Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
300 milljóna uppgræðsla
Mynd / Úr safni
Fréttir 17. mars 2026

300 milljóna uppgræðsla

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Garðar Þorfinnsson og Hreinn Óskarsson frá Landi og skógi (LOGS) mættu nýlega á fund byggðaráðs Rangárþings ytra til að fara yfir framkvæmdir vegna uppgræðslu í sveitarfélaginu tvö sl ár.

Fram kom að LOGS hefur unnið á nokkrum svæðum í sveitarfélaginu að uppgræðslu, skógrækt, endurheimt birkiskóga og annarra landbóta. Flest eiga þessi svæði það sammerkt að vera innan starfssvæðis Hekluskóga. Þá kom fram hjá þeim félögum að veittir voru styrkir til einstaklinga, fyrirtækja og afréttarfélaga og fleiri í gegnum fjögur verkefni hjá LOGS. Í verkefninu Bændur græða landið eru 20 aðilar skráðir, 17 samningar eru í gildi um skógrækt á lögbýlum, sex aðilar fengu styrk úr Landbótasjóði, auk þess sem styrkir eru veittir til skjólbeltaræktunar á lögbýlum.

Í samantekt Garðars og Hreins kemur líka fram að umsvif Lands og skógar hafa verið umtalsverð í sveitarfélaginu á síðustu tveimur árum. Borið hefur verið á tilbúinn og lífrænn áburður á um 2.400 hektara, auk þess sem gróðursett hefur verið um 1,5 milljónir birkiplantna í valin svæði. Jafnframt voru lagðir 4,3 km af slóðum. Áætlaður heildarkostnaður LOGS við framkvæmdir árin 2024 og 2025 eru tæpar 300 milljónir króna í Rangárþingi ytra.

Hér má sjá sundurliðaðan kostnað verkefna Lands og skógar hjá Rangárþingi ytra árin 2024 og 2025.

Skylt efni: Skógrækt | Land og skógar

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...