„Af hverju að banka?“
Skoðun 25. júní 2026

„Af hverju að banka?“

Höfundur: Sigurður Ingi Jóhansson
Sigurður Ingi Jóhansson.

Eins og kunnugt er hefur ríkisstjórnin ákveðið að spyrja þjóðina hvort hún vilji kanna aðild að ESB. Þá er eðlilegt að spyrja, af hverju?

Á tímabili 82 ára lýðveldissögu Íslands höfum við farið frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu í eitt það ríkasta í heimi. Í 18 ár höfum við að mati erlendra sérfræðinga verið öruggasta og friðsamasta þjóð/land heims. Efst á mælikvarða jafnréttis um áratugaskeið. Á mælikvarða velsældar eða hamingju (World Happiness Report) erum við ávallt í efstu 3 sætum, keppum þar við hin Norðurlöndin.

Hjá Sameinuðu þjóðunum er til mælikvarði yfir lífskjör (Human Development Report sem mælir, heilsu, menntun og efnahagsleg lífskjör). Í lok árs 2024, er Ísland í efsta sæti allra landa heims! Í öðru og þriðja sæti eru Noregur og Sviss, sem eins og Ísland eru ekki aðilar að ESB.

Þegar við horfum til þessara staðreynda er eðlilegt að spyrja, hverju ætlum við að ná með því að breyta um kúrs og sækja um aðild að ESB?

Þegar við bætum við að Ísland er hlutfallslega stórt land með fáa íbúa en mjög ríkulegar auðlindir. Auðlindir eins og heitt og kalt vatn, endurnýjanlega orku, gjöful fiskimið, jarðnæði og margar aðrar auðlindir sem okkur hefur auðnast að nýta á sjálfbæran hátt og halda fullum yfirráðum yfir.

Það er engin spurning að í þessum auðlindum og nýtingu þeirra er auðlegð okkar í 82 ár fólgin sem og mannauðinum.

Ef við skoðum landbúnaðinn þá búum við að einu besta dýraheilbrigði sem þekkist, sýklalyfjanotkun er með því lægsta sem gerist og sýklalyfjaónæmi það allra lægsta meðal samanburðarþjóða. Þetta eru líka auðlindir sem vert er að verja með kjafti og klóm. Sýklalyfjaónæmi er vaxandi ógn, bara í Evrópu telur WHO að á Evrópusvæðinu sé sýklalyfjaónæmi beint ábyrgt fyrir tugþúsunda dauðsföllum árlega og fer vaxandi.

Í samanburði við ESB löndin stendur Ísland því talsvert framar á öllum þessum sviðum sem hér hafa verið upptalin. Því til viðbótar má nefna að hagvöxtur, nýsköpun og framleiðnivöxtur er mun meiri hérlendis en í ESB ríkjunum. Okkur svipar mun meira til Norður-Ameríku hvað þessa þætti varðar.

En eru ekki lægri vextir og minni verðbólga í löndum ESB? Svarið er bæði já og nei. Í apríl síðastliðnum mældist samræmd vísitala á Íslandi 4,9%, sama var í Litáen, Lúxemborg var með 5.2% og í landinu sem tók upp evru á síðasta ári, Króatíu, 5,4%. Allt eru þetta evrulönd. Í Búlgaríu var verðbólgan 6% og í Rúmeníu 9%! Það sem er áhugavert er að kaupmáttur launa hefur á Íslandi vaxið um 68% á tímabilinu 2013-2025, en aðeins um 8% að meðaltali í löndum ESB og sama gildir um öll Norðurlöndin.

En matvælaverð, er það ekki alltof hátt á Íslandi? Aftur er svarið bæði jú og nei. Hlutfallslegur kostnaður heimila vegna matarkörfunnar er á Islandi milli 13-14% af heimilisútgjöldum og er undir meðaltali ESB vegna þess að laun á Íslandi og kaupmáttur hafa hækkað mun meira hér. Það sem er merkilegt er að allt það sem við viljum laga eru verkefni sem við munum þurfa að gera hvort sem við höldum okkar góða kúrs eða bönkum upp á í Brussel. Virðisauki á mat er t.a.m. 0% á Írlandi, 4-5% í Frakklandi, Spáni og Ítalíu og 7% í Þýskalandi. Ríkisstjórnin gæti því lækkað vsk á matvæli eins og Danir og Svíar eru að gera. Og komið þannig til móts við tekjulág heimili og síhækkandi hráefnisverð.

En það er efni í aðra grein, lausnirnar eru til. Vilji er allt sem þarf.

Höfundur er alþingismaður.

Skylt efni: samningur við ESB | Vinkill

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f