Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Ljósvaki frá Valstrýtu á Landsmóti á Gaddstaðaflötum 2022 og knapi hans, Árni Björn Pálsson.
Ljósvaki frá Valstrýtu á Landsmóti á Gaddstaðaflötum 2022 og knapi hans, Árni Björn Pálsson.
Mynd / Kolla Gr.
Á faglegum nótum 20. mars 2023

Stóðhestar sem hlutu viðurkenningu fyrir afkvæmi haustið 2022

Höfundur: Halla Eygló Sveinsdóttir Elsa Albertsdóttir, ráðunautar í hrossarækt.

Hið alþjóðlega kynbótamat fyrir íslenska hestinn var reiknað eftir alla dóma ársins í lok október 2022 og birt í WorldFeng. Þar kom í ljós að tveir stóðhestar höfðu náð lágmörkum fyrir fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi, Ljósvaki frá Valstrýtu og Kolskeggur frá Kjarnholtum II. Kolskeggur var þegar búinn að ná þessum áfanga fyrir Landsmótið 2022 en mætti þar ekki með afkvæmahóp, en fékk hins vegar viðurkenningu á haustráðstefnunni. Þá náði Kjerúlf frá Kollaleiru lágmörkum fyrir heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Á landsmótsári er kynbótamatið reiknað tvisvar til að skera úr um hvaða hestar ná lágmörkum afkvæmaverðlauna. Fyrri keyrslan byggir þá á öllum dómum að loknum vorsýningum á Íslandi og stýrir sætaröðun hestanna sem mæta á Landsmótið. Alltaf ríkir mikil eftirvænting að sjá hvaða hestar ná þessum áfanga. Aðalkeyrsla kynbótamatsins er svo að haustinu að loknum öllum dómum hvers árs.

Áður hefur verið skrifað um áhrif þróunar kynbótamatsins síðustu ár og mögulegar skýringar á breytilegum niðurstöðum þess. Hvað afkvæmahross varðar hafa áhrifin líklega verið mest á hryssurnar vegna forvalsins en þó líka einhver á þá stóðhesta sem ná fyrstu verðlaunum.

Röðun hrossa, á alþjóðavísu, breyttist svo nokkuð með síðasta skrefi þróunarinnar, þegar hætt var að leiðrétta fyrir landi.

Lágmörk afkvæmahesta eru 118 stig í kynbótamati aðaleinkunnar eða aðaleinkunnar án skeiðs, sýnd afkvæmi þurfa að minnsta kosti að vera 15 fyrir fyrstu verðlauna hesta og 50 fyrir heiðursverðlauna stóðhesta. Hvert afkvæmi sem sýnt er hefur talsverð áhrif á lokaniðurstöðu kynbótamatsins en þau áhrif eru meiri fyrir fyrstu verðlauna hesta en heiðursverðlauna hestana, þar sem hvert og eitt afkvæmi bætir hlutfallslega meira við. Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi eru viðurkenning á ágæti stóðhestsins til framræktunar og heiður og afrek að ná slíkum áfanga. Niðurstöður kynbótamatsins nú sýna að forvalið hefur talsverð áhrif á fyrstu verðlauna hestana sem og þá aldur afkvæmanna þegar þau mæta til dóms.

Æðsti heiður hvers ræktanda hlýtur að vera að ná heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi. Það var heldur betur mjótt á munum á stóðhestum sem náðu þessum áfanga á Landsmótinu, sér í lagi á fyrsta og öðru sæti. Þar voru jafnir að stigum Sjóður frá Kirkjubæ og Jarl frá Árbæjarhjáleigu en aðeins kommur skildu kappana að, hnossið hlaut Sjóður. Ef rýnt er í gögnin er lýsing afkvæmahestanna, sem byggir á kynbótamati og kynbótadómum sýndra afkvæma, oft keimlík milli fyrstu verðlauna og heiðursverðlauna. Heiðursverðlaun eru tryggð viðurkenning á framræktunargildi einstaklingsins með mjög miklu öryggi og áreiðanleika.

Ljósvaki frá Valstrýtu

Ljósvaki frá Valstrýtu er tólf vetra gamall undan Oddsdótturinni Skyldu frá Hnjúkahlíð og Álfssyninum Hákoni frá Ragnheiðarstöðum en móðir hans var Hátíð frá Úlfsstöðum sem hlaut 10 fyrir tölt á Landsmótinu 2006. Ljósvaki er ræktaður af Guðjóni Árnasyni sem á hestinn með Árna Birni Pálssyni. Ljósvaki fór í sinn hæsta dóm á Landsmótinu 2016 á Hólum í Hjaltadal. Þar hlaut hann 8,54 í aðaleinkunn sýndur sem klárhestur. Fyrir sköpulag fékk Ljósvaki 8,22 þar af 9,0 fyrir höfuð og samræmi en fyrir kosti fékk hann 8,75. Þar hæst ber að nefna einkunnina 10 fyrir bæði tölt og stökk, 9,5 fyrir vilja og geðslag og fegurð í reið og 9,0 fyrir fet, hægt tölt og hægt stökk. Ljósvaki hefur staðið sig afar vel í keppni og á síðustu tveimur Landsmótum hefur hann verið í A-úrslitum í B-flokki gæðinga og kórónaði árangur sinn með því að landa sigri á því síðastliðna. Af 296 fæddum afkvæmum hafa 16 skilað sér í dóm en meðalaldur sýndra afkvæma er aðeins 5 ár. Það er verðmætur eiginleiki að hross komi fljótt til og skili sér í dóm. Ljósvaki á líklegast ekki langt að sækja það en afi hans Álfur frá Selfossi hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi aðeins tíu vetra gamall. Það verður því spennandi að fylgjast með hvort ekki skili sér fleiri afkvæmi Ljósvaka í dóm innan skamms.

Hæst dæmdu afkvæmi hans eru tveir stóðhestar sem komu fram á nýliðnu landsmóti en það eru þeir Tindur frá Árdal undan Aðalsdótturinni Þrumu frá Árdal og Dreyri frá Blönduhlíð sem er undan Kötlu frá Blönduhlíð, dóttur Glyms frá Innri-Skeljabrekku,.

Kynbótamat:
Aðaleinkunn: 121
Sköpulag: 111
Hæfileikar: 116
Mæting: 118

Dómsorð afkvæma:

Ljósvaki frá Valstrýtu gefur stór hross. Höfuðið er skarpt með vel opin augu en stundum með djúpa kjálka. Hálsinn er frekar vel settur, langur og grannur. Bak og lend eru fremur vöðvafyllt en lendin getur verið gróf. Samræmi er mjög gott, fótahátt, léttbyggt og sívalt. Fætur hafa öfluga liði og sinar en sinaskil eru misgóð. Afturfætur eru nágengir og framfætur fremur útskeifir. Hófar eru nokkuð efnisgóðir með hvelfdan botn en hælar geta verið slútandi, prúðleiki er jafnan góður. Afkvæmin eru oftar klárhross en sé skeið fyrir hendi eru gæðin ekki mikil. Töltið er takthreint og fremur skrefmikið með góðum fótaburði en vantar stundum mýkt, sama á við um hæga töltið. Brokkið er fremur skrefgott en fremur sviflítið og rými getur skort.

Stökkið er skrefgott og hæga stökkið takthreint en getur skort svif. Fetið er takthreint en skortir stundum framtak. Ljósvaki frá Valstrýtu gefur stór og fótahá hross sem flest eru sýnd sem klárhross með tölti. Þau eru yfirveguð og fara ágætlega í reið með góðum fótaburði og skrefi. Hann hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.

Kolskeggur frá Kjarnholtum II

Kolskeggur er fjórtán vetra gamall undan Hróðurssyninum Kvisti frá Skagaströnd og Heru frá Kjarnholtum. Hera er langræktuð frá Kjarnholtum undan Lyftingu og Kolskeggi eldri frá þeim bæ. Hann er ræktaður og í eigu Magnúsar Einarssonar. Hæstan dóm hlaut Kolskeggur á vorsýningu á Sörlastöðum árið 2017 þegar hann var níu vetra gamall og fór þá í 8,86 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag fékk hann 8,74 þar af 9,5 fyrir höfuð og samræmi, 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og bak og lend. Fyrir kosti fékk hann 8,94, hæst 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Á keppnisbrautinni hefur Kolskeggur verið farsæll og er þess skemmst að minnast þegar hann vann A-flokk gæðinga á nýliðnu Landsmóti á Gaddstaðaflötum. Það er ljóst af dómsorðum Kolskeggs að hann skilar ágætlega sínum eiginleikum til afkvæma sinna.

Hæst dæmda afkvæmið er Þór frá Torfunesi undan heiðursverðlauna hryssunni Bylgju frá Torfunesi, Baldursdóttur frá Bakka. Auk þess má nefna Kjalar frá Hvammi undan Kráksdótturinni Krímu frá Hvammi og Tappi frá Höskuldsstöðum sem er undan Tign frá sama bæ en hún er undan Ás frá Ármóti. Meðalaldur sýndra afkvæma er 8,24 ár og af 153 fæddum hafa 25 skilað sér í dóm.

Kynbótamat:
Aðaleinkunn: 118
Sköpulag: 119
Hæfileikar: 114
Mæting: 112

Kolskeggur frá Kjarnholtum á Landsmóti á Gaddstaðaflötum 2022. Knapi er Sigurður Sigurðarson. Mynd/KollaGr.

Dómsorð afkvæma:

Kolskeggur frá Kjarnholtum gefur hross í rúmu meðallagi að stærð. Höfuðið er svipgott og skarpt með vel opin augu. Hálsinn er reistur, fínlegur, langur og hátt settur við skásetta bóga en það getur borið á undirháls. Bakið er breitt með fremur góða yfirlínu og lendin er jöfn og öflug. Samræmið er afar gott, afkvæmin eru fótahá og léttbyggð með sívalan bol. Fætur eru þurrir með nokkuð öflugar sinar en frekar lítil sinaskil. Afturfætur eru nokkuð réttir en nágengir.

Hófar eru ágætlega efnismiklir en hvelfingu í hófbotni getur verið ábótavant, prúðleiki er meðalgóður. Afkvæmin eru alla jafna alhliðageng. Töltið er takthreint, rúmt og skrefmikið með góðum fótaburði, hæga töltið lyftugott en ekki alltaf mjúkt. Brokkið er skrefmikið og rúmt en getur verið ójafnt. Skeiðgæðin eru misjöfn; skeiðið er jafnan skrefgott en rými og takti getur verið ábótavant. Stökkið er ferðmikið og framhátt líkt og hæga stökkið sem getur þó verið sviflítið. Fetið er takthreint en skreflengd mætti vera meiri. Kolskeggur gefur framfalleg og léttbyggð alhliðahross með þjálan og góðan vilja sem fara vel í reið með góðum höfuðburði. Kolskeggur hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.

Kjerúlf frá Kollaleiru

Kjerúlf er tuttugu vetra gamall undan Flugu frá Kollaleiru, Bjartsdóttur frá Egilsstaðabæ og Orrasyninum Takti frá Tjarnarlandi en móðir hans var Kjarvalsdóttirin Kórína frá Tjarnarlandi. Kjerúlf er ræktaður af Hans Friðrik Kjerulf sem á hestinn ásamt Leó Geir Arnarsyni. Kjerúlf fór í sinn hæsta dóm, 8,44 í aðaleinkunn á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2011, þá átta vetra gamall. Fyrir sköpulag fékk Kjerúlf 8,14 þar af hæst 8,5 fyrir samræmi, fótagerð, hófa og prúðleika.Fyrir kosti hlaut hann 8,64, þar af hæst 9,5 fyrir brokk og 9,0 fyrir hægt tölt, tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Kjerúlf fór í fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi árið 2016 og var sýndur með hópi afkvæma á Landsmótinu á Hólum það ár.

Af 360 fæddum afkvæmum hafa 50 skilað sér í dóm og er meðalaldur þeirra tíu ár. Hæst dæmda afkvæmið er Kaldalón frá Kollaleiru undan Heiði frá Hjallalandi, sem var sýndur 2020 í 8,56 með 9,0 fyrir prúðleika, tölt, brokk, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. Þá er það Róska frá Hákoti undan Þorradótturinni Frá frá Hákoti, hún fór í 8,50 í aðaleinkunn sex vetra gömul með 9,0 fyrir höfuð, háls, herðar og bóga, bak og lend, brokk og vilja og geðslag. Þriðja hæst dæmda afkvæmið er svo Varúlfur frá Eylandi undan Orradótturinni Vöku frá Árbæ. Hann fór hæst í 8,34 í aðaleinkunn í kynbótadómi árið 2020 en hefur síðan þá komið fram í allmörgum keppnum úti í Svíþjóð.

Kjerúlf er nokkuð sterkur á framræktaða eiginleika og er lýsing afkvæma afar lík milli fyrstu verðlauna og heiðursverðlaunanna sem hann hefur nú náð lágmörkum til. Heiðursverðlaunin byggjast á aðaleinkunn án skeiðs sem er 121 stig eftir haustútreikninga 2022.

Kynbótamat:
Aðaleinkunn: 116
Sköpulag: 105
Hæfileikar: 116
Mæting: 114

Kjerúlf frá Kollaleiru og Hans Kjerúlf á Ístölti Austurlands árið 2015. Mynd / Hafrún Eiríksdóttir

Dómsorð:

Kjerúlf gefur hross í tæpu meðallagi. Höfuðið er svipgott með vel opin augu en stundum með krummanef. Afkvæmin hafa sterka yfirlínu í hálsi og baki. Hálsinn er reistur við háar herðar en getur verið djúpur, bógalega er góð. Bakið er breitt og lendin öflug en getur verið afturdregin og gróf. Afkvæmin eru sívöl og hlutfallarétt en fótahæð jafnan í meðallagi. Fætur eru þurrir með öflugar sinar en ekki mikil sinaskil og afturfætur geta verið nágengir. Hófar eru efnismiklir með hvelfdan botn, prúðleiki er í meðallagi. Afkvæmin hafa afar gott tölt, takthreint, rúmt og jafnvægisgott með góðri fótlyftu. Brokkið er skrefmikið og rúmt, stökkið ferðmikið en fetið fremur skrefstutt. Sé skeið fyrir hendi er það öruggt. Afkvæmin eru ásækin í vilja, vakandi og þjál og fara vel í reið með háum fótaburði. Kjerúlf hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

RML sendir ræktendum og eigendum þessara hesta innilegar hamingjuóskir. Mikil vinna liggur að baki þessum mikla árangri sem er ómetanlegt fyrir ræktunarstarfið.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...