Kórinn snýst um fólk sem kemur saman sem samfélag og lærir að segja sögur.
Kórinn snýst um fólk sem kemur saman sem samfélag og lærir að segja sögur.
Menning 23. október 2026

ÁST – ástarsaga sögð af kór

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Kórinn VOX Rangárþing af Suðurlandi sýnir nýtt íslenskt kórverk, ÁST – ástarsaga sögð af kór, í Tjarnarbíói dagana 24. og 25. október næstkomandi þar sem raunverulegar og sannar sögur kórsins verða settar á svið.

VOX Rangárþing er ekki hefðbundinn kór, heldur frekar fjölmenningarlegur vettvangur skipaður söngvurum frá yfir 10 mismunandi löndum. Ekki er ætlast til þess að meðlimir hafi endilega reynslu af kórsöng eða sviðslistum til þess að komast inn í hópinn, en segir stjórnandinn, Arilíus Marselínuson, VOX snúast fremur um samfélagið í heild sinni.

„VOX snýst í raun um fólk sem kemur saman sem samfélag og lærir að segja sögur saman í gegnum tónlist, leikhús og tilfinningar. Þetta er staður til að vaxa, til að prófa, til að mistakast á öruggan hátt og til að uppgötva hluti um sjálfan sig sem þú vissir kannski ekki að væru til staðar. Annar mikilvægur þáttur í VOX var að skapa stað til að bjóða þá fjölmörgu útlendinga sem búa í Rangárþingi velkomna. Um 20% íbúanna hér koma erlendis frá og við vildum skapa tækifæri til að tengja fólk saman, þau eru hluti af því að móta það sem VOX er og stendur fyrir.“

Listræna teymið, Gábor Tengely, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Arilíus Marselínuson.

Við vinnslu kórverksins ÁST voru meðlimir beðnir um að deila persónulegum sögum sem tengdust ákveðnu lagi og festa þannig söguna í tilfinningalegum veruleika. Má nærri geta að útkoman sé stórfengleg enda þegar raunveruleikinn blandast flutningi verða tilfinningarnar allsráðandi.

Að baki sýningunni stendur fjölþjóðlegt listateymi undir forystu Arilíusar, leikstjórn er í höndum hins ungverska Gábor Tengely, Sandra Rún Jónsdóttir er tónlistarráðgjafi og Harpa Rún Kristjánsdóttir listrænn stjórnandi verksins.

Miðasala er á tix.is en sýningar verða, eins og áður sagði, laugardaginn 24. október kl. 20 og svo aftur á sunnudeginum 25. október klukkan 14.

Skylt efni: menning | korverk

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...