Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Leiðari 18. ágúst 2025

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Það er makalaust hvað samfélagsumræðan getur verið skrýtin. Í tilefni af fréttum um verðbólgumælingu Hagstofunnar í júlímánuði er Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í viðtali í sjónvarpsfréttum RÚV. Þar bendir hún á að fyrirtæki í landinu hafi ekki staðið við loforðin sem gefin voru í síðustu kjarasamningum um að halda aftur af verðhækkunum og nefnir að eldsneyti hafi ekki lækkað í takt við styrkingu krónu og heimsmarkaðsverð og svo telur hún miklar hækkanir á matvöru og raforku. Hún segir að stjórnvöld hafi brugðist algjörlega enda hafi orkan öll farið í eitt mál á vorþinginu og nánast ekkert verið gert í húsnæðismálum. Að því sögðu bætir hún við:

„Síðan höfum við séð hækkanir á kjöti og innlendri vöru sem að hluta til tengist þessum búvörulögum sem voru sett hérna í fyrra og núverandi stjórnvöld hafa ekki undið ofan af. Það mál var sett á ís á síðasta þingi og það má eiginlega segja að Alþingi hafi tapað sér í einu máli.“

Nú vill svo til að þessi búvörulög sem Halla nefnir voru sett með því yfirlýsta markmiði að hagræða í sláturhúsarekstri í landinu sem um áratugi hefur verið óhagstæður bændum og neytendum. Breytingin á lögunum var beinlínis gerð til þess að hækka afurðaverð til bænda og lækka verð til neytenda.

Nú er einnig svo að áhrifin af þessari breytingu á búvörulögunum eru ekki komin fram að neinu gagni því að þau sláturhús sem hafa verið sameinuð eru varla farin að leiða búfé til slátrunar en það mun gerast í talsvert auknum mæli í haust. Kannski vísar Halla til þess þegar hún með óljósum hætti talar um vöruhækkanir sem „að hluta til tengist þessum búvörulögum“.

Af þessum sökum er afar ólíklegt að hækkanir á kjötverði geti skýrst af breytingum á búvörulögum, enda benda bankarnir þvert á móti á að hækkun á matvælaverði stafi af því að verslunarrekendur hafi fært kjarasamningsbundnar launahækkanir beint út í vöruverð. Þeir benda á að verð á mat og drykk hafi raunar staðið nokkurn veginn óbreytt á milli síðustu mánaða og þetta sé raunar fyrsti mánuðurinn í ár þar sem matarkarfan hækkar ekki:

„Við höfðum áður bent á að hækkunarhrina matvæla á fyrri árshelmingi gæti brátt orðið bensínlaus og mæling júlímánaðar gefur til kynna að það gæti reynst rétt, að öðru óbreyttu. Við teljum ástæður vera þær að áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana hafa að mestu þegar komið fram,“ segir í greiningu Íslandsbanka.

Hér skal ekki gengið lengra en svo að kalla þetta ónákvæmt framlag til umræðunnar um verðbólgu af hálfu Höllu Gunnarsdóttur þótt það verði að teljast langt seilst að setja bændur og fyrirtæki þeirra á bás með verslunareigendum sem helstu sökudólga verðbólgunnar. Sömuleiðis er umhugsunarvert að sjá forystufólk í íslensku atvinnulífi reiða ítrekað hátt til höggs gagnvart bændum landsins sem, eins og allir vita, ríða nú fæstir feitum hesti frá viðskiptum með afurðir sínar.

Tækifæri til að gera betur
Leiðari 11. júní 2026

Tækifæri til að gera betur

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi veitir forvitnilega innsýn í íslensk...

Ráðherra mætti hlusta betur
Leiðari 29. maí 2026

Ráðherra mætti hlusta betur

Það skýtur skökku við að aldrei hafi verið meiri innflutningur á kartöflum en fr...

Skrílsháttur
Leiðari 15. maí 2026

Skrílsháttur

Sláandi fréttir bárust af innbroti í svínabúið Stjörnugrís í vikunni. Eins og fr...

Borg grámans
Leiðari 30. apríl 2026

Borg grámans

Reykjavíkurborg krefst þess að Gróðrarstöðin Mörk í Stjörnugróf fari af hluta ló...

Úr takti við tímann
Leiðari 16. apríl 2026

Úr takti við tímann

Ný atvinnustefna ríkisstjórnarinnar er úr takti við tímann í mikilvægum atriðum....

Nú þarf að láta verkin tala
Leiðari 7. apríl 2026

Nú þarf að láta verkin tala

Bændur komu saman á Búnaðarþingi í lok mars. Umfjöllunarefni þingsins var umfram...

Jarmað, hneggjað og baulað
Leiðari 13. mars 2026

Jarmað, hneggjað og baulað

„Það er óviðunandi og óþolandi að þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir tefjist um...

Upplýsingar vantar
Leiðari 12. mars 2026

Upplýsingar vantar

Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er nú ko...