Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Þétting byggðar og grænu  svæðin í Kópavogi
Skoðun 13. maí 2026

Þétting byggðar og grænu svæðin í Kópavogi

Höfundur: Beitir Ólafsson
Beitir Ólafsson.

Við hjá Miðflokknum teljum að vanda þurfi til verka þegar kemur að þéttingu byggðar, skoða hana af skynsemi svo hún komi ekki niður á innviðum, grunnþjónustu, íþróttastarfi, heilsugæslu og íbúum. Stoppa þarf aðför að grænum svæðum innan sveitarfélagsinns, auka viðhald og varðveislu þeirra í þágu íbúa.

Þéttingarstefna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er eitthvað sem við erum öll orðin vör við. Þéttingu byggðar hefur verið teflt fram óspart í sveitarstjórnarpólitík sem lausn á vandamálum innan sveitarfélagsins. Þétting byggðar er sögð eiga að laga húsnæðisvandann og oft talin hagkvæmur kostur þegar kemur að uppbyggingu sveitarfélags vegna auðveldrar tengingar við veitukerfi, skóla, leikskóla og við samgöngur. Allt hljómar þetta eins og sinfónía í eyrum hins almenna borgara þegar þetta er sett upp með þessu móti, en er þetta raunin? 

Hvaða raunverulegu áhrif hefur illa ígrunduð þétting byggðar á íbúa sveitarfélagsins og hvað sjáum við hafa raungerst?

Lóðir á þéttingarreitum eru alla jafna mjög dýrar sem skilar sér í hærra fasteigna- og leiguverði. Fjárhagslegir hagsmunir ráða oft ríkjum þegar skipulag og uppbygging hefst á þéttingarreitum. Vegna þess hve dýrar lóðirnar eru, svarar ekki kostnaði fyrir byggingaraðila að byggja hagkvæmar og lágreistar byggingar. Verktökum er í raun nauðugur einn kostur að hámarka fjölda íbúða og þá verður niðurstaðan oftar en ekki sú að byggja háreistar byggingar og þéttleikinn verður mikill. Þennan vítahring getur bara sveitarfélagið rofið.

Bílastæði svarar ekki þörfum íbúa, skuggavarp er meira og algengt er orðið að dagsbirtu og sólarljósi inn í íbúðir sé ábótavant. Þétting byggðar í grónum hverfum eykur umferðar- og hljóðmengun sem hefur verulega neikvæð áhrif á lýðheilsu íbúa.

Skólar og leikskólar svara ekki kalli þéttingarstefnu sveitarfélaganna. Börn komast ekki að í leikskóla sökum plássleysis og algengara er orðið að systkini fá ekki pláss í sama leikskóla. Skólabörnum er úthýst í tímabundnum úrræðum/útihúsum á skólalóð og sum hver jafnvel misst bókasafnið innan skólans undir kennslustofu vegna aðstöðuleysis. Með tilkomu útihúsanna er orðin veruleg skerðing á útileiksvæði barnanna. Nemendahópar í hverjum bekk eru orðnir of stórir vegna skorts á aðstöðu og miklar byrðar og aukið álag á kennara.

Íþróttir og tómstundir eiga undir högg að sækja vegna þéttingarstefnu sveitarfélaga. Fjöldinn orðin of mikill í sumum íþróttagreinum og komnir eru biðlistar. Ráða þarf inn fleira starfsfólk, auka þarf viðhald á innviðum og tækjabúnaði hjá félögum sem skilar sér í hærri iðgjöldum til iðkenda. Með hærri iðgjöldum skapast ójöfnuður og hvati til stéttaskiptingar innan sveitarfélagsins.

Grænu svæðin þarf að varðveita og viðhalda innan sveitarfélagsins og mega þau ekki víkja fyrir þéttingarstefnunni. Mikilvægi grænu svæðanna eru oft virt að vettugi þegar kemur að þéttingu byggðar og skipulagningu nýrra hverfa. Grænu svæðin innan sveitarfélags eru mikilvæg þegar kemur að lýðheilsu fólks, fólk leitar í þau til útiveru og samveru sem skilar sér í bættri sálrænni og félagslegri líðan. Einnig stuðla grænu svæðin innan þéttbýlis að bættum loftgæðum og draga úr hávaða og skjóli gagnvart vindi. Tryggja þarf aðgengi íbúa að grænum svæðum svo þeir njóti góðs af.

Höfundur býður sig fram í 3. sæti á lista fyrir Miðflokkinn í Kópavogi i komandi sveitarstjórnarkosningum.

 

Skylt efni: Kópavogur

Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla-...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 6. nóvember 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Í framhaldi af Jarmi síðasta blaðs var forvitnilegt að heyra svör Daða Más Krist...

Árangur með öflugum landbúnaði
Skoðun 6. nóvember 2026

Árangur með öflugum landbúnaði

Þegar þessi orð eru rituð er árleg fundaferð okkar stjórnarmanna og starfsfólks ...

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi
Skoðun 3. nóvember 2026

Íslenskir frjótæknar á Evrópuráðstefnu í Þýskalandi

Menntun frjótækna og aðbúnaður við meðhöndlun gripa voru meðal umræðuefna á ráðs...

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu
Skoðun 2. nóvember 2026

Fjárlögin enda alltaf á eldhúsborðinu

Fjárlög eru gjarnan rædd í milljörðum. Tekjur ríkissjóðs, útgjaldarammar, fjárhe...

Aldarafmæli Huppu á Kluftum  á Flúðum 3. nóvember 2026
Skoðun 2. nóvember 2026

Aldarafmæli Huppu á Kluftum á Flúðum 3. nóvember 2026

Þegar þekktar persónur eiga stórafmæli er því stundum fagnað á einhvern hátt. Hu...

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfal...

Ósýnilegt friðartákn
Skoðun 2. nóvember 2026

Ósýnilegt friðartákn

Friðarsúlan í Viðey, útilistaverk Yoko Uno til heiðurs minningu eiginmanns henna...