Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Dæmi um lágt mitti sumarkjólanna nú 2026 sem minna óneitanlega á tísku kjólanna hundrað árum áður.  Frá vinstri eru kjólar hönnuðanna JW Anderson, Balenciaga og Simone Rocha.
Dæmi um lágt mitti sumarkjólanna nú 2026 sem minna óneitanlega á tísku kjólanna hundrað árum áður. Frá vinstri eru kjólar hönnuðanna JW Anderson, Balenciaga og Simone Rocha.
Líf og starf 9. júní 2026

Aldagömul tíska?

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir
Kögur gerir allt skemmtilegra.

Langar perlufestar, lágt mitti og víðar buxur einkenna nútíma- samfélag um þessar mundir en svo skemmtilega vill til að svo var einnig ... árið 1926.

Þegar litið er til baka, heila öld aftur í tímann, sjáum við heimsmynd í örri umbreytingu þar sem tíska og samfélagið í heild sinni héldust í hendur. Þetta var hápunktur hinna „roaring twenties“ þar sem frelsi, djass og ný tækni mótuðu hvernig fólk klæddi sig og tjáði. Fyrir hundrað árum átti sér nefnilega stað bylting, ekki síst í fatnaði sem hafði ótrúlega mikil áhrif á heimsmynd manneskjunnar sem slíkrar.

Lágt mitti.

Mesta breytingin á þessum tíma má segja að sneri að fatnaði kvenna en árið nítján hundruð tuttugu og sex náði hinn svokallaði drengjalegi stíll hæstu hæðum. Fyrir utan stutthærðar stúlkur einkenndist stíllinn af beinum og víðum pilsum og kjólum þar sem mittislínan var færð niður á mjaðmir og dró úr náttúrulegum línum kvenlíkamans. 

Lága mittið á pilsum breytti þannig öllu sjónrænu jafnvægi kvenfatnaðar, því frá mjöðmunum féll efnið beint niður, og skapaði þennan ókvenlega stíl, ef svo má segja … sem einkenndi tímabilið. Til viðbótar ruku pilsfaldarnir upp að hnjám sem þótti gríðarlega djarft á þeim tíma og undirstrikaði lága mittið og þetta kassalaga form enn frekar. Þessi hönnun snerist þó fyrst og fremst um að gefa konum frelsi til að dansa, stunda íþróttir og taka þátt í lífinu af fullum krafti.

Löng perlufesti.

Fylgihlutir spiluðu risastórt hlutverk á þessum tíma og voru notaðir til að gefa einföldum kjólum persónulegan blæ. Þröngir hattar, sem voru á höfði nánast hverrar einustu konu, pössuðu fullkomlega við stutta hárið sem þá var hæstmóðins. Langar perlufestar, fjaðrir og kögur voru áberandi, sérstaklega þegar stefnt var á dansgólfið. Þær sem voru allra mest móðins voru kallaðar flapperstúlkur, þá kögurskreyttar, stutthærðar, prýddar löngum  hálsfestum og helst reykjandi Chesterfield-sígarettur í löngum munnstykkjum þó þær allra hörðustu hafi líklega reykt filterslausan Camel.

Þegar kemur að fylgihlutum í dag ber helst á löngum perlufestum, en smörtustu konur bæjarins skarta slíkri fegurð - helst frá Chanel og þó bæði fjaðraskraut og sígarettur séu á undanhaldi laumast margar þær perluskreyttu til að reykja að minnsta kosti eina mentolrettu í laumi.

Oxfordbuxurnar í allri sinni dýrð, en þær þóttu ofursmartar á bæði konur og karla.

Kögrið, eins og komið hefur fram í pistlum Bænda- blaðsins, er einnig á uppleið og ef vel er að gáð er sumartískan í hárgreiðslu þetta árið með stysta móti.

En yfir höfuð, ef skoðuð eru líkindin við nútímann má sjá að margar af þeim hugmyndum sem við teljum nýstárlegar í dag eiga rætur sínar að rekja til þessa tíma. Fyrir utan ofantalið var kynhlutlaus tíska og fatnaður sem fer yfir hefðbundin kynjamörk mjög áberandi, þar sem konur fóru að ganga í buxum – og fötum innblásnum af herrafatnaði. Í dag sjáum við sömu þróun þar sem víð föt og þægindi eru allsráðandi á götum úti og kynjaskipting í tísku fer óðum minnkandi. Einnig má sjá ákveðna hringrás í tískunni því mörg stóru tískuhúsin hafa á undanförnum misserum endurvakið lága mittið á pilsum og kjólum ásamt beinum skurðum sem minna óneitanlega á hönnunina frá 1926. 

Harry Styles í víðum buxum.

Að lokum má segja að árið nítján hundruð tuttugu og sex hafi verið tímapunkturinn þar sem nútímatíska varð til. Sú áhersla sem lögð var á sjálfstæði, frelsi einstaklingsins og hagnýtni endurspeglast sterkt í okkar eigin menningu í dag. Við höfum tekið þessi gildi og þróað þau áfram en grunnurinn var lagður af þessari hugrökku kynslóð sem þorði að kasta gömlum gildum á haugana og klæða sig fyrir framtíðina.

Tíska ungmenna í dag er oft og tíðum svo að segja kynlaus, sbr. parið í bakgrunni.

Herratískan, þarna fyrir 100 árum, fól nefnilega líka í sér breytingu aukinna þæginda þótt þeir hafi haldið sig meira við hefðbundinn klæðaburð en konurnar. Víðar buxur sem kenndar voru við Oxfordháskóla urðu gífurlega vinsælar, einstaklega víðar að neðan og gáfu viðkomandi afslappað og nær kærulaust útlit ef svo má segja. Þessi þróun í átt að frjálslegri klæðaburði karla lagði grunninn að þeirri götustílstísku sem við þekkjum vel í nútímasamfélagi – og þó sú tíska fari nú fyrir ofan garð og neðan ríkir hún þó. 

Skylt efni: tíska

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...