Vitfirrtur forsetinn
Menning 3. nóvember 2026

Vitfirrtur forsetinn

Höfundur: Þröstur Helgason
Digger, með Tom Cruise í aðalhlutverki.

Í Digger eftir Iñárritu er Bandaríkjaforseti dreginn upp sem trúður. Hann ásamt veruleikafirrtri ríkisstjórn og öðrum fylgifiskum standa frammi fyrir vanda sem ógnar ekki bara heimsfriði heldur veröldinni eins og við þekkjum hana. Olíuvinnsla á Grænlandi hefur valdið því að risavaxinn borgarísjaki rekur hratt með hafstraumum og vindum suður og austur um höf og stefnir í átt að Evrópu þar sem hann mun valda flóðbylgju með tilheyrandi eyðileggingu og mannfalli. Forsetinn ákveður að vara fólk ekki við heldur bregða upp eldvegg á samfélagsmiðlum sem blokkar allar færslur um ísjaka, flóðbylgjur og önnur fyrirbæri sem hugsanlega gætu upplýst um hamfarirnar sem vofa yfir. Smátt og smátt afhjúpast leikritið sem sett hefur verið á svið en afleiðingarnar verða ekki umflúnar. Veruleikinn hefur tekið óafturkræfum breytingum.

Vitfirringin er alger í grimmilegri ádeilu Iñárritu. Hún hittir beint í mark. Þetta er með sterkari kvikmyndum sem komið hafa úr Hollývúddvélinni árum saman.

Forseti Bandaríkjanna er einnig skotmarkið í fjórðu þáttaröð The Diplomat á Netflix en með allt öðrum hætti, undir allt öðrum formerkjum. Lesendur sem fylgst hafa með fyrri seríum The Diplomat vita að þar er dregin upp raunsæ og satt að segja trúverðug mynd af störfum sendiherra Bandaríkjanna í London. Í hverri seríu færast Bandaríkin nær því að hefja alvarleg stríðsátök. Í nýju þáttaröðinni missir Bandaríkjaforseti trú og traust samstarfsfólks síns í Hvíta húsinu og utanríkisþjónustunni þegar hann hótar að beita hernaðarmætti sínum gegn Rússum rétt undan ströndum Englands. Allt stefnir í að hótunin geti jafnvel komið af stað kjarnorkustríði við Rússa. Þegar forsetinn sendir herskip sín af stað eftir að hans nánasta fólk hefur með öllum ráðum reynt að koma vitinu fyrir hann eru góð ráð dýr.

„Forseti Bandaríkjanna er einnig skotmarkið í fjórðu þáttaröð The Diplomat á Netflix.“

Þetta er án vafa besta þáttaröðin af þeim fjórum sem eru komnar út af The Diplomat. Handrit Deboru Cahn er einstaklega vel unnið og leiðir áhorfendur í gegnum ótrúlegar sviptingar í bæði milliríkjasamskiptum stórvelda og hjónabandi tveggja aðalpersóna þáttanna, sendiherrans og manns hennar sem nú er orðinn varaforseti Bandaríkjanna. Spennan stigmagnast eftir því sem líður á þáttaröðina og lausnin í síðasta þætti kemur algerlega á óvart og skilur áhorfandann þar að auki eftir á hengifluginu. Það blasir við að fimmtu seríuna verður að framleiða og það sem allra fyrst.

Viðbrögð fólks í innsta hring forsetans við firringu hans og mikilmennskubrjálæði er síðan ákaflega áhugaverð afhjúpun á sinnuleysinu sem bandarísk stjórnmál og stjórnsýsla hefur sýnt þeim valdasjúka og óhæfa manni sem þar hefur setið á æðsta stóli undanfarin ár. Í veruleikanum heldur trúðasýningin áfram án sýnilegra viðbragða úr hringleikahúsinu og afleiðingarnar verða varla umflúnar úr þessu. Veruleikinn hefur vafalítið þegar tekið óafturkræfum breytingum.

Skylt efni: Hrifla

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...