Viss neytendavernd  í nýrri reglugerð
Fréttir 14. ágúst 2026

Viss neytendavernd í nýrri reglugerð

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Reglugerð Evrópusambandsins um umbúðir og úrgang umbúða tók gildi 12. ágúst í ríkjum Evrópusambandsins.

„Viss neytendavernd felst í reglugerðinni með banni við notkun skaðlegra efna og minni umbúðanotkun og þar með rusli í kringum okkur sem er af hinu góða,“ segir Sigurður Helgi Birgis- son, viðskiptastjóri matvæla hjá Samtökum iðnaðarins.

Sigurður Helgi Birgisson.

Bann við PFAS-efnum

Í meginatriðum er reglugerðinni (PPWR EU 2025/40) ætlað að stuðla að minnkun umbúðaúrgangs, einfaldaðri endurvinnslu og samræmdum merkingum til að auðvelda flokkun. Hvatt er til lausasölu og aukinheldur lagt bann við notkun ákveðinna skaðlegra efna, svo sem eilífðarefna (PFAS-efna) í matvælaumbúðum. Hún felur einnig í sér reglu um hámarks- hlutfall lofts sem má vera í umbúðum.

Reglugerðin varðar allar umbúðir á innri markaði Evrópu- sambandsins og verður tekin upp á Íslandi sem hluti af EESsamningnum. Aðlögun verður þrepaskipt á 15 ára tímabili en óvíst er hvenær hún hefst á Íslandi. Hún snertir þó strax þá sem flytja vörur út til ríkja Evrópusambandsins.

30% endurunnið plast lágmarkið

Reglugerðin felur í sér lágmarksreglur um 30% hluta endurunnins efnis í plastumbúðum. „Til framtíðar þarf að horfa til þess að framleiðendur þurfa að útvega sér þessi vottuðu efni, sem eru núna bara framleidd í Evrópu,“ segir Sigurður. „Ég hef verið að benda matvælaframleiðendum hér á að fá upplýsingar frá sínum umbúðabirgjum, hvort þeir geti fengið vottanir frá þeim og að byrja að skoða innihald umbúða sem þeir eru að nota. Framleiðendur sem ná að standa sig vel og koma hönnun á umbúðum og sambandi við birgja í góðan farveg getur reitt vel af.“

Sigurður segir plast ekki vera sama og plast og að mikil þróun hafi orðið í plastframleiðslu á undanförnum árum. Óvíst sé hvort þeir aðilar sem framleiði plast sem uppfyllir skilyrðin sjái hag sinn í að þjóna okkar litla markaðssvæði. „Framboðið á eftir að koma í ljós.“

Grænmetisbændur uggandi

Reglugerðin gerir ráð fyrir aukinni lausasölu á landbúnaðarvöru. „Grænmetisbændur hafa verið uggandi yfir því að banna eigi ákveðnar neytendaumbúðir,“ segir Sigurður. „Spergilkál í plasti endist til dæmis 3-5 sinnum lengur, en gert er ráð fyrir undantekningu ef sýnt er fram á að gæði minnki, en það mun þá þurfa að sýna fram á það.“

Íslenskir garðyrkjubændur hafa einnig notað umbúðirnar til aðgreiningar frá innfluttu grænmeti en erfiðlega hefur gengið að aðgreina innlenda framleiðslu með öðru móti.

Mjólkurdrykkir undanþegnir

„Seljendur verða skyldaðir til að hafa ákveðið hlutfall drykkjarvara í hillunum í endurnotuðum umbúðum. Mjólkurdrykkir verða undanskildir þar sem ekki hefur tekist að þróa umbúðir sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og tryggja matvælaöryggi.“ Áldósir með takmarkað kolefnisspor henta þó ekki til endurnota. Gert er ráð fyrir að umbúðir geti verið hreinsaðar.

„Við höfum náð svo góðum tökum á endurvinnslu og erum með 90% skilahlutfall sem er í raun það sem er stefnt að í þessari reglugerð. Tvöfalt kerfi, endurvinnsla og endurnotkun, myndi mögulega draga úr skilum í núverandi kerfi og óvíst hvernig skil yrðu í nýju kerfi. Við gætum þá aukið plast í notkun sem væru neikvæð áhrif og þvert á það sem að er stefnt.“ Aðspurður um þörf fyrir breytta hegðun neytenda segir Sigurður: „Sumar verslanir hafa reynt að taka upp áfyllingarbása á þurrvöru og Hreppamjólk reyndu að bjóða áfyllingu á glerflöskur en það hefur ekki verið næg eftirspurn eftir slíku. Verður því áhugavert að sjá hvaða áhrif reglugerðin mun hafa á hegðun neytenda hér á landi.“

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...