Vilji einstaklings
Skoðun 6. nóvember 2026

Vilji einstaklings

Höfundur: Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir

Í október fékk ég einstakt tækifæri til að taka þátt í viðburði á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm, þar sem hundrað konur víðs vegar að úr heiminum voru heiðraðar fyrir fjölbreytt framlag sitt til landbúnaðar og byggðaþróunar.

FAO er stofnun sem leikur mikilvægt hlutverk við alþjóðlega stefnumótun, fæðuöryggi og leiðir umræður um framtíð landbúnaðar. Það er áhrifamikið að upplifa að stofnun sem þessi haldi svo stóran viðburð þar sem áhersla er lögð á að heiðra konur sem hafa jafnvel þrátt fyrir takmörkuð úrræði haft gríðarleg áhrif á nærumhverfi sitt.

Sérstök áhersla var lögð á sögu og ævistarf Yin Yuzhen, konu frá Innri-Mongólíu í Kína, sem var kynnt sem sú hundraðasta í hópnum og sýnd stuttmynd um störf hennar.

Yin var aðeins 19 ára árið 1985 þegar hún var, vegna fátæktar fjölskyldu sinnar, gift manni á afskekktu svæði í Mu Us-eyðimörkinni í norðurhluta Kína. Þar blöstu við henni erfið lífsskilyrði, sandstormar og mikil einangrun. Heimili hennar var eins og hellir sem var að hluta grafinn niður í eyðimörkinni og oft liðu margar vikur á milli þess sem þau hjónin hittu annað fólk.

Í stað þess að sætta sig við aðstæðurnar ákvað hún að reyna að breyta þeim. Árið 1986 seldi hún kind sem þau áttu og keypti 600 litlar trjáplöntur sem hún gróðursetti í kringum heimili sitt. Tilraunin gekk illa og það lifðu einungis af um 10 plöntur. En Yin hélt ótrauð áfram.

Á næstu áratugum helgaði hún tíma sinn því að græða upp land í nærumhverfi sínu. Með eiginmanni sínum vann hún við gróðursetningu við erfiðar aðstæður og skref fyrir skref lærði hún hvaða aðferðir skiluðu árangri. Hún áttaði sig í gegnum endurteknar tilraunir á því hvernig væri best að græða upp sandinn og ná að rækta upp gras og lággróður til að undirbúa jarðveginn fyrir trjáplönturnar. Einnig byggði hún áveitukerfi til að byggja upp ræktunarland til landbúnaðar á uppgræddum svæðum. Í dag leggur hún áherslu á fjölbreytt lífríki trjáa og plantna til að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni og sjálfbærni uppgræðslusvæðisins.

Það sem byrjaði sem tilraun til að bæta aðstæður í kringum hennar eigið heimili varð að umfangsmiklu uppgræðslustarfi. Samkvæmt FAO hafa nú verið gróðursett yfir átta milljónir trjáa og nærri 5.000 hektarar lands endurheimtir vegna starfs hennar. Áhrifin ná þó lengra en það. Starfið hefur skapað ný tækifæri til ræktunar og landbúnaðar og hafa fleiri hundruð fjölskyldur tekið upp uppgræðslu að hennar fyrirmynd, m.a. til að styrkja stoðir landbúnaðar og matvælaframleiðslu á svæðinu.

Saga Yin Yuzhen fangar sérstaklega vel þann boðskap sem lá að baki viðburðinum í Róm. Saga hennar undirstrikar hvernig einstaklingar geta með frumkvæði sínu haft áhrif á lífsgæði og afkomu nærsamfélagsins.

Þótt áskoranir landbúnaðar og matvælaframleiðslu séu ólíkar og geti verið mjög krefjandi þá minnir saga hennar á að langvarandi breytingar geta hafist með vilja eins einstaklings til að bæta nærumhverfi sitt.

Höfundur er eigandi Sólskins grænmeti á Flúðum.

Skylt efni: Vinkill

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...