Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Á flestum bæjum var til siðs að slátra kind fyrir jólin til að eiga nýtt kjöt á jólunum og mun kindin hafa verið kölluð jólaærin.
Á flestum bæjum var til siðs að slátra kind fyrir jólin til að eiga nýtt kjöt á jólunum og mun kindin hafa verið kölluð jólaærin.
Á faglegum nótum 18. desember 2020

Augnteprur og vinna fyrir jól

Höfundur: Vilmundur Hansen

Ef marka má þjóðháttalýsingu Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili var aldrei keppst eins mikið við vinnu eins og fyrir jólin. Einkum var lagt kapp á að ljúka við ullarvinnu og prjónaskap á jólaföstunni.

Síðasta vikan fyrir jól var kölluð staurvika vegna þess að þá notaði fólk vökustaura til að halda sér vakandi. Staurarnir eða augnteprurnar voru gerðar úr smáspýtum, ámóta stórum og eldspýtur en stundum var notað svokallað baulubein úr þorskhöfði eða eyruggabein úr fiski. Skorið var inn í beinið til hálfs en það haft heilt hinum megin og á það lítil brotalöm og skinninu á augnlokinu smeygt inn í lömina. Stóðu þá endarnir í skinnið og mjög sárt að loka augunum.

Jónas segir að húsbændur hafi stundum sett vökustaura á þá sem áttu erfitt með að halda sér vakandi við vinnu síðustu vikuna fyrir jól.

Fátækraþerri

Víða var til siðs að þrífa allt hátt og lágt fyrir jólin. Menn skiptu um nærföt og stundum var jafnvel skipt á rúmunum og jafnvel mestu sóðar brutu venjur sínar og voru hreinir og vel til hafðir um jólin.

Samkvæmt gamalli þjóðtrú lét guð alltaf vera þíðviðri rétt fyrir jólin, til þess að fólk gæti þurrkað plöggin sín fyrir hátíðina og var þessi þurrkur kallaður fátækrar þerri.

Einnig var það víða til siðs að fara í kaupstað fyrir jólin. Sumir fóru eingöngu til að sækja jólakútinn til að eiga til hressingar. Stundum var lagt út í mikla óvissu til að ná í jólaölið og stundum urðu menn úti í slíkum ferðum.

Jólaærin

Á flestum bæjum var til siðs að slátra kind fyrir jólin til að eiga nýtt kjöt á jólunum og mun kindin hafa verið kölluð jólaærin. Jónas segir að siðurinn hafi að mestu verið aflagður á Norðurlandi í sinni tíð en í fullu gildi á Vestfjörðum langt fram á okkar tíma.

Tröll á ferð

Jónas segir að jólin hafi verið helgust og mest allra hátíða enda megi rekja þau fram til hinnar elstu og römmustu heiðni á Norðurlöndum og meðal germanskra þjóða. Um það leyti eru allar ófreskjur og illþýði á ferð og geri allt illt af sér sem hægt er. Tröll og óvættir gengu þá um og var Grýla gamla og jólasveinarnir þar fremstir í flokki.

Ekki mátti leika sér á jólanóttina, hvorki spila né dansa. Til er gömul saga sem segir að einu sinni hafi tvö börn farið að spila á spil á jólanótt. Kom þá til þeirra ókunnugur maður og fór að spila við þau, hann hvatti þau til að spila við sig fram eftir nóttu eða þar til eitt barnið fór að raula sálmavers en þá hvarf maðurinn. Maðurinn mun hafa verið kölski sjálfur.

Komi þeir sem koma vilja

Víða mun hafa verið til siðs að kveikja ljós um allan bæinn á jólanótt svo að hvergi bæri á skugga. Þegar búið var að sópa húsið gekk húsfreyjan í kringum og bauð álfunum heim með orðunum: „Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem veri vilja, fari þeir sem fara vilja mér og mínum að meinalausu.“

Hátíð barnanna

Jólin hafa alltaf verið hátíð barnanna og var til siðs að þau fengju að borða fylli sína um hátíðina. Einnig þótti sjálfsagt að gefa þeim nýja flík svo þau færu ekki í jólaköttinn. Margir fengu kerti um jólin og þótti það dýrðarstund þegar kveikt var á kertunum og horft á logann brenna út.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...