Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Góða peysan
Hannyrðahornið 28. maí 2015

Góða peysan

Þessi fallega peysa hentar jafnt stelpum sem strákum. Tyra garnið okkar er mjúkt og mjög gott að prjóna úr því. Garnið er til í mörgum litum og er á afslætti hjá okkur núna, 250 kr. dokkan. 
 
STÆRÐ
(1-2 ára) 3-4 ára (5-6 ára) 7-8 ára.
Yfirvídd: (58) 65 (72) 79 cm.
Lengd á bol að handveg: (23) 27 (31) 37 cm
Lengd á peysu: (38) 43 (49) 56 cm
Ermalengd að handveg: (22) 25 (28) 33 cm
 
GARN:
Tyra garn frá Garn.is.
Litur 1: AN2138 bleikur eða AN6053 grænblár (150) 200 (250) 300 gr.
Litur 2: AN1122 rjómahvítur eða AF9141 silfurgrár (100) 100 (150) 150 gr.
Litur 3: AN7054 grænt eða AN3145 ryðrautt 50 gr. í allar stærðir
Skoðið litaúrvalið fyrir Tyru á http://handverkskunst.is/voruflokkur/garn/garn-is/tyra/
PRJÓNAR
Hringprjónar 60 cm, nr 3 og 4,5
Sokkaprjónar nr 3 og 4,5
 
PRJÓNFESTA
21 lykkja og 28 umf slétt prjón = 10x10 cm
Sannreynið prjónafestu og skiptið um prjóna ef með þarf.
 
LEIÐBEININGAR
Stroff: 1 slétt og 1 brugðin. 
Laskaúrtaka: Fellið af við hvert prjónamerki, þannig: prjónið þar til 3 lykkjur eru að prjónamerki takið 1 lykkju óprjónaða eins og eigi að prjóna hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju slétt, flytjið prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman = fækkað um 8 lykkjur.
 
Bolur
Fram- og bakstykki er prjónað í hring, fitjið upp (128) 144 (160) 176 lykkjur á prjóna nr 3 með lit 1. Tengið í hring og prjónið stroff (4) 4 (4) 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón nr 4,5 og prjónið slétt þar til bolur mælist (17) 21 (25) 33 cm, mælt með stroffi. Prjónið munstur 1, eftir að munstri lýkur prjónið með lit 1 þar til bolur mælist (23) 27 (31) 39 cm. Setjið (6) 6 (6) 8 lykkjur á aukaþráð/nælu fyrir ermaop og prjónið (58) 66 (74) 80 lykkjur, setjið aftur (6) 6 (6) 8 lykkjur á aukaþráð/nælu, prjónið (58) 66 (74) 80 lykkjur. Geymið bol og prjónið ermar.
 
ERMAR
Fitjið upp (40) 42 (44) 44 lykkjur  með lit 1 á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff (4) 4 (4) 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið slétt prjón í hring. Aukið út undir miðri ermi um 2 lykkjur í 6. hverri umf alls
 
(5) 5 (7) 8 sinnum = (50) 52 (58) 60 lykkjur. Prjónið þar til ermi mælist (15) 18 (21) 26 cm og prjónið munstur 1 og passið að miðjan á einni rósinni lendi á miðri ermi. Eftir að munstri lýkur prjónið með lit 1 þar til ermin mælist (22) 25 (28) 33 cm. Setjið (6) 6 (6) 8 lykkjur undir miðri ermi á aukaþráð/nælu. Prjónið  aðra ermi eins.
 
AXLASTYKKI
Sameinið bol og ermar á hringprjón nr 4,5 = (204) 224 (252) 264 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki.  Umferðin byrjar nú á samskeytum bakstykkis og vinstri ermar. Prjónið eina umferð slétt með lit 1  og síðan munstur 2. Laskaúrtaka hefst í upphafi munsturs 2.
 
Laskaúrtaka: Fellið af við hvert prjónamerki, þannig: prjónið þar til 3 lykkjur eru að prjónamerki takið 1 lykkju óprjónaða eins og eigi að prjóna hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju slétt, flytjið prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman = fækkað um 8 lykkjur í umferðinni. Úrtakan er gerð í annarri hvorri umferð þar til eftir verða ca (76) 78 (80) 84 lykkjur, klippið bandið. Setjið (14) 14 (16) 16 lykkjur á miðju framstykki á aukaþráð/nælu. Umferðin byrjar nú á á framstykki. Prjónið fram og til baka 6 umferðir, haldi áfram með laskaúrtöku en fellið jafnframt af 1 lykku við hálsmál (eða setjið á aukaþráðin/næluna). Sameinið nú lykkjurnar af aukaþráð/nælu (og líka þær lykkjur ef þið hafið fellt þær af). Skiptið yfir á hringprjón nr 3 tengið í hring og prjónið stroff (5) 5 (6) 6 cm. Fellið laust af og saumið stroffið niður til hálfs frá röngu.
 
FRÁGANGUR
Lykkið saman undir höndum, gangið frá endum.
Góða skemmtun, Inga Þyri Kjartansdóttir

4 myndir:

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!
Líf&Starf 10. maí 2022

Heitt poppkorn er hollt sælgæti!

Svo hljóðaði auglýsing er birtist á síðu Morgunblaðsins í júlílok árið 1968 - en...

Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflað...

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!
Líf&Starf 19. apríl 2022

Fimm hurða farsi leikfélags Hólmavíkur!

Nú hefur leikfélag Hólmavíkur sett upp farsann Bót og betrun eftir Michael Coone...

Ef væri ég gullfiskur!
Líf&Starf 28. mars 2022

Ef væri ég gullfiskur!

Spéfarsinn „Ef væri ég gullfiskur“ eftir Árna Ibsen, í flutningi leikfélags Umf....

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði
Líf&Starf 16. mars 2022

Ekki um ykkur! Verk Leikfélags Menntaskólans á Ísafirði

Leikfélag Menntaskólans á Ísafirði frumsýndi leikritið „Ekki um ykkur” eftir Gun...

Verndarar láðs & lagar
Líf&Starf 14. mars 2022

Verndarar láðs & lagar

Þegar verndarar láðs og lagar ber á góma er gaman að rekast á þá þar sem maður á...

Flestir gullsmiðir voru bændur
Líf&Starf 28. febrúar 2022

Flestir gullsmiðir voru bændur

Árið 2011 hlaut Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður þakkarviðurkenningu FKA – Fé...

Hann á það skilið? Á hann það skilið?
Líf&Starf 2. febrúar 2022

Hann á það skilið? Á hann það skilið?

Í kaflanum „Misseristalið og tildrög þess“ eftir Þorkel Þorkelsson, í 1. tbl. Sk...