Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Mikilvægt er að fylgja eftir notkun gripa með verndandi arfgerðir og greina afkvæmi þeirra þannig að tryggt sé að „réttu lömbin“ séu sett á. Á myndinni má sjá hrútahóp frá Þernunesi haustið 2022, þeir eru allir arfblendnir fyrir ARR genasamsætunni og hafa þvi skilað henni áfram til helmings afkvæma sinna.
Mikilvægt er að fylgja eftir notkun gripa með verndandi arfgerðir og greina afkvæmi þeirra þannig að tryggt sé að „réttu lömbin“ séu sett á. Á myndinni má sjá hrútahóp frá Þernunesi haustið 2022, þeir eru allir arfblendnir fyrir ARR genasamsætunni og hafa þvi skilað henni áfram til helmings afkvæma sinna.
Á faglegum nótum 30. ágúst 2023

Arfgerðargreiningar sauðfjár haustið 2023

Höfundur: Eyþór Einarsson ráðunautur búfjárræktar- og þjónustusviðs

RML og Íslensk erfðagreining (ÍE) hafa nú hafið samstarf varðandi arfgerðargreiningar sauðfjár m.t.t. riðumótstöðu. Munu því sýni sem greind verða á vegum RML haustið 2023 verða rannsökuð hjá ÍE. Hér verður farið nokkrum orðum yfir fyrirkomulag greininga í haust á vegum RML.

Tekin eru vefjasýni úr eyrum þar sem sýnið varðveitist í númeruðum hylkjum. Númerið sem er á hylkinu skrá bændur á viðkomandi gripi í Fjárvís.is, þannig að niðurstaða greiningar rati á rétta gripi.

Fyrirkomulag

Framkvæmdin í haust verður með svipuðum hætti og sl. vor. Taka þarf vefjasýni úr eyra. Áfram er hægt að panta hylki til sýnatöku í gegnum heimasíðu RML. Þegar bóndinn hefur tekið sýnin, skráir hann þau á viðkomandi grip í Fjárvís og sendir svo sýnin á Hvanneyri, þar sem þeim er safnað saman.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður greininga skili sér í Fjárvís.is ekki síðar en tveim vikum frá því að sýnin berast til RML (með fyrirvara um óviðráðanlegar aðstæður). Miðað verður við að á hverjum þriðjudegi í september og október komi nýjar niðurstöður sem lesnar verða inn í Fjárvís.is.

Verð, sæti og tímarammi

Verð til bænda á hverja greiningu er 1.600 krónur án vsk. með efnis- og umsýslukostnaði. Öll sýni fá 6 sæta greiningu. Áfram gildir að hvatastyrkir (úr Þróunarsjóði sauðfjárræktarinnar) koma til frádráttar greiningarkostnaði þegar um er að ræða sýni úr afkvæmum gripa sem bera ARR eða T137 (samkvæmt skráningu í Fjárvís.is). Greining á þessum gripum mun því kosta 300 kr. á hvert sýni.

Kjörin sem hér eru kynnt gilda til 10. nóvember 2023. Eftir það tekur við vetrarverð og verður þá verðskráin svipuð og hún var fyrir haustvertíðina og greiningar óreglulegri en næsta vetur verða sýnin send til greiningar á Agrobiogen í Þýskalandi. Næsta vor er svo stefnt að því að greiningar hefjist að nýju hjá ÍE.

Úr hvaða gripum?

Mikilvægast er að allir ásetningshrútar landsins séu arfgerðargreindir. Í raun þarf það að verða jafn sjálfsagður hlutur og að bændur merki gripi sína að bændur viti hvaða arfgerð hrútarnir bera sem er verið að nota til kynbóta. Á bak við hvern ásettan hrút getur þurft að greina nokkra kandídata eftir því hve mikið er vitað um arfgerðir foreldra lambanna. Ef t.d. annað foreldri lambsins er arfblendið fyrir ARR genasamsætunni eru 50% líkur á að lambið hafi erft ARR.

Þá mun það flýta fyrir innleiðingu verndandi arfgerða að greina gimbrarnar en vissulega verður kostnaðarsamt að greina allar þær gimbrar landsins sem til álita koma sem ásetningsgimbrar. Því er mælt með að bændur leggi mesta áherslu á að fylgja eftir notkun hrúta með verndandi arfgerðir nú á fyrstu árum innleiðingarinnar. Þá má líka benda á, sérstaklega í tilfelli ARR genasamsætunar, að sett sé á sem minnst af lömbum undan ARR hrútunum sem ekki bera genasamsætuna til að auka ekki erfðahlutdeild fyrstu ARR hrútanna meira en þarf í stofninum.

Þar sem í raun er kappsmál að lækka tíðni hlutlausu arfgerðarinnar (ARQ/ARQ) og áfram unnið að
útrýmingu á VRQ genasamsætunni, sem er sérstaklega mikilvægt þar sem riðuhættan er mest, að þá er hvatt til þess að setja sem mest á af gripum sem bera lítið næmar arfgerðir á meðan framboð af verndandi arfgerðum er takmarkað. Rannsóknum á næmi mismunandi arfgerða er ekki lokið og því geta skilgreiningar á arfgerðum átt eftir að breytast. Vonir standa til að frekari niðurstöður verði kynntar í haust fyrir fengitíma.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...