Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Kúabændur - styðjum samkomulagið
Skoðun 26. nóvember 2019

Kúabændur - styðjum samkomulagið

Höfundur: Guðmundur Bjarnason, bóndi á Svalbarði
Guðmundur Bjarnason.

Nú liggur fyrir samkomulag um endurskoðun samnings okkar kúabænda. Við skoðun virðist þetta vel unnið og í samræmi við umræður og þá línu sem lögð var á aðalfundi LK síðastliðið vor, sem undirritaður sat. Því á ég erfitt með að skilja uppþotið sem hefur orðið í kringum þetta samkomulag. Vissulega hefði ég viljað sjá að við næðum öllum okkar kröfum í gegn, þá sérstaklega hvað varðar hámarksverð á kvótamarkaði.

Kúabændur kusu kvótann áfram

Undirskriftarlistinn sem okkur kúabændum var boðið að skrifa undir hér fyrir nokkrum dögum skildi ég ekki öðruvísi en hvatningu til okkar fólks að freista þess að ná fram skýrari línum í ákveðnum atriðum og er ekkert athugavert við það. Mér þykir mjög miður að atkvæðagreiðslunni hafi verið frestað enda flest þau atriði, sem ég og fleiri teljum að megi vera skýrari, verða unnin í gegnum komandi reglugerðarvinnu. Það kom mér á óvart að í kjölfarið myndu vakna upp gamlir draugar sem finna allt að kvótakerfinu, sérstaklega eftir að 89,4% kúabænda kusu kvótann áfram í vor

Gildistaka um áramót lykilatriði

Ég hef áhyggjur af því hvernig umræðan virðist vera að þróast. Einhverjir tala jafnvel um hálfklárað verk, en ég get ekki litið svo á. Veigamiklar og nauðsynlegar breytingar eru staðfestar í samkomulaginu, breytingar sem ég met að verði að taka gildi um áramót, annars er óvissa greinarinnar orðin nokkuð mikil enn og aftur. Ef að endurskoðaður samningur hefur ekki tekið gildi um áramótin þá heldur núgildandi samningur áfram. Það þýðir að viðskipti með greiðslumark verða engin enda hefur ríkið einungis innlausnarskyldu út árið 2019. Því skil ég ekki hvernig einstaka kúabændur geta lagt til að endurskoðun verði ekki kláruð fyrr en í maí á næsta ári, líkt og getið er um í aðsendri grein í Bændablaðinu nú fyrir stuttu. Því er ég algjörlega ósammála.

Ég sé heldur ekki hvað er slæmt við að verðlagsmálin verði eins og þau eru þar til starfshópur um þau hefur skilað af sér í maí. Verðlagsmálin eru okkur það mikilvæg að óábyrgt væri að ana að breytingum breytinganna vegna. Við kúabændur fáum að kjósa um þær niðurstöður starfshópsins og það mætti jafnvel líta svo á að þetta sé betra fyrirkomulag. Með þessu fáum við að taka afstöðu til einstakra atriða samkomulagsins.

Ég fagna því að samkomulagið sé komið fram og mun styðja það í atkvæðagreiðslu. Með gildistöku endurskoðunarinnar verður loks eytt þeirri óvissu sem kúabændur hafa búið við undanfarin ár, allt frá því ritað var undir að afleggja ætti kvótakerfið í samningum 2016.

Sérlausnin sem Írland féll á
Skoðun 20. mars 2026

Sérlausnin sem Írland féll á

Í umræðu um mögulegar sérlausnir innan Evrópusambandsins er gjarnan gengið út fr...

Landið er orðið grænna, en hvað segir það um okkur?
Skoðun 20. mars 2026

Landið er orðið grænna, en hvað segir það um okkur?

Við friðum svæði fyrir beit, lokum skurðum, sáum eða gróðursetjum. Nokkrum árum ...

Viljum við veikja heilbrigðiseftirlitið  á tímum netsölu?
Skoðun 19. mars 2026

Viljum við veikja heilbrigðiseftirlitið á tímum netsölu?

Tillögur ráðherra um breytingar á skipulagi opinbers eftirlits fela í sér grundv...

Ýmist elskaður eða hataður!
Skoðun 19. mars 2026

Ýmist elskaður eða hataður!

Hrafninn hefur löngum klofið skoðanir. Sumir sjá í honum svartklæddan váboða, að...

Fjarðarheiðargöng
Skoðun 18. mars 2026

Fjarðarheiðargöng

Varla kom nokkrum heilvita manni í opna skjöldu að hætt skyldi við Fjarðar- heið...

Hver eru markmiðin?
Skoðun 16. mars 2026

Hver eru markmiðin?

Ákveðið hefur verið að bera það undir þjóðina hvort halda eigi áfram viðræðum vi...

Matarkvíði
Skoðun 13. mars 2026

Matarkvíði

Fyrir þau okkar sem starfa í landbúnaði hafa síðustu ár einkennst af umræðu um f...

Nautgriparæktin á að vera leiðandi – ekki í vörn
Skoðun 12. mars 2026

Nautgriparæktin á að vera leiðandi – ekki í vörn

Nautgriparækt er ein af burðarstoðum íslensks landbúnaðar. Hún tryggir landsmönn...