Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Mercedes-Benz GenH2. Væntanlegir kaupendur munu geta prófað bílinn 2023. Fjöldaframleiðsla á svo að hefjast á GenH2 einhvern tíma eftir 2025.
Mercedes-Benz GenH2. Væntanlegir kaupendur munu geta prófað bílinn 2023. Fjöldaframleiðsla á svo að hefjast á GenH2 einhvern tíma eftir 2025.
Fréttir 2. október 2020

Á að komast 1.000 km á vetnistanknum

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Daimler, framleiðandi Mercedes-Benz hefur unnið að vetnistækni í áratugi. Þar er nú verið að þróa vetnis-efnarafal sem á að skila Benz trukk allt að 1.000 kílómetra á einni tankfyllingu. Þarna er um að ræða næstu kynslóð flutn­inga­bíla til nota á löngum akstursleiðum í harðnandi samkeppni bíla­framleiðenda um að hemja kolefnisútblástur vegna dísilolíu frá þungum ökutækjum.

Eins og greint var frá í Bændablaðinu í febrúar sl., þá greindi Martin Daum, yfirmaður trukkaframleiðslu Mercedes-Benz, frá því á ráðstefnu í Berlín í október 2019 að fyrirtækið hygðist veðja á vetni og notkun efnarafala til lengri framtíðar. Það yrði einkum fyrir þung farartæki til langkeyrslu en rafhlöður yrðu fram að því í bílum til styttri ferða. Þess má til gamans geta að þessi sami Martin er góður vinur okkar einstaka Rallý-Palla, Páls Halldórs Halldórssonar. Hefur Martin m.a. komið við sögu í breytingarferlinu þegar Palla datt í hug á sínum tíma að gera venjulegan Mercedes-Benz Sprinter sendibíl að ofur-fjallatrukk. Eitthvað sem var þá víðs fjarri hugmyndaflugi bílahönnuða hjá Daimler. Út á þessa hugdettu Páls hafa þeir síðan selt fjöldann allan af dísilknúnum Sprinterbílum til breytinga í fjallatrukka á Íslandi.

Vetnisknúnir rafbílar

Vetnisknúnir bílar eru í raun rafbílar, eða tvinnbílar. Þar er orkumiðillinn vetni sem geymt er í fljótandi formi á tönkum þar til því er umbreytt eftir þörfum í raforku með aðstoð efnarafals. Nokkrir fleiri rútu- og trukkaframleiðendur hafa þegar lýst yfir svipuðum áformum Daimler og má því búast við að innviðauppbygging vegna vetnisbíla fari á fullt skrið innan tíðar í Evrópu og Norður-Ameríku.

Þegar hefur verið kynntur hugmynda­bíll Daimler sem nefndur hefur verið Mercedes-Benz GenH2. Samkvæmt frétt í Forbes munu væntanlegir kaup­endur geta prófað bílinn 2023. Fjöldaframleiðsla á svo að hefjast á GenH2 á síðari hluta komandi áratugar.

Mercedes-Benz eActros LongHaul er hreinræktaður rafmagnsbíll. Hann á að komast 500 km á einni rafhleðslu. Áætlað er að hefja framleiðslu á þessum cActros árið 2024.

Mercedes-Benz eActros seinkað um tvö ár

Daimler mun, þrátt fyrri að veðja á vetni fyrir stærri bíla, líka framleiða vörubíla fyrir styttri og miðlungsvegalengdir sem knúnir verða rafmagni og geyma orkuna í rafhlöðum. Þar verður m.a. um að ræða Mercedes-Benz eActros LongHaul, sem áður hefur verið sagt frá hér í Bændablaðinu, og á að komast 500 km á einni rafhleðslu. Áætlað er að hefja framleiðslu á þessum cActros árið 2024. Þetta er töluverð seinkun miðað við fyrri áform sem miðuðu við 2022, sem skýrist væntanlega af samdrætti á öllum sviðum iðnaðar vegna COVID-19.

Til að ná niður framleiðslu­kostnaði er ráðgert að orku- og drifkerfi bílsins verði samsett úr einingum (modular platform). Þannig verði auðvelt að breyta samsetningu eftir kröfum mis­munandi markaðssvæða.

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...