Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Landrover Defender, bíll ársins 2020 – bara einfaldlega bestur.
Landrover Defender, bíll ársins 2020 – bara einfaldlega bestur.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 25. janúar 2021

Aldrei verið eins mikið af vistvænum ökutækjum en vantaði alveg dráttarvélar

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson

Árið 2020 var frekar vistvænt prófunarár í ökutækjum hér í Vélarbásnum í Bændablaðinu. Strax í byrjun árs var úrval af rafmagnsökutækjum meira en yfir var komist í þessum 24 blöðum sem komu út á síðasta ári. Reynt var að komast yfir sem flest og fjölbreyttust ökutæki til að fjalla um, en eins og svo oft áður þá vantaði að fá dráttarvélar til prufuaksturs og umfjöllunar.

Einn bíl prófaði ég sem virðist vera rangt tollaður inn í landið og því of dýr, en bílinn kalla ég „Bóndabíl“, vinnutæki sem engum dettur í hug að nota sem leiktæki, en er bráðsniðugt vinnutæki til ýmissa verka. Þetta er Corvus Terrain frá Vallarbraut.

SsangYong Korando er einstaklega vel hljóðeinangraður og velheppnaður jepplingur.

KIA Soul í 1. sæti af rafmagnsbílum, þar skoraði hæst góð fjöðrun.

Rafmagnsbílar og tæki

Alls voru prófaðir fimm rafmagns fólksbílar, einn sendibíll, einn liðléttingur og eitt rafmagns fjórhjól. Að gefa þessum ökutækjum einkunn og raða niður í sæti var ekki auðvelt, en eingöngu frá mínu persónulega mati með hliðsjón af notkunargildi og þægindum í akstri á íslenskum „ónýtum“ vegum væri valið svona:

  1. KIA Soul (þar skoraði hæst frábær fjöðrun og stöðugleiki við akstur á malarvegi).
  2. MG frábært verð, góð drægni á rafmagninu og fín snerpa.
  3. Tesla 3 (lang söluhæsti bíll landsins 2020), ógnarkraftur, fjórhjóladrifinn, en það var verð og umhverfishljóðin inni í bílnum sem settu hann niður í 3. sæti (mín skoðun er að ef keyptur er rafmagnsbíll til að njóta verður hann að mælast undir 70 db. í farþegarými).

Sendibíllinn Maxis er fínn fyrir borgarsnatt, en ekki neitt spennandi fyrir langkeyrslur.
Rafmagns liðléttingurinn Multi One EZ7 er tæki sem allir ættu að skoða vandlega sem innitæki á fóðurgöngum og í nálægð við dýr og matvælaframleiðslu.

MG var í 2. sæti rafmagnsbíla. Verð og hljóðeinangrun skoraði þar hæst.

Tesla 3 var í 3. sæti rafmagns, snerpa og kraftur, en fullmikill hávaði inni í bíl.

Rafmagns fjórhjólið er nýjung og spennandi kostur framtíðarinnar, kæmi mér ekki á óvart ef maður sæi það í notkun á götum Reykjavíkur í þjónustu Íslandspósts sem öruggara og burðarmeira en núverandi „póstþríhjól“.

Rafmagns torfæruhjólið (rafmagnscrossarinn) var eitthvert skemmtilegasta leiktæki sem ég hef prófað, langt síðan ég hef skemmt mér svona mikið við að prófa „dót“.

Plug-in Hybrid og aðrir vistvænir bílar

Nokkra vistvæna bíla prófaði ég og af þeim stóð upp úr Jeep Compass Trailhawk, jeppi eða jepplingur? Þó svo að ég hafi alltaf nefnt hann í umfjölluninni sem jeppling verð ég að setja hann í flokk jeppa þar sem hann er hár á vegi, með hátt og lágt drif og að mínu mati skoraði hæst að hann er með fullbúið varadekk. Aðrir bílar komu á eftir þó svo að Suzuki A-Cross hafi verið kraftmeiri og snarpari í akstri og þar af leiðandi skemmtilegri á malbiki, þá vantaði betra varadekk, meiri hæð undir bílinn og verðið fullhátt.

Rafmagnsfjórhjól fyrir 15 ára og eldri á góðu verði.

Mótorhjól og fjórhjól voru tvö og tvö

Tvö fjórhjól prófaði ég, annars vegar Yamaha 700 með snjótönn. Það hjól keyrði ég eingöngu á ís og því hef ég enga umsögn um fjöðrun, en hjólið skilaði sínum snjómokstri vel en stýrið mætti vera breiðara. CanAm 1000 er öflugt fjórhjól sem þægilegt er að keyra ýmist á vegum og torfærum (mér hefði alveg dugað færri hestöfl). Mótorhjólin tvö voru mjög ólík, annars vegar BMW 750F sem er ferðahjól fyrir alla venjulega malar- og malbiksvegi, mjög tæknilega fullkomið mótorhjól og lágt til ásetu sem hentar jafnt lágvöxnum sem þeim hærri. SWM 650 ferðahjólið er fullkomið ferðahjól fyrir hálendisslóða og vegi, skemmtileg vinnsla í mótor og á verði sem er hreint hlægilegt.

Öflugt fjórhjól frá CanAm.

Besti bíllinn var Landrover Defender

Það var enginn bíll af þeim sem prófaðir voru 2020 sem komst nálægt Landrover Defender í gæðum, þessi bíll er einfaldlega bara snilldin ein í hönnun, útliti og gæðum. Það eru engan veginn allir sammála mér því ég hef heyrt menn segja að þessi bíll sé forljótur, en þetta er mín skoðun á bílnum og þarf ekkert að orðlengja það. Í öðru sæti var SsangYong Korando sem hefur fengið nýtt útlit, en sá bíll skoraði hæst hjá mér með því að mælast ekki með meiri hávaða á 90 km hraða en 70 db.

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss
Fréttir 2. september 2026

Annað innbrot í svínabú Stjörnugríss

Annað innbrot átti sér stað í morgun þegar að svínum Stjörnugríss var sleppt út ...

Fjölbreytt verkefni fram undan
Fréttir 2. september 2026

Fjölbreytt verkefni fram undan

Hjá Byggðastofnun er ýmislegt á döfinni með haustinu, en m.a. hefur stjórnin ákv...

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu
Fréttir 2. september 2026

Málþing um vinnu, Sturlungu, goðafræði og Gerplu

Málþing var haldið í Kakalaskála laugardaginn 29. ágúst klukkan 14 þar sem fjóri...

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi
Fréttir 2. september 2026

Bókmenntahátíðin Haustgildi næstu helgi

Haustgildi, bókmenntahátíð Bókabæjanna austanfjalls, verður haldin dagana 5. og ...

Halla Sif meðal 100 kvenhetja
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis,...

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun
Fréttir 1. september 2026

Óska eftir tilnefningum fyrir framúrskarandi árangur í lífrænni ræktun

Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til viðurkenningar fyrir framúrsk...

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð
Fréttir 1. september 2026

Gjaldtaka hafin á nýjum hringveg um Hornafjörð

Gjaldtaka á nýjum hringveg um Hornafjörð hófst í dag. Vegurinn var opnaður fyrir...

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar
Fréttir 1. september 2026

Auglýst eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir eftir umsækjendum um stuðning til söfnunar ullar ...