Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku:

Er af grjóti ofgnótt

urt þó fegri svörð,

þú ert hörð og hornótt

háttvirt fósturjörð.

Pétur Stefánsson yrkir þessa stöku, en efast um að hún dugi til að fara í gegnum Gullna hliðið:

Nú er ég kominn nafni minn

nokkuð af syndum kvalinn.

Hleyptu mér nú aumum inn,

inn í himnasalinn.

Óhætt er að segja að Jón Gnarr veki stöðugt athygli með sínum uppátækjum, snillingurinn Jón Jens gerir atburðum skil að hætti Davíðs:

Er Viðreisn tók að jafna um Jón

fannst Jóni komið nóg

af þrásetu í þingflokknum

og þaðan burt sig dró.

Því allmargt hafði orðið þar

til ama og jafnvel tjóns

og ekki þýddist Þorgerður,

við þrautasögu Jóns,

hann oft um áheyrn bað

samt afréð kerling það,

að hunsa flest þau hugðarmál

og hreyfast ekki úr stað.

Margt hefur verið ort um presta í gegnum tíðina og margir prestar hafa verið hagmæltir. Margrét Jónsdóttir, skáldkona í Reykjavík, orti þessa vísu undir messu:

Æ, hættu nú prestur að prédika'um synd

á postuladyggðum að klifa.

En farðu'út á strætin sem fyrirmynd

og fólkinu kenndu að lifa.

Í vísnabók Káins má finna þessa vísu:

K. N. prestur enginn er -

og engum meiri hann er

verstur sjálfum sér -

og svo eru fleiri.

Séra Sigurður Norland, prestur í Hindisvík, var kunnur á sinni tíð, gerir svona grein fyrir hrossaeign:

100 á ég hrossin góð

hér við 40.

Finnst nú varla fegra stóð

'49.

Um kirkjustaðinn Tjörn á Vatnsnesi yrkir presturinn þennan spádóm:

Bráðum sneiðist byggðin hér

borgin seiðir marga.

Tjörn í eyði eflaust fer.

Engin leið til bjarga.

Þessi vísa Sigurðar þarfnast ekki neinna skýringa:

Útlaganna óðal sést

enn hjá fannatindum.

Sekra manna býli best

byggt í Hvannalindum.

Séra Ögmundur Sívertsen þjónaði líka Tjörn á Vatnsnesi, hann orti:

Það er það sem að mér er

ég óspart skilding farga.

Herrann vissi hentast mér

að hafa þá ekki marga.

Ögmundur orti líka þessar og kallaði eftirmæli ársins 1840:

Margir hlupu hátt af stað

hugðust sleikja rjóma

prestur á Tjörn sér brúðar bað

en bölvun fékk hann tóma.

Það sem helst honum þótti að

að þessi ei veittist píka

of fátækur í allan stað

og óágengur líka.

Séra Ögmundi gekk illa að ná sér í konu og var 43 ár þegar það tókst:

Prestinum illa giftast gekk,

gigtar flengdur hrísi,

uns um síðir Ólöfu fékk

fyrir átta merkur af lýsi.

Og klerkur orti þegar konan kom:

Komin Ólöf er að Tjörn,

ein frá Þorkelshóli.

Á hennar malar kærleikskvörn

kargur hempudóli.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...