Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði
Mynd / Úr safni
Fréttir 16. mars 2026

Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði 80 milljónum króna til 42 verkefna sem fela í sér innleiðingu áburðartækni til að draga úr losun frá landbúnaði. Áætlaður samanlagður samdráttur vegna verkefnanna nemur 1.007 tonnum CO₂-ígilda á ári. Það jafngildir um 18% af allri losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar árið 2024.

Alls bárust 83 umsóknir um styrki að fjárhæð 282 milljónir króna. Stærsta úthlutunin var til verkefna sem sóttu um GPS áburðadreifara, búnaði til niðurfellingar áburðar og annarri tækni sem eykur nákvæmni við dreifingu og bætir nýtingu næringarefna. Lögð var áhersla á að forgangsraða verkefnum sem skila mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Þóttu GPS áburðadreifari og niðurfellingabúnaður hagkvæmustu leiðirnar.

Ekki var veittur styrkur til verkefna sem höfðu verið fjármögnuð og búnaður þegar kominn í notkun. Einnig fékkst ekki styrkur til kaupa á dráttarvélum, þar sem það þótti orka tvímælis að styrkja kaup á vélum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...