/smjöri, 658 tonn af ís og 333 tonn af jógúrt. Á sama tíma er verið að flytja út fimm milljónir lítra af íslenskri umframmjólk í formi ýmissa mjólkurvara. Í ljósi umhverfissjónarmiða væri skynsamlegt að draga úr innflutningi á mjólkurvörum og fullnýta frekar íslenska mjólk hér á landi fremur en að senda hana úr landi.

Það er vissulega jákvætt að sjá þá aukningu sem var í mjólkurframleiðslu á síðasta ári sem má fyrst og fremst rekja til aukinnar hagræðingar í rekstri kúabúa. Kúabúum hefur fækkað og þróunin verið sú að hver kýr skilar að meðaltali aukinni nyt.

Þannig var samtals fjöldi mjólkur- kúa 26.394 í september 2017 en hafði fækkað um 629 gripi í september 2025 þegar fjöldi mjólkurkúa var samtals 25.765.

Líkt og í öðrum rekstri vilja mjólkurframleiðendur sjá fram á fyrirsjáanleika í rekstri og trygga afkomu. Þá er mikilvægt þegar horft er til nýliðunar í greininni að gott starfsumhverfi sé til staðar þar sem dýravelferð sé höfð að leiðarljósi. Því þarf stöðugt að huga að aukinni tæknivæðingu og nýsköpun til þess að styðja áfram við innlenda mjólkurframleiðslu. Til þess þarf aðkomu stjórnvalda og þá einnig til að beita sér gegn auknum innflutningi á mjólkurafurðum.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...