Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Helgi Jóhannesson garðyrkjuráðunautur hjá RML fræddi hópinn um útiræktun grænmetis á Íslandi.
Helgi Jóhannesson garðyrkjuráðunautur hjá RML fræddi hópinn um útiræktun grænmetis á Íslandi.
Mynd / Laura Parada
Á faglegum nótum 8. september 2026

Ársfundur AGROSUS-verkefnisins haldinn á Íslandi

Höfundur: Sigrún Dögg Eddudóttir
Sigrún Dögg Eddudóttir.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hélt þriðja ársfund AGROSUS-verkefnisins dagana 24. til 26. júní í Norræna húsinu í Reykjavík. AGROSUS er evrópskt samstarfsverkefni um vistvænar varnir gegn illgresi og samstarfsaðilar úr verkefninu komu víða að úr Evrópu til fundarins. Á fundinum var farið yfir þann árangur sem náðst hefur á síðustu þremur árum, ásamt því sem fram undan er á lokaári þess.

Á fundinum kynntu þátttakendur árangur tilrauna með vistvænar varnir gegn illgresi sem staðið hafa yfir víðs vegar um Evrópu síðastliðin ár. Niðurstöður margra tilraunanna gefa tilefni til bjartsýni. Þó vel hafi gengið í heildina hefur ýmislegt komið upp á við framkvæmdina. Veðráttan hefur sums staðar sett strik í reikninginn. Frost olli meðal annars alvarlegum skaða hjá bændum í Tyrklandi síðastliðið vor. Einnig hefur ágangur dýra valdið vandræðum, til að mynda á Íslandi þar sem álftir hafa gert starfsmönnum RML lífið leitt. Fulltrúi Polissia háskólans í Úkraínu sagði frá þeim erfiðu aðstæðum sem hafa skapast við rannsóknir vegna stríðsins þar í landi en háskólinn hefur meðal annars orðið fyrir drónaárás.

Spænska fyrirtækið SEIPASA tekur þátt í AGROSUS verkefninu en fyrirtækið er frumkvöðull í þróun plöntuvarnaefna úr efnum sem unnin eru úr plöntum og örverum. Fyrirtækið kynnti niðurstöður prófana á illgresiseyði sem unninn er úr lífrænum efnum, sem lofa góðu um framhaldið. Einnig var kynnt vinna spænska vísindaráðsins CSIC við þróun á stafrænum lausnum fyrir myndun, greiningu og kortlagningu illgresis þar sem m.a. er stuðst við vélmenni og gervigreind.

Á lokadegi fundarins buðu starfsmenn RML fundargestum í skoðunarferð á Suðurlandi. Gestunum gafst meðal annars kostur á að kynna sér útiræktun grænmetis í Hvítárholti sem og ræktun á hálmi og strandreyr fyrir framleiðslu Flúðasveppa. Deginum lauk í Friðheimum, þar sem fundargestir fengu fræðslu um ræktun í gróðurhúsum á Íslandi og snæddu kvöldverð.

Fundargestir voru sammála um að fundurinn hefði heppnast vel og hafi styrkt samstarf hópsins. Þátttakendur í verkefninu deila sameiginlegri framtíðarsýn um sjálfbærar aðferðir í baráttunni gegn illgresi. Að þeirra mati mun AGROSUS-verkefnið, með áframhaldandi samvinnu, rannsóknum og nýsköpun, hjálpa til við að gera landbúnað í Evrópu sjálfbærari, umhverfisvænni og betur í stakk búinn til þess að takast á við breytingar og áföll.

Lokaár AGROSUS er nú hafið og verður meiri áhersla lögð á miðlun upplýsinga og gagna sem aflað hefur verið í verkefninu. Fram undan er til að mynda útgáfa kynningar- og fræðsluefnis um vistvænar varnir gegn illgresi, ásamt útgáfu vísindagreina. Tilraunum RML innan verkefnisins lýkur í haust en fjallað verður nánar um tilraunasumarið síðar.

Höfundur er ráðgjafi í umhverfis- og loftslagsmálum hjá RML.

Skylt efni: RML | Agrosus

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...