Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Æðarrækt og fuglatilskipun Evrópusambandsins
Mynd / Wikipedia
Skoðun 12. maí 2026

Æðarrækt og fuglatilskipun Evrópusambandsins

Höfundur: Erna Bjarnadóttir
Erna Bjarnadóttir.

Æðarrækt hefur lengi þótt ein göfugasta búgrein sem stunduð er á Íslandi. Saman fer sjálfbær nýting á æðardún sem ella færi forgörðum og bændur láta fuglunum í té vernd fyrir vargi og aðstoð við hreiðurgerð. Þannig byggir æðardúntekja á reglubundinni umgengni við hreiður villtra fugla á varptíma og í mörgum tilvikum samfelldri viðveru mannsins til að vernda fuglinn fyrir rándýrum. Samkvæmt fuglatilskipun Evrópusambandsins er hins vegar óheimilt að raska hreiðrum og trufla fugla á þessum tíma, nema sérstök undanþága sé veitt.

Spurningin sem vaknar er því einföld: fellur æðardúntekja innan þess ramma sem Evrópusambandið heimilar?

Æðurinn er villtur fugl

Fuglatilskipun Evrópusambandsins (2009/147/EB) byggir á almennri vernd villtra fugla. Í 5. grein hennar er lagt bann við að raska hreiðrum og að trufla fugla, sérstaklega á varptíma, ef slík truflun getur haft áhrif á varp. Spurningin um hvort nýting æðardúns sé heimil innan regluverks ESB er því ekki almenn, heldur lagaleg: Fellur slík umgengni við hreiður æðarfugla undir það sem tilskipunin skilgreinir sem óheimila truflun, eða undir heimilaða nýtingu samkvæmt undanþáguákvæðum hennar? Óumdeilt er að hér er um að ræða villta fugla sem falla undir tilskipunina.

Engin augljós sambærileg dæmi Innan Evrópusambandsins er að finna dæmi um nýtingu villtra fugla, svo sem eggjatöku á afmörkuðum svæðum, veiðar á sjófuglum og skotveiðar af bátum.

Slík starfsemi er þó almennt bundin við veiðar á fullorðnum fuglum, skýrt afmörkuð tímabil og svæði og fellur innan þess ramma sem tilskipunin heimilar eða undanþágur hafa verið veittar fyrir.

Æðardúntekja er augljóslega annars eðlis. Hún byggir á reglubundinni umgengni við hreiður villtra fugla á varptíma og tengist þannig beint þeim aðstæðum sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt tilskipuninni.

Erfitt er að finna nákvæmlega sambærileg dæmi innan Evrópusambandsins.

Undanþágur – en á hvaða forsendum?

Fuglatilskipunin gerir ráð fyrir undanþágum til skynsamlegrar nýtingar fugla. Samkvæmt 9. grein er heimilt að víkja frá verndarákvæðum hennar, en þessi heimild er skilyrt og á aðeins við ef:

  • engin önnur fullnægjandi lausn er til,
  • nýtingin er í takmörkuðum mæli,
  • og hún fer fram undir ströngu eftirliti.

Þá ber aðildarríkjum að skila reglulegum skýrslum til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um beitingu slíkra undanþága. Undanþágur eru því ekki frjálst samnings- atriði heldur hluti af regluverki sem Evrópusambandið skilgreinir og hefur eftirlit með.

Undanþága eða ósamrýmanleiki?

Af framansögðu leiðir að spurningin er hvort æðardúntekja fellur innan þess ramma sem Evrópusambandið er tilbúið að samþykkja sem undanþágu frá eigin verndarreglum? Sé svarið já þarf einnig að koma fram: við hvaða skilyrði, til hversu langs tíma og undir hvers konar eftirliti?

En jafnframt vaknar önnur spurning, sem hefur bein áhrif á starfsemina sjálfa:

Ef æðarrækt fellur ekki innan þessa ramma myndi það, við aðild Íslands að Evrópusambandinu, kalla á breytingar á framkvæmd hennar – og eftir atvikum leiða til þess að dúntekja yrði takmörkuð eða aflögð í núverandi mynd. Það er því ástæða til að spyrja skýrt áður en lengra er haldið:

Hvaða svigrúm er í raun til staðar fyrir æðarrækt innan regluverks Evrópusambandsins?

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...

Nokkur hundruð kíló ruku út
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætu...

Stefnt á mikla skógrækt
Fréttir 9. nóvember 2026

Stefnt á mikla skógrækt

Fyrirtækið Yggdrasill Carbon ehf., hyggst ráðast í skógrækt í landi Ljárskóga í ...

Áfram hægt að  kaupa hamsatólg
Fréttir 9. nóvember 2026

Áfram hægt að kaupa hamsatólg

Framleiðsla hamsatólgar heldur áfram. Í byrjun hausts leit út fyrir að Stóruvell...

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt
Fréttir 9. nóvember 2026

Olíuverð áfram hátt og sveiflukennt

Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá áramótum og Runólfur Ólafsson, framkvæm...