Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Hræðslan við pöddur
Skoðun 6. júlí 2017

Hræðslan við pöddur

Höfundur: Vilmundur Hansen
Það er með ólíkindum hvað mörgum er illa við pöddur, hvaða nafni sem þær nefnast. Köngulær, geitungar, blaðlýs, ranabjöllur, humlur og svo ég tali nú ekki um snigla. 
 
Öll þessi dýr virðast í huga marga vera hræðileg óargakvikindi sem ekki mega sjást í görðum og hvað þá inni í húsum. Pöddunum skal útrýmt hvað sem það kostar.
 
Á hverju einasta sumri leggst annars nokkuð rétthugsandi og heilbrigt fólk í hernað sem hefur að markmiði að drepa sem allra mest af pöddum hvar sem til þeirra næst, hvort sem það er innan eða utandyra. 
 
Öllum brögðum er beitt og ekkert eitur er svo eitrað að ekki megi nota það í baráttunni við þessa óværu. Þetta gerist þrátt fyrir að flestir viti að öll þessi dýr þjóni tilgangi í náttúrunni, hvort sem það er að frjóvga blóm eða vera fæða fyrir önnur dýr. 
 
Smádýrin sem spretta upp á sumrin laðast flest að plöntum og eru fylgidýr aukins áhuga á garðrækt og hækkandi lofthita. Blóm og pöddur eru óaðskiljanleg og annað fæst ekki þrifist án hins. Pöddurnar frjóvga blómin og blómin eru fæða fyrir plönturnar. 
 
Einsleitt plöntuval í ræktun veldur því að ákveðnar tegundir padda fjölga sér mikið á skömmum tíma enda framboð á fæðu mikið. Yfirleitt ganga þessi blómaskeið paddanna yfir á nokkrum vikum og plönturnar jafna sig í flestum tilfellum aftur. 
 
Humlur og ánamaðkar eru líklega allra gagnlegustu smádýrin sem finnast í garðinum. Ánamaðkar flýta rotnun og grafa göng í jarðveginum sem vatn og næringarefni streyma um.
 
Fæstum er illa við ánamaðka enda fer lítið fyrir þeim og þeir sjást sjaldan nema í rigningu þegar þeir koma upp á yfirborðið til að drukkna ekki. 
 
Annað mál gildir um humlur og margir hreinlega hræddir við þær þótt sárasaklausar séu. Á Íslandi finnast fjórar eða fimm tegundir af humlum og ættum við að fagna hverri tegund. 
 
Víða um heim hefur býflugum fækkað gríðarlega og það mikið að til vandræða horfir í ávaxtaræktun. Býflugur finnast ekki villtar á Íslandi og margir rugla þeim saman við humlur enda skyldar tegundir og sinna báðar frjóvgun blóma. Haldi býflugum áfram að fækka vegna notkunar á skordýraeitri er raunveruleg hætta á að margar ávaxtategundir hverfi af markaði. 
 
Af öllum smádýrum sem heimsækja garðinn eru stórir sniglar að öllu jöfnu óvinsælastir. Sniglar eru hægfara, draumleit og værukær dýr sem halda sig í skugganum og líður best í röku loftslagi. 
 
Þeim líkt og börnunum finnst jarðarber og ferskt salat gott og kunna sér ekki magamál komist þeir í slíkt sælgæti. Þeir eru einnig sólgnir í bjór og hefur það orðið mörgum sniglum og mönnum að falli.
 
Séu sniglar skoðaðir nánar sést að þeir eru ótrúlegir og fallegir þegar þeir líða áfram á kviðlægum fætinum og teygja augnfálmarana rannsakandi út í loftið. Ólíkar tegundir lifa á landi, í sjó og ferskvatni og þeir eru til með og án kuðungs. Sumar tegundir eru tvíkynja sem þýðir að hittist tveir sniglar undir salatinu geta þeir frjóvgað hvor annan eða sjálfan sig séu þeir einir á ferð.  
Pöddur eru æði.

 

Skylt efni: Pöddur | skordýraeitur

Lausnin er landbúnaður
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslan...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðb...

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú ...

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...

Nóg til og meira frammi?
Skoðun 12. október 2026

Nóg til og meira frammi?

Það getur verið erfitt að taka umræðuna um fæðuöryggi alvarlega þegar hillur mat...