Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum.
ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum.
Mynd / Aðsend
Menning 6. júlí 2026

ListaVestrið haldin í fimmta sinn

Höfundur: Þröstur Helgason

ListaVestrið, menningarhátíð á Flateyri, fer í ár fram dagana 11. – 19. júlí 2026 og verður þá haldin í fimmta sinn. Opnun hátíðarinnar fer fram 11. júlí kl. 15.00 á Sólbakka. Alls taka 15 listamenn þátt í ListaVestrinu í ár.

ListaVestrið er vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum. ListaVestrið sameinar starfsemi þriggja sýningarrýma á Flateyri, Gallerísins Undir brúnni, Gömlu Slökkvistöðvarinnar og Tanksins á Sólbakka, sem öll hafa undanfarin ár staðið fyrir listviðburðum, sýningum og opnunum. 

Á aðaldagskrá ListaVestursins í sumar verða fjórar myndlistarsýningar sem endurspegla ólíkar nálganir og breidd innan íslenskrar samtímamyndlistar. Í Gömlu Slökkvistöðinni munu Jón Óskar og Hulda Hákon sýna verk sín þar sem efniskennd, litur og rými fléttast saman í heildstæða upplifun. Undir brúnni mun Krassasig (Kristinn Arnar Sigurðsson) gera staðbundna innsetningu sem nýtir sérkenni rýmisins og opnar á nýja skynjun á umhverfi og samhengi staðarins. Í Tankinum (neðri hæð) sýna Ísfirðingarnir og systkinin Gunnar og Rannveig Jónsbörn verk sín sem og föður þeirra, Jóns heitins Sigurpálssonar. Á efri hæð Tanksins sýna svo þeir Einar Örn Benediktsson tón- og myndlistarmaður auk þess sem Jóel Pálsson saxafónleikari flytur hljóðverk sitt.

Sem fyrr verða, auk ofangreindra sýninga, fjöldi annarra innsetninga og sýninga settar upp víða á Flateyri, sem utandagskrár/“off-venue” sýningar. Þá verður gestum hátíðarinnar boðið að spreyta sig á að mála fjallið Þorfinn sem stendur handan fjarðar.

Nánari upplýsingar um dagskrá ListaVestursins í ár má finna á samfélagsmiðlum og vef hátíðarinnar.

Í ár er jafnframt bryddað upp á nýjung sem er barnadagskrá í formi Listasmiðju ListaVestursins. Um er að ræða þriggja daga listasmiðju 14. – 17. júlí í Samkomuhúsinu á Flateyri fyrir börn á aldrinum 9–13 ára, undir leiðsögn Fannars Arnars Finnssonar og Einars Árnasonar. Í listasmiðjunni munu börnin kanna umhverfi sitt á Flateyri með skissubókum, vinna áfram með hugmyndir sínar í samvinnu við leiðbeinendur og önnur börn og setja svo verk sín fram á lokasýningu Listasmiðju ListaVestursins.

Skylt efni: menning

Réttalistinn 2026
Líf og starf 2. september 2026

Réttalistinn 2026

Bændablaðið hefur síðustu ár tekið saman réttalista og birtast hér dagsetningar ...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 31. ágúst 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni sem birtist í 15. tölublaði Bændablaðsins.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 27. ágúst 2026

Stjörnuspá vikunnar

Meyjan þarf að muna að enginn mannlegur einstaklingur er gallalaus. Hvorki hún s...

Vaðmál og voðir
Líf og starf 26. ágúst 2026

Vaðmál og voðir

Bör Börsson, söguhetja samnefndrar skáldsögu sem flutt var í Ríkisútvarpinu árin...

Þeir skora sem þora!
Líf og starf 25. ágúst 2026

Þeir skora sem þora!

Hart var barist fram á síðasta spil og úrslit tvísýn í viðureign Vestra gegn Kjö...

Teflt erlendis
Líf og starf 25. ágúst 2026

Teflt erlendis

Íslendingar hafa verið iðnir við að tefla erlendis í sumar eins og venjan er. Þó...

Hvað er svona merkilegt  við íslensku ullina?
Hannyrðahornið 24. ágúst 2026

Hvað er svona merkilegt við íslensku ullina?

Landnámsmenn sem fóru þarna forðum frá Skotlandi, Noregi og víðar og héldu í nor...

Vísnahornið
Líf og starf 24. ágúst 2026

Vísnahornið

Stera-Pétur læknir fékk sitt auknefni vegna ummæla er féllu, varðandi notkun kra...