Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Ákveðnir veikleikar í eftirliti
Mynd / Úr safni
Fréttir 17. mars 2026

Ákveðnir veikleikar í eftirliti

Höfundur: Þröstur Helgason

Ákveðnir veikleikar eru í eftirliti með framleiðslu á ávöxtum og grænmeti hér á landi. Meginniðurstaða úttektarinnar er þó að Ísland hefur komið á fót virku opinberu eftirliti með matvælum úr plönturíkinu og að framleiðendur þessara afurða sæta reglubundnu eftirliti.

Þetta kemur fram í skýrslu eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem byggð er á úttekt sem fór fram hér á landi 8.–17. september 2025.

Í skýrslunni leggur ESA fram tilmæli um að bæta samræmi og samvinnu milli mismunandi eftirlitsaðila. Einnig þarf að tryggja að sýnatökur og greiningar vegna örveruöryggis séu fullnægjandi og framkvæmdar í samræmi við löggjöf. Að síðustu þarf að tryggja að framleiðendur spíra framkvæmi viðeigandi sýnatökur og greiningar, eins og löggjöf mælir fyrir um.

Tilgangur úttektarinnar var að meta hvort opinbert eftirlit með tilgreindum afurðum sé í samræmi við löggjöf EES á sviði matvælaöryggis og að leggja mat á skilvirkni eftirlitsins. Áhersla var á eftirliti með niðurskornum ávöxtum og grænmeti, grænu blaðsalati, berjum og spírum, einkum með tilliti til örverufræðilegs öryggis.

Niðurstöður eftirlits ESA eru settar fram í lokaskýrslu og með skýrslunni fylgir tímasett úrbótaáætlun yfirvalda (Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga). Vinna við úrbætur er hafin, eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá MAST.

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...