Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Ályktun um orkuskipti í landbúnaði
Skoðun 20. maí 2026

Ályktun um orkuskipti í landbúnaði

Höfundur: Ottó Elíasson, Sigurður Líndal Þórarinsson og Sveinn Aðalsteinsson

Í kjölfar fjölmenns vefþings um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl síðastliðinn, haldið undir merkjum verkefnanna RECET og Value4Farm, leggja Eimur og Orkídea áherslu á eftirfarandi:

Í fyrsta lagi eru tækifæri til orkuskipta í landbúnaði raunveruleg og tæknilegar lausnir aðgengilegar víða um heim. Orkuskipti í greininni skipta sköpum fyrir orkuöryggi landsins og þar með matvælaöryggi þjóðarinnar. Stærstu tækifærin liggja í nýtingu lífmassa til framleiðslu lífgass sem unnið er úr lífrænum úrgangi, svo sem kúamykju og öðrum hliðarstraumum matvælaframleiðslu. Þessi auðlind er að stórum hluta í höndum bænda og felur í sér raunhæfa leið til að byggja upp innlenda og endurnýjanlega orkuframleiðslu sem annað getur drjúgum hluta eldsneytisþarfar innan greinarinnar.

Í öðru lagi hvetja Eimur og Orkídea stjórnvöld til að koma á fót markvissum stuðningi við uppbyggingu tveggja tilraunabúa þar sem framleiðsla og nýting lífgass úr lífmassa er innleidd og sannreynd við íslenskar aðstæður. Slík verkefni eru lykilforsenda þess að byggja upp traust, safna gögnum og reyna á þolmörk tæknilausna við íslenskar aðstæður áður en þær eru teknar upp í stærra mæli.

Í þriðja lagi er brýnt að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin á landinu varðandi lífgas og lífdísil sem orkugjafa. Nærtækast er að framleiða innlent eldsneyti úr líforku og ætti það að vera þáttur í bættu orkuöryggi þjóðar, rétt eins og fyrirhuguð lagasetning um 90 daga eldsneytisbirgðir á landinu. Innleiðing kílómetragjalds hefur haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni lífeldsneytis og núverandi regluverk styður ekki nægilega við orkuskipti á þessu sviði. Nauðsynlegt er að endurskoða fyrirkomulagið hið fyrsta, enda verður að telja ólíklegt að þessi niðurstaða hafi verið markmið stjórnvalda.

Að lokum er mikilvægt að horfa til heildarmyndarinnar. Stærstu einstöku þættirnir í auðtækum orkuskiptum hér á landi eru þungaflutningarnir, smábátaflotinn og landbúnaðartækin. Framgangur orkuskipta á þessum sviðum krefst skýrrar stefnu, samræmdra aðgerða og virks samstarfs stjórnvalda og atvinnulífs.

Eimur og Orkídea hvetja stjórnvöld til að stíga skýr og markviss skref í þessum efnum í nánu samstarfi við hagaðila, með það að markmiði að tryggja raunverulegan árangur í orkuskiptum, og lýsa sig reiðubúin að koma að þeirri vinnu með hverjum þeim hætti sem stjórnvöldum hugnast.

Ottó Elíasson og Sigurður Líndal Þórarinsson, Eimi. Sveinn Aðalsteinsson, Orkídeu.

Lárublómin í Færeyjum
Skoðun 2. október 2026

Lárublómin í Færeyjum

Arnþrúður Lára Pétursdóttir var fædd 6. apríl 1898 á Fremrihlíð, Hofssókn á Vopn...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 28. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Stundum þarf ekki stóra rannsókn til að afhjúpa áhugaverðan veruleika. Í síðasta...

Landsbyggðin og jafnræði
Skoðun 28. september 2026

Landsbyggðin og jafnræði

Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna það þykir eðlilegt að auknar álögur le...

Ég er ostur
Skoðun 25. september 2026

Ég er ostur

Tollflokkun á pálmaolíublönduðum mozarellaosti, sem í daglegu máli er ýmist kall...

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra
Skoðun 19. september 2026

Opið bréf til Náttúruverndarstofnunar, áður Umhverfisstofnun, og Húnaþings vestra

Ég starfa sem leiðsögumaður og hef ég stoltur ferðast með ferðamenn, innlenda se...

Atkvæðisréttur í veiðifélögum
Skoðun 16. september 2026

Atkvæðisréttur í veiðifélögum

Hinn 17. desember 2025 kvað Hæstiréttur upp dóm í máli nr. 16/2025 sem varðar gr...

Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 11. september 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Ríkisstjórnin virðist ætla að taka alla slagi sem bjóðast í íslenskri pólitík. N...

Hið raunverulega verkefni er fram undan
Skoðun 11. september 2026

Hið raunverulega verkefni er fram undan

Eftir marga mánuði af samræðum, viðræðum, rökræðum og hreinu rifrildi var niðurs...