Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Yfirlýsing hestamanna vegna samgönguáætlunar 2026–2040
Skoðun 10. ágúst 2026

Yfirlýsing hestamanna vegna samgönguáætlunar 2026–2040

Höfundur: Halldór H. Halldórsson

Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.

Samþykkt Alþingis á samgönguáætlun 2026–2040 veldur íslenskum hestamönnum miklum vonbrigðum. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar frá Landssambandi hestamannafélaga, Reiðvega- og samgöngunefnd LH, hestamannafélögum um allt land og fjölmörgum öðrum hagsmunaaðilum var ákveðið að halda árlegu framlagi ríkisins til reiðvegamála óbreyttu í 100 milljónum króna næstu fimmtán árin.

Þetta er ekki óbreytt staða. Þetta er áframhaldandi niðurskurður.

Á meðan verðlag og framkvæmdakostnaður hækka ár frá ári stendur fjárveitingin í stað. Raunvirði hennar rýrnar því stöðugt. Alþingi hefur þannig samþykkt að fjárfesting ríkisins í reiðvegakerfi landsins dragist saman ár eftir ár allt til ársins 2040.

Stöðug rýrnun á framlögum ríkisins til reiðvegamála hefur átt sér stað frá árinu 2009 er framlagið var 70 milljónir króna. Framreiknað til dags í dag með verðlagsreiknivél Hagstofunnar jafngilti það 143 milljónum króna.

Þessi ákvörðun er alvarleg afleiðing fyrir öryggi, innviði og samfélagið.

Reiðvegir eru ekki sérhagsmunamál. Þeir eru öryggisinnviðir.

Þúsundir hestamanna ferðast daglega eða reglulega um reiðleiðir sem víða liggja meðfram eða þvera fjölfarna þjóðvegi. Þegar hestar og bifreiðar mætast við slíkar aðstæður skapast hætta, ekki aðeins fyrir knapa og hesta heldur einnig ökumenn, farþega og aðra vegfarendur.

Sama samfélag og byggir göngu- og hjólastíga til að tryggja öryggi vegfarenda hlýtur einnig að tryggja öruggar reiðleiðir. Uppbygging reiðvegakerfis er fyrst og fremst fjárfesting í umferðaröryggi.

Þetta mál snýst um fólk.

Í Landssambandi hestamannafélaga eru nær 14.000 skráðir félagsmenn í 40 hestamannafélögum víðs vegar um landið og þar að auki stunda fjölmargir hestamennsku án félagsaðildar. Tugþúsundir landsmanna nýta reiðleiðir til íþróttaiðkunar, útivistar og ferðalaga.

Hestamennska er jafnframt ein fárra íþróttagreina sem sameinar börn, unglinga og fullorðna í sama áhugamáli og innan sömu fjölskyldna. Öruggar reiðleiðir eru því samfélagslegir innviðir sem þjóna öllum kynslóðum.

Reiðleiðir eru jafnframt elstu samgönguinnviðir Íslands.

Um þær fóru landnemar, bændur, póstar, prestar, alþingismenn og ferðamenn öldum saman. Þær eru hluti af sögu þjóðarinnar og lifandi menningararfi sem á sér fáa líka. Íslenski hesturinn er eitt sterkasta tákn landsins og hornsteinn hestatengdrar ferðaþjónustu sem skapar þjóðarbúinu verulegar tekjur á hverju ári.

Því er óskiljanlegt að stjórnvöld skuli láta þá innviði sem þessi starfsemi byggir á halda áfram að rýrna.

En það sem vekur hvað mesta furðu er að stjórnvöld skuli líta fram hjá eigin faglegu ráðgjöf.

Árið 2022 skipaði innviðaráðherra starfshóp til að fara yfir stöðu reiðvegamála og leggja fram tillögur um framtíðarfjármögnun þeirra. Starfshópurinn skilaði niðurstöðum sínum í byrjun árs 2023 og lagði til að hóflegt árlegt framlag ríkisins til reiðvega yrði 300 milljónir króna.

Engin þessara ráðlegginga endurspeglast í samgönguáætluninni.

Því spyrjum við:

Til hvers var skipaður starfshópur á vegum innviðaráðherra ef niðurstöður 10% afsláttur hans áttu aldrei að hafa áhrif á ákvarðanir stjórnvalda?

Þegar stjórnvöld kalla sjálf eftir faglegri vinnu en líta síðan fram hjá niðurstöðum hennar, er grafið undan trausti á stjórnsýslunni og því samráði sem stjórnvöld segjast vilja byggja á.

Íslenskir hestamenn hafna þessari niðurstöðu.

Við sættum okkur ekki við að öryggi þúsunda vegfarenda verði látið víkja.

Við sættum okkur ekki við að ein fjölmennasta íþrótta- og útivistargrein landsins búi við innviði sem rýrna ár frá ári.

Við sættum okkur ekki við að elstu samgönguinnviðir þjóðarinnar verði látnir grotna niður með hægfara vanrækslu.

Við krefjumst þess að samgönguáætlun verði endurskoðuð og að fjárframlög til reiðvegamála taki mið af raunverulegum kostnaði, verðlagsþróun og þeirri samfélagslegu þýðingu sem reiðvegakerfið hefur fyrir umferðaröryggi, íþróttir, lýðheilsu, ferðaþjónustu, byggðaþróun og menningararf þjóðarinnar.

Við skorum á Alþingi og ríkisstjórn að leiðrétta þessa ákvörðun áður en frekari hnignun verður á reiðvegakerfi landsins.

Þjóð sem talar um öryggi vegfarenda, eflingu útivistar og vernd menningararfs getur ekki um leið samþykkt að elstu samgönguinnviðir landsins skuli rýrna ár eftir ár. Það er ekki ábyrg samgöngustefna. Það er vanræksla.

Halldór H. Halldórsson, fv. formaður ferða- og samgöngunefndar LH.

Skylt efni: Hestamenn | reiðstigar

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra
Skoðun 19. september 2026

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra

Ég starfa sem leiðsögumaður og hef ég stoltur ferðast með ferðamenn, innlenda se...

Atkvæðisréttur í veiðifélögum
Skoðun 16. september 2026

Atkvæðisréttur í veiðifélögum

Hinn 17. desember 2025 kvað Hæstiréttur upp dóm í máli nr. 16/2025 sem varðar gr...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 11. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Ríkisstjórnin virðist ætla að taka alla slagi sem bjóðast í íslenskri pólitík. N...

Hið raunverulega verkefni er fram undan
Skoðun 11. september 2026

Hið raunverulega verkefni er fram undan

Eftir marga mánuði af samræðum, viðræðum, rökræðum og hreinu rifrildi var niðurs...

Nú tekur vinnan við
Skoðun 10. september 2026

Nú tekur vinnan við

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur nú fyrir og meirihluti kjósenda vill...

Tímanleg hönnun sparar tíma við fjárfestingastuðningsumsóknir
Skoðun 8. september 2026

Tímanleg hönnun sparar tíma við fjárfestingastuðningsumsóknir

Bændur sem hyggjast sækja um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda í nautgripa- ...

Ófæddu börnin gráta ekki
Skoðun 8. september 2026

Ófæddu börnin gráta ekki

Þegar gerð EES-samningsins stóð sem hæst hafði Jón Baldvin Hannibalsson, þáveran...

Stutt saga Íslands – auðlindir og ESB
Skoðun 7. september 2026

Stutt saga Íslands – auðlindir og ESB

Lífsafkoma Íslendinga hefur ávallt byggst á því að nýta auðlindir Íslands. Í þús...

Fjögur sunnudagsskákmót
23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands
22. september 2026

Eitt stærsta skordýrasafn Austurlands

Græðgin er óseðjandi púki
23. september 2026

Græðgin er óseðjandi púki

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

Hátíðin Hamraborg Festival
22. september 2026

Hátíðin Hamraborg Festival