Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Asparnálar (Phaeocalicium populneum) á berki alaskaaspar í Hafnarfirði,  apríl 2026.
Asparnálar (Phaeocalicium populneum) á berki alaskaaspar í Hafnarfirði, apríl 2026.
Skoðun 8. júní 2026

Asparnálar – algengasti sjaldgæfi sveppurinn á Íslandi?

Höfundur: Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson.

Fjöldi sveppategunda á Íslandi telur í þúsundum en þó er erfitt að segja nákvæmlega til um hversu margar þær eru því sífellt finnast hér nýjar tegundir. Sumar sveppategundir eru svo sjaldgæfar að þær finnast jafnvel bara á einum eða tveimur stöðum á landinu á meðan aðrar eru svo smásæjar að erfitt getur verið að finna þær, jafnvel þótt fólk viti hvar eigi að leita.

Einn þessara sjaldgæfu og smásæju sveppa heitir „asparnálar“ – eða það er að minnsta kosti það sem ég ímynda mér að hann myndi heita ef hann hefði nokkurn tíma fengið íslenskt nafn. Sveppurinn hefur nefnilega verið talinn svo sjaldgæfur á Íslandi að ekki hefur þótt taka því að nefna hann, enda nota líffræðingar iðulega latínuheiti til að tiltaka ákveðnar tegundir. Á latínu heitir þessi tegund Phaeocalicium populneum. Íslenska nafnið vísar til þess að sveppurinn finnst á aspartrjám þar sem hann myndar litla bikara sem standa út úr berkinum eins og nálar, svolítið eins og litlir títuprjónar.

Notar nálarnar til að fjölga sér

Asparnálar vaxa reyndar ekki ofan á berki aspartrjáa heldur rétt innan við yfirborð barkarins, bæði á stofni og greinum. Sveppurinn notar nálarnar til að fjölga sér en lifir að öðru leyti inni í berkinum þar sem hann fær líklega næringu úr dauðum frumum hýsiltrésins. Nálarnar eru dökkar að lit, örsmáar, jafnvel ekki nema 1 millimetri að lengd en þær vaxa margar saman og gefa ljósum berki asparinnar áferð sem sést með berum augum. Til að finna asparnálar þarf því að skoða börkinn vel. Nálarnar eru litlar en þegar maður hefur á annað borð fundið þær, sér maður þær í hundruðatali, bæði á trjábolnum og á greinum. Ágætt er að leita að asparnálum að degi til þegar bjart er úti með því að skoða börkinn og greinar vel í augnhæð eða aðeins ofar þannig að hægt sé að bera útlínur barkarins við himinninn.

Asparnálar hafa aðeins tvisvar fundist á Íslandi svo vitað sé með vissu. Í fyrra sinn, árið 1998, fann Þröstur Eysteinsson, fyrrum skógræktarstjóri, sveppinn við Mosfell í Grímsnesi. Árið 2000 fann Sigríður Baldvinsdóttir svo sveppinn í Þórisdal í Lóni. Síðan þá hefur lítið spurst til þessa sjaldgæfa svepps þar til nú í vetur. Ég rambaði sjálfur á asparnálar á berki alaskaaspar í Grímsnesinu við Álftavatn og síðan þá hef ég verið að koma auga á sveppinn nánast hvar sem ég hef kíkt eftir honum, bæði á fleiri stöðum í Grímsnesi en einnig í Reykjavík, Seltjarnarnesi og í Hafnarfirði.

Sveppafélagið safnar upplýsingum

Sá grunur hefur læðst að mér að þessi sjaldgæfa tegund sé orðin töluvert algeng og útbreidd á Íslandi. Aspir er nú að finna í flestum þéttbýlum á Íslandi, þær eru algengar í görðum landsmanna og eru með algengari trjátegundum í skógrækt. Aspir eru ræktaðar í gróðrastöðvum og eru reglulega fluttar landshorna á milli. Því er auðvelt að ímynda sér hvernig asparnálar gætu hafa dreifst hratt um Ísland.

Sveppafélagið er um þessar mundir að safna upplýsingum um fundarstað þessa sjaldgæfa svepps, sem mögulega er reyndar ekki svo sjaldgæfur. Félagið óskar eftir því að fá að heyra hverju landsmenn komast að við athuganir sínar, hvort sem þeir finna sveppina eða ekki. Senda má Sveppafélaginu tölvupóst með upplýsingum í gegnum sveppafelagid@sveppafelagid.is. Þá er ágætt að taka fram hvenær kíkt var eftir sveppunum, hvar á landinu og hvort þeir hafi fundist eða ekki. Ég óska ykkur ánægjulegs og svepparíks sumars.

Höfundur er líffræðingur og framkvæmdastjóri Sveppafélagsins.

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...