Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
126 milljónum úthlutað  til landbúnaðarverkefna
Fréttir 12. júní 2026

126 milljónum úthlutað til landbúnaðarverkefna

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Alls hlutu 42 verkefni styrk úr Matvælasjóði 2026 upp á 479,4 milljónir króna. 131 umsókn barst til sjóðsins upp á rúmlega tvo milljarða.

Matvælasjóður styrkir þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áherslur sjóðsins eru á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Hæstu styrkirnir nema 30 milljónum króna og voru sex verkefni sem hlutu þá upphæð. Hæstu styrkina fengu Háskólinn á Akureyri, Lava Seaweed ehf., Hafrannsóknastofnun, Háskóli Íslands, Von harðfiskverkun ehf., og Akurós ehf.. Tvö verkefni fengu þar að auki tæplega þrjátíu milljónir, en verkefni á vegum Háskóla Íslands og verkefni á vegum Matís hlutu 29,9 milljónir hvort um sig.

Mest fór af styrkjum til verkefna í matvælaiðnaði, sem nam 231 milljón króna. Næstmest fór til landbúnaðarverkefna, upp á 126 milljónir króna. Þá fóru 63 milljónir í verkefni tengd sjávarútvegi, 51 milljón í fiskeldi og 8 milljónir í verkefni tengd hringrásarkerfum.

Styrkurinn skiptist í fjóra flokka: Bára er flokkur verkefna á hugmyndastigi, Kelda er fyrir rannsóknarverkefni sem skapa nýja þekkingu og grunn að verðmætasköpun framtíðar, Afurð snýr að mótun og þróun afurða sem komnar eru af hugmyndastigi en ekki tilbúnar til markaðssetningar og Fjársjóður er flokkur sem snýr að markaðssókn, markaðsinnviðum og útflutningi fullmótaðara afurða úr íslenskum hráefnum. Alls hlutu 22 verkefni styrk í flokki Báru, 8 verkefni í flokki Keldu, 9 verkefni í flokki Afurðar og 3 verkefni í flokki Fjársjóðs. 69% styrkja rann til landsbyggðarinnar og 31% til verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Mest fór til Suðurlands á landsbyggðinni en 19% styrktra verkefna eru staðsett þar og næstmest til Norðurlands eystra en þar eru 16% styrkþega.

Á vef stjórnarráðsins segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra: „Líkt og fram kom í úttekt sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerði þá hefur sjóðurinn skapað umtalsverðan ávinning fyrir íslenska matvælageirann. Sjóðurinn hefur því svo sannarlega sannað gildi sitt og er afar mikilvægur fyrir nýsköpun, og þar með verðmætasköpun, í íslenskri matvælaframleiðslu.“ Þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman
Fréttir 26. október 2026

Gjaldheimta eykst á meðan fjárveitingar dragast saman

Ný greining Samtaka iðnaðarins (SI) bendir til þess að sífellt stærra bil sé að ...

Hertar reglur um blý í skotfærum
Fréttir 26. október 2026

Hertar reglur um blý í skotfærum

Frestur til að gera athugasemdir við herta löggjöf Evrópusambandsins um blý í sk...

Óþroskað bygg nefnt léttbygg
Fréttir 26. október 2026

Óþroskað bygg nefnt léttbygg

Léttbygg má nota í fóður og sem trefjagjafa í bakstur segir í nýrri skýrslu sem ...

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...