Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Vöndum til verka við endurheimt votlendis
Skoðun 22. júní 2026

Vöndum til verka við endurheimt votlendis

Höfundur: Ágústa Helgadóttir og Vigfús Ægir Vigfússon
Ágústa Helgadóttir.

Þegar ákvörðun er tekin um að endurheimta votlendi þá er ýmislegt sem þarf að undirbúa áður en ráðist er í framkvæmdir. Það er nefnilega ekki nóg að moka bara jarðvegi ofan í skurð og láta þar við sitja. Endurheimtin hefst með grunnúttektum sem kortleggja endurheimtarsvæðið vel með tilliti til vatnsrennslis, halla lands, ruðninga og einnig hversu vel fært er fyrir vélar um svæðið. Ef svæðið er mjög blautt þá er ekki hægt að framkvæma á hvaða vél sem er. Verkið þarf þá að vinna á léttari vélum með breiðum spyrnum til að hámarka árangur. Grunnúttektirnar eru því mikilvægt undirbúningsskref sem mótar framkvæmdina og tryggir að rétt sé staðið að endurheimtinni.

Tilgangur endurheimtarað- gerðanna er að hækka grunn- vatnsstöðu mýra þannig að vatn dreifist jafnt um og að allt framræst land innan svæðisins verði blautt á ný til að endurheimta þá vistkerfisferla sem hafa raskast við framræslu.

Vigfús Ægir Vigfússon.

Endurheimtaraðgerðir á framræstum svæðum er almennt best að vinna síðsumars. Þá má gera ráð fyrir að varpi fugla sé lokið og að svæðin séu alla jafna þurrust en mikilvægt er að hafa í huga að hætta er á að vanmeta vatnsmagn svæðisins síðsumars. Vatnsmagn svæða getur breyst hratt eftir veðri, t.d. eftir miklar haustrigningar. Forskoðun fyrr á sumartímanum er því mikilvæg til þess að hægt sé að gera sér grein fyrir því hvernig vatn dreifist um svæðið og hvaða tími ársins hentar best til aðgerða. Algengt er að halli lands og vatnsmagn sé vanmetið á framkvæmdarsvæðum. Halla í landslagi er oft erfitt að greina með berum augum, sérstaklega ef hann er lítill. Alltaf má leita til starfsfólks Lands og skógar ef hæðarlíkön eða betri kortagögn vantar áður en hafist er handa.

Við framkvæmdirnar sjálfar er mismunandi aðferðum beitt eftir aðstæðum. Auk stífla eru skurðir þveraðir með svokölluðum þverböndum til þess að dreifa vatni betur um endurheimtarsvæðið. Stíflurnar eru gerðar úr mó (mýrarjarðvegi) og þeim er hlaðið vel upp og út fyrir skurðinn þar sem jarðvegur þjappast verulega með tímanum. Vel staðsett og vönduð þverbönd auka líkurnar á að vatnið haldi áfram að renna eftir landslaginu en leiti ekki til baka ofan í skurðstæðið og ryðji stíflunum burt. Ef ræsi eru til staðar undir yfirborði innan svæðis þarf að gæta þess að stífla þau vel. Mikilvægt er að vinna verkið vel frá byrjun svo ekki þurfi að framkvæma aftur. Ef grunnúttektir og framkvæmdir hafa tekist vel þá ætti vatnsstaða að hækka og votlendisgróður að þrífast á ný með tilheyrandi fuglalífi.

Land og skógur býður upp á námskeið fyrir verktaka í endurheimt votlendis einu sinni á ári. Eftir námskeiðið fá þátttakendur staðfestingarskjal sem hægt er að framvísa þegar sótt er um að sinna verkefnum tengdum endurheimt votlendis. Fram undan eru margvísleg verkefni á sviði endurheimtar votlendis um allt land og eftirspurn eftir verktökum verður töluverð. Skilyrði fyrir ráðningu er að hafa lokið námskeiði um endurheimt votlendis og því er þetta kjörið tækifæri fyrir verktaka að undirbúa sig. Frábær mæting var á námskeiðið sem haldið var núna í maí. Sendið póst á votlendi[hjá]logs.is til að skrá ykkur á biðlista fyrir næsta námskeið!

Höfundar eru sérfræðingar hjá Landi og skógi.

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi
Skoðun 3. nóvember 2026

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi

Menntun frjótækna og aðbúnaður við meðhöndlun gripa voru meðal umræðuefna á ráðs...

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...

Aldarafmæli Huppu á Kluftum  á Flúðum 3. nóvember 2026
Skoðun 2. nóvember 2026

Aldarafmæli Huppu á Kluftum á Flúðum 3. nóvember 2026

Þegar þekktar persónur eiga stórafmæli er því stundum fagnað á einhvern hátt. Hu...

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfal...

Ósýnilegt friðartákn
Skoðun 2. nóvember 2026

Ósýnilegt friðartákn

Friðarsúlan í Viðey, útilistaverk Yoko Uno til heiðurs minningu eiginmanns henna...

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar
Skoðun 2. nóvember 2026

Áætluð eignamörk 1.150 jarða birt til umsagnar

HMS hefur lokið við að áætla eignamörk um 1.150 jarða á Norðausturlandi og Austu...

Frá hraða til áfallaþols
Skoðun 29. október 2026

Frá hraða til áfallaþols

Ísland hefur náð miklum árangri í uppbyggingu fjarskiptainnviða. Vegferðin hefur...

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun 28. október 2026

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mör...