Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
„Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss.
„Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss.
Mynd / Aðsend
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík, lögreglan er með málið til rannsóknar. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði sem þurfti að aflífa.

Verksummerki voru með svipuðum hætti og í fyrra innbrotinu en nú var rúða brotin og farið inn um glugga. Innréttingar voru aftur rifnar upp og stíur og hurðir opnaðar. Dýrin gengu því laus um húsið og komust út á tún við búið. Málið hefur verið kært til lögreglu og er til rannsóknar. Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis hafa einnig verið upplýst um atvikið.

Aftur eru afleiðingar innbrotsins alvarlegar fyrir dýrin, auk þeirra sem drápust eru fjölmörg dýr særð og með áverka og voru sóttvarnir búsins rofnar. Líkt og eftir síðasta innbrot má búast við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, líkt og minnkaðri mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegum fósturlátum.

„Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, í samtali við blaðið. „Við byrjuðum daginn náttúrulega á því að koma öllum svínunum inn, koma öllu á sinn stað og gera við skemmdir eins og síðast. Í dag voru átta dýr komin út. Fimm smágrísir dóu og við þurftum að aflífa eina gyltu sem fótbrotnaði svo mun koma í ljós á næstu dögum hvaða áhrif þetta mun hafa á dýrin, síðast urðu sjö fósturlát.“

Geir segir að síðast hafi hann talið að þarna væri einhver á ferð sem gerði sér ekki grein fyrir afleiðingum gjörða sinna en að endurtekið innbrot á svínabúið, auk þeirra innbrota sem áttu sér stað á Reykjabúinu og Dalsbúi gæfu til kynna að innbrotin væru þaulskipulögð. „Ég tel ljóst að þessar aðgerðir hafa snúist upp í andhverfi sína, þær virðast ekkert hafa með umhyggju fyrir dýrum eða dýravelferð að gera“.

Geir biður þá sem stóðu að verknaðinum að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum og biður alla sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu þar sem innbrotin hafa haft mjög alvarleg áhrif fyrir dýrin.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...