Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Það var mikið hugsað um síðustu helgi eins og þessi mynd Aðalsteins Jörgensen ber með sér. Frá viðureign meistaranna í Infocapital og Doktorsins sem náði bronsinu.
Það var mikið hugsað um síðustu helgi eins og þessi mynd Aðalsteins Jörgensen ber með sér. Frá viðureign meistaranna í Infocapital og Doktorsins sem náði bronsinu.
Mynd / Bjarni Matt
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

Höfundur: Björn Þorláksson

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni um síðustu helgi.

Á níu borðum voru spiluð þrjú grönd og uppskeran 8-13 slagir!

Eitt par spilaði 5 tígla og vann slétt, tvö pör fóru í slemmuna. Aðeins annað þeirra vann hana, lítum á handbragðið hjá Kristni Kristinssyni og Matthíasi Imsland, en sá síðarnefndi er framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og hafði í ýmsu að snúast milli þess sem hann lét andstöðuna finna til tevatnsins. Matthías á það til að draga ekki af sér í sögnum. Og þá er eins gott að makker sé vel með á nótunum í úrspilinu.

Líkt og stöðumyndin sýnir voru sagnir Matta og makkers hans dálítið glannalegar. Eftir góða hækkun í opnunarlit makkers velur Matthías að stökkva í ásaspurninguna. Hefðu flestir gefist upp og meldað 5 tígla þegar 5 laufa svarið sagði til um aðeins eitt lykilspil. Matthías vildi meira.

Út kom laufás og meira lauf. Kristinn fór inn í blindan á spaða, spilaði tíguldrottningu, lítið hjá norðri, nokkur umhugsun, Kristinn stakk svo upp ásnum sem felldi trompkóng blankan. Þá var ekki annað eftir síðar í spilinu en að svína fyrir hjartakóng. Sem gekk líka.

Hvers vegna vann Kristinn sitt spil? Sennilega svínaði hann ekki tíglinum þótt svíning væri með líkum vegna þess að suður hindraði ekki á þremur laufum heldur meldaði tvö lauf. Það benti til að hann ætti opnunarstyrk í punktum eða nálægt því. Eins gott að vera vakandi og huga alltaf að öllu sem gerist við borðið. 13 impar, takk fyrir.

Annars er það að frétta af úrslitunum að sveit Infocapital varð Íslandsmeistari eins og vanalega, Grant Thornton í öðru sæti, sveit Doktorsins náði bronsinu, nokkuð óvænt en með glæsibrag og Málning varð í fjórða sæti.

Umsjón: Björn Þorláksson

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Caption

Skylt efni: bridds | Hugaríþrottir

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...