Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Ástralía brennur
Fréttir 16. janúar 2020

Ástralía brennur

Höfundur: Vilmundur Hansen

Gróðureldarnir í kjölfar mikilla þurrka í Ástralíu eru gríðarlegir og um leið og einir eldar eru slökktir hafa nokkrir aðrir kviknað. Þúsundir manna eru á flótta undan eldunum og ótölulegur fjöldi dýra hefur drepist af þeirra völdum. Talið er að rúmlega 48,5 þúsund ferkílómetrar lands hafi orðið eldinum að bráð.

Eldarnir í Ástralíu, sem eru mestir í kjarr- og skóglendi, loga nánast um álfuna alla en eru mestir í New South Wales-, Victoria- og Queensland-héruðum. Eldarnir hafa vaxið hratt í kjölfar eins mesta þurrka- og hitatímabils í Ástralíu í manna minnum þar sem hitamet hafa verið slegin og ekki rignt í nokkra mánuði.

Þúsundir manna eru á flótta undan eldunum og þúsundir slökkviliðsmanna og sjálfboðaliða berjast við hann. Eldtungurnar þar sem þær eru mestar eru sagðar ná 70 metra í loftið. Þykkur reykur liggur í loftinu og haft hefur verið eftir íbúum þar sem kófið er mest að loftið sé mettað og það eins og að reykja marga sígarettupakka á dag að anda því að sér. Að minnsta kosti 23 hafa látist vegna eldanna.

Ástralski herinn leggur einnig sitt af mörkum og hafa Ný-Sjálendingar einnig sent slökkviliðs- og hermenn til Ástralíu og ríkisstjórn Papúa Nýju Gíneu hefur einnið boðist til að senda herlið til að aðstoða í baráttunni við eldinn.

Líf manna og dýra í hættu

Þurrkarnir og eldarnir í kjölfar þeirra hafa haft gríðarleg áhrif á dýralíf í álfunni og fjöldi dýra sem hafa drepist vegna þeirra óteljanlegur. Jafnvel er talið að eldarnir hafi útrýmt tegundum sem bundnar eru við ákveðin búsvæði og hafa orðið eldinum að bráð.

Skemmdir á gróðri eru einnig miklar, sérstaklega þegar kemur að gömlum trjám. Runnagróður mun aftur á móti ná sér fljótt aftur þar sem í sumum tilfellum þarf elda til að grisja gróðurinn og til að fræ spíri.

Stjórnvöld gagnrýnd

Scott Morrison forsætisráðherra og stjórnvöld í Ástralíu hafa verið harðlega gagnrýnd innanlands fyrir að hafa ekki gripið fyrr til ráðstafana vegna mikilla þurrka undanfarinna mánaða og síðan eldanna í kjölfar þeirra.

Morrison, sem hefur opinberlega afneitað hlýnun jarðar af mannavöldum, er sagður hafa stungið hausnum í sandinn og neitað að hafa horfst í augun við staðreyndir og alvarleika málsins.
Gróðureldar víða um heim

Síðastliðin tvö ár hafa gróðureldar geisað víða um heim. Árið 2018 er talið að eldar hafi logað á rúmlega 8 þúsund ferkílómetra svæði í Kaliforníu og á síðasta ári er talið að tæplega 9 þúsund ferkílómetrar skóglendis hafi orðið eldi að bráð í Amason-regnskógunum. Á síðasta ári loguðu líka miklir eldar í Síberíu sem náðu yfir rúma 27 þúsund ferkílómetra. Þrátt fyrir að allt séu þetta miklir eldar sem náð hafa yfir stór svæði og valdið gríðarlegu tjóni eru þeir smáir miðað við gróðureldana sem geisa í Ástralíu um þessar mundir og áætlað er að hafi farið yfir rúma 48,5 þúsund ferkílómetra með skelfilegum afleiðingum fyrir menn, dýr og gróður.

Eldarnir í Kaliforníu vöktu mikla athygli þar sem þeir brunnu í nágrenni við íbúabyggð og ollu talsvert miklu tjóni í byggð. Eldar í Amason vekja yfirleitt mikla athygli enda nátengdir baráttunni við ólöglegt skógarghögg og nautgriparækt í Suður-Ameríku. Skógareldarnir í Síberíu áttu sér stað á afskekktum svæðum í Norður-Rússlandi þar sem er lítil byggð og ekki er vitað til að þeir hafi valdið tjóni á mannvirkjum. 

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...