Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Kjúklingavængir og bein í potti og uppbundinn kjúklingur. Fyrir og eftir – áhrifavalda-style
Kjúklingavængir og bein í potti og uppbundinn kjúklingur. Fyrir og eftir – áhrifavalda-style
Matarkrókurinn 23. apríl 2025

2 fyrir 1-tilboð

Höfundur: Haraldur Jónasson

Það að geta gert tvo hluti í einu eða fengið meira fyrir minna er alltaf æskilegt. Með því að úrbeina kjúkling er hægt að elda kjötið sér og nýta beinin og það sem fellur til í kraftmikið soð.

Allt sem tengist kjúklingi er náttúrulegt kraftaverk. Frá eggjum til beina. Hægt að gera fínasta mat úr öllu sem til fellur. Hvort sem það er heilgrillaður kjúklingur, Suðurnesjakjúlli eða bara eitthvað fljótlegt á pönnu með sósu úr búðinni.

Heill er kjúklingur uppfullur af bæði próteini og kollageni. Sem er hvort tveggja einmitt í tísku mataráhrifavalda um þessar mundir. Próteinið fáum við úr kjötinu en kollagenið sogast beinlínis úr beinunum og skinninu við langa suðu í vatni. Þannig að ef kjúllinn er úrbeinaður er hægt að ná hvort tveggja fyrir sama verð. Hver elskar ekki tveir fyrir einn?

Beinin burt

Það er ekki stórkostlega flókið að úrbeina kjúkling en það er samt smá nostur og það þarf að hafa flugbeittan hníf. Best að það sé úrbeiningarhnífur – en ekki hvað? Líka hægt að nota flökunarhníf eða bara lítinn kokkahníf.

Byrja á að skera mænuna úr og dudda svo með að skera meðfram rifjunum. Þangað til þau losna frá. Vængirnir eru svo litlir að þá tekur því ekki að úrbeina. Skera í burt og nota í soðið. Bringubeinið er tekið með því að skera meðfram bringunum, aftan frá, og nota puttana jafnhliða til að losa kjötið. Allt er þetta gert frá bakhliðinni. Skinnhliðin á að haldast heil.

Næst er að skera lærlegginn úr. Finna hvar lærbeinið liggur og skera þar sem kjötið er þynnst og skafa það svo beinlínis frá. Skera á liðinn og taka legginn úr og setja með hinum beinunum. Það sem eftir stendur er kjúklingur með tveimur beinum. Upp á lúkkið.

Öllum hnútum kunnug

Til að elda kjúklinginn sem jafnast er best að binda hann aðeins upp. Áður en bandið fer á er um að gera að salta innhliðina. Mataröruggu bómullarbandi þá vippað utan um ökklana á kjúklingnum og svo eru settar nokkrar lykkjur upp eftir bringunni og bandið svo þrætt niður eftir lykkjunum hinum megin. Ef ekkert er til bandið eða það gengur ekkert að binda er fræðilega hægt að nota tannstöngla til að halda kjúklingnum saman. Þarf þó ekki að vera fallega hnýtt. Bara ekkert losni í hitanum.

Næsta skref er að salta og krydda skinnhliðina með góðri kryddblöndu að eigin vali. T.d. með pipar, papriku- og hvítlauksdufti. Hita ofn í 250 gráður. Skutla kjúllanum á bakka, gott að lyfta honum frá botninum með grind eða grænmeti, og inn í ofn með hann. Eftir nokkrar mínútur, eða þegar kominn er sæmilegur litur á herlegheitin, er hitinn lækkaður í 185 gráður. Elda kjúklinginn þangað til miðjan á þykkasta hluta hans stendur í rétt um 70 gráðum eða svo. Tekur tæpan klukkutíma eða þar um bil.

Láta kjötið hvíla í nokkrar mínútur áður en það er borið fram. Með úrbeiningunni er hægt að skera kjúklinginn eins og brauð. Sérlega lekkert á borði og þægilegt.

Beinasoð

Í pott fer úrval af grænmeti, gjarnan því sem ekki er hugað að verða matur, til að sjóða með beinunum. Ekki er allt grænmeti jafngott í soð. Kál og þá sérstaklega hvítkálsættin er ekkert endilega það besta. Úr því lekur súlfúr og við það myndast ólukkans prumpukeimur – sem er óæskilegur. Laukur, gulrætur, sellerí, paprika, hvítlaukur og lárviðarlauf eru hins vegar æskileg blanda. Grófskera grænmetið og gott að skera á liðina í vængjunum. Þannig lekur úr þeim kollagenið. Bæta nokkrum piparkornum ef vill en ekkert salt á þessu stigi.

Bein úr einum kjúklingi duga í sirka einn lítra af vatni eða þar um bil. Um að gera að drýgja soðið með því að splæsa í einn bakka af vængjum með. Nú eða frysta beinin og gera soð í annað eða þriðja hvert skipti sem kjúklingur er á matseðlinum.

Best og fljótlegast er að nota hraðsuðupott og sjóða beinin undir þrýstingi í sirka klukkutíma og leyfa þrýstingnum að losna náttúrulega. Þannig tekur soðgerðin tæpa tvo tíma. Ef enginn er hraðsuðupotturinn er bara að sjóða upp á beinunum og halda pottinum rétt undir bullsuðu í 3–4 klukkutíma. Með þéttu loki til að missa ekki of mikinn vökva í uppgufun. Þau sem nenna veiða skánina sem rís upp við suðuna. Gott að byrja með örlítið meiri vökva til að fá lítrann í lokin.

Sigta beinin frá og þá er hægt að nota soðið strax eða kæla það niður og nota næstu daga. Ef vel tókst til ætti kollagenið að hafa umbreyst í gelatín. Það þekkist á því að þegar soðið er sæmilega kalt er það með geláferð.

Ef ekki á að nota soðið strax er hægt að frysta það og nýta hvenær sem er í kollagenríkan áhrifavalda-soðdrykk eða sem grunn í súpur og sósur. Flott að frysta flatt í endurlokanlegum pokum. Þá er hægt að brjóta soðbút af og nota þegar hentar. Líka hægt að frysta í klakabox og nota einn eða 10 soðklaka. Enn betra er, ef nota á klakaaðferðina, að sjóða soðið vel niður í kraftmeiri elexír og frysta svoleiðis klaka. Það eru algerar kraftaverkaklakabombur.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...