Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Ég er svín
Skoðun 15. mars 2022

Ég er svín

Höfundur: Vilmundur Hansen

Kínverska tunglalmanakið er það elsta í heimi. Tímatalið gerir ráð fyrir sextíu ára hring sem skiptist í sex tíu ára skeið, auk þess sem um er að ræða tólf undirflokka sem flokkast í dýr.

Rottan er tækifærissinni og fljót að átta sig á aðstæðum. Hefur tilhneigingu til að hamstra og vill helst ekki borga fyrir neitt. Við fyrstu kynni virðast rottur hjálpfúsar en undir yfirborðinu eru þær að öllu jöfnu smásmugulegar.

Nautið er traust, fast fyrir og skipulagt og vinnur markvisst að öllu sem það tekur sér fyrir hendur. Tryggur vinur en mjög langrækið. Það er spart á orð en kýs að láta verkin tala, nautið getur verið skapmikið.

Tígurinn er kraftmikill og lifir lífinu til fulls. Leggur sig allan fram við að leysa verkefni og gerir það iðulega af meira kappi en forsjá. Kýs spennu í samskiptum og á það til að vera sjálfselskur og sýna klærnar en getur líka átt til að vera örlátur.

Hérinn er lítið fyrir rifrildi og fer frekar en að standa í orðaskaki. Kurteis og á það til að svara því sem hann heldur að viðmælandinn vilji heyra fremur en að segja skoðun sína. Hérar eru lítið gefnir fyrir sviðsljósið en kjósa að vinna bak við tjöldin.

Drekinn er frumkvöðull og upptekinn af sjálfum sér. Á erfitt með að fylgja reglum sem aðrir hafa sett en vill að fólk fari eftir því sem hann segir. Ávallt tilbúinn til að hjálpa en stolts síns vegna þarf hann að vinna öll verk sjálfur enda þjarkur til vinnu.

Snákurinn er hrifinn af lífsins lystisemdum og sælkeri. Fésæll og treystir engum og getur verið mjög óvæginn til að ná settu marki. Í ástarmálunum er hann heimtufrekur, á erfitt með að fyrirgefa og gleymir aldrei.

Hesturinn er sívinnandi og hættir ekki við verk í miðju kafi. Fljótur að hugsa en á það til að framkvæma án þess að skoða heildarmyndina. Sjálfsöruggur og metnaðarfullur en hefur lítinn áhuga á því sem aðrir hafa til málanna að leggja.

Geitin er létt í lund, ástrík og örlát og á auðvelt með að aðlagast. Listfeng en ódugleg til verka og þarf því að leggja mikið á sig til að koma áformum sínum í framkvæmd.

Apinn er greindur og á auðvelt með að leysa flóknustu verkefni og notar allar brellur til að koma sér úr erfiðleikum og snúa málunum sér í hag. Vegna sjálfselsku sinnar gleymir apinn oft að hugsa um aðra og áhrif gerða sinna.

Haninn er félagsvera og nýtur sín best við athygli. Öruggur með sig og montinn, ákveðinn og með fullkomnunaráráttu. Kann ekki að ljúga og leggur því öll spilin á borðið.

Hundurinn er greindur, áreiðan­legur og með ríka réttlætis­kennd. Tryggur og alltaf reiðubúinn að hlusta á vandamál annarra. Duglegir til vinnu en hafa lítinn áhuga á auðsöfnun, þeim finnst gott að slappa af milli verka.

Svínið er heiðarlegt, örlátt og vinur allra. Lítið gefið fyrir orðaskak og fljótt að gleyma, baktalar aldrei fólk og trúir engu slæmu á aðra. Á það til að ofdekra sjálft sig og eyða öllu í munað og þægindi og helst vill það deila munaðinum með öðrum. 

Skylt efni: Svín Kína

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
Skoðun 27. október 2026

Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá

Hernaðurinn gegn Hamarsdal í gamla Djúpavogshreppi, nú Múlaþingi, heldur áfram. ...

Lausnin er landbúnaður
Skoðun 26. október 2026

Lausnin er landbúnaður

Haustið mætti aldeilis með látum á dögunum og minnti okkur á að við búum á Íslan...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 26. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Frumvarp Loga Einarssonar til breytinga á lögum um Ríkisútvarpið vekur hörð viðb...

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi
Skoðun 23. október 2026

Tryggjum raunverulegt fæðuöryggi

Nýverið greip ég nýútkomna bók eftir bandaríska höfundinn Annie Jacobsen, en sú ...

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði
Skoðun 21. október 2026

Útskýringar á andstöðu við laxeldi í sjókvíum á Seyðisfirði

Öldum saman hafa íbúar fjarðarins búið við margs konar hættur sem náið sambýli v...

Nýjasta þjóðaríþróttin
Skoðun 21. október 2026

Nýjasta þjóðaríþróttin

Það er farið að verða erfitt fyrir Seyðfirðinga að verjast þeirri tilfinningu að...

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna
Skoðun 16. október 2026

Smitvarnir og innflutningur laxahrogna

Í umfjöllun Bændablaðsins um innflutning frjóvgaðra laxahrogna frá AquaGen Profu...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framle...